Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 27.11.2014, Blaðsíða 10

Fjarðarpósturinn - 27.11.2014, Blaðsíða 10
8 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2014 Tjarnarvöllum 11 220 Hafnarfjörður apotekhfn.is Hagstætt verð í heimabyggð Sími 555 6650 42 sóttu um stöðu mann­ auðsstjóra Hafnarfjarðar 5 drógu umsókn til baka Alls sóttu 42 manns um stöðu mannauðsstjóra hjá Hafnarfjarð­ ar bæ en 5 drógu umsókn sína til baka. Anna Jörgensen, lögræð­ ingur sem gengdi stöðu mann­ auðsstjóra sagði upp starfi sínu. Konur eru í miklum meiri hluta eða 25 af 37 umsækjendum. Anna Dóra Guðmundsdóttir, mannauðsstjóri Arndís Kristinsdóttir, sölufulltrúi Ásdís Elva Pétursdóttir, nemi Berglind Björk Hreinsdóttir, deildarstjóri Berglind Guðrún Bergþórsdóttir, mannauðsstjóri Bryndís Jónsdóttir, ráðgjafi Brynjar Þór Elvarsson, nemi Davíð Freyr Þórunnarson, leiðbeinandi Drífa Jóna Sigfúsdóttir, viðskiptafræðingur Eydís Aðalbjörnsdóttir, mba Gerður Björt Pálmarsdóttir, ms mannauðsstjórnun Guðrún Aðalbjörg Sigurðardóttir, mannauðssérfræðingur Guðrún Sigurjónsdóttir, mannauðsstjóri Gunnar Ingi Guðmundsson, ms mannauðsstjórnun Hanna María Þórhallsdóttir, lögfræðingur Harpa Hallsdóttir, mannauðssérfræð ing ur Herdís Sólborg Haraldsdóttir, sérfræðingur Hólmsteinn Jónasson, ms sálfræði Hrund Guðmundsdóttir, ms mannauðsstjórnun Inga Þóra Þórisdóttir, mannauðsstjóri Ingi Geir Hreinsson, ms sálfræði Ívar Ragnarsson, mba Jón Ólafur Valdimarsson, framkvæmdastjóri Jón Pálsson, viðskiptafræðingur Jóna Valborg Árnadóttir, ráðgjafi Júlía Guðmundsdóttir, nemi Katrín María Andrésdóttir, viðskiptafræðingur Kristín Ólafsdóttir, sérfræðingur Nino Paniashvili, nemi Sigríður Arndís Jóhannsdóttir, verkefnastjóri Sigríður Pétursdóttir, skrifstofustjóri Sólveig Lilja Einarsdóttir, verkefnastjóri Sverrir Hjalmarsson, mannauðssérfræðingur Telma Sveinsdóttir, ms mannauðsstjórnun Viktor Rúnar Rafnsson, verslunarstjóri Þórður Ingi Guðmundsson, hagfræðingur Þórey Svanfríður Þórisdóttir, ms markaðsfræði og alþj.viðsk. Hefja átti viðtöl við umsækj­ endur í þessari viku. Kvennakór Hafnarfjarðar heldur jólatónleika sína í Víðistaðakirkju fimmtudaginn 4. desember og bera þeir yfir skrift­ ina Gleðileg jól! Kvennakórinn fær til sín góða gesti á tónleikana því Karlakórinn Þrestir mun heiðra þær með nærveru sinni. Kórarnir munu syngja hvor í sínu lagi en einnig munu þeir sam einast í söng í nokkrum lögum og má búast við hljóm­ miklum söng þegar þessir tveir kórar koma saman. Árið sem er að líða hefur verið hefðbundið hjá Kvennakór Hafn arfjarðar en undirbúningur er þegar hafinn fyrir næsta ár þegar kórinn fagnar tuttugu ára starfsafmæli sínu. Á döfinni eru ýmsar uppákomur og glæsilegir hátíðartónleikar næsta vor sem munu marka þessi tímamót. Dagskrá jólatónleikanna er látlaus og falleg, sungnir verða hefðbundnir jólasálmar í bland við falleg jólalög sem ættu að tendra jólagleði í hjörtum áheyr­ enda. Stjórnandi Kvenna kórs Hafnarfjarðar er Erna Guð­ munds dóttir. Píanóleikur er í höndum Antoníu Hevesi og flautuleikari er Kristrún Helga Björnsdóttir. Stjórnandi Karla­ kórsins Þrasta er Jón Kristinn Cortez. Lista­ og hannyrðakonan Arn­ dís Sigurbjörnsdóttir skreytir Víðistaðakirkju í tilefni tónleik­ anna. Jólatónleikar hefjast kl. 20 í Víðistaðakirkju fimmtudaginn 4. desember. Miðaverð er 2.500 kr. og eru miðar seldir hjá kórunum og við innganginn. Frítt er fyrir börn 12 ára og yngri. Tónleika­ gestum verður boðið upp á kaffi og konfekt í tónleikahléi. www.kvennakorinn.org Karlakórinn Þrestir syngur með Kvennakórnum á tónleikunum. „Gleðileg jól!“ Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar Lj ós m .: G uð ni G ís la so n

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.