Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 27.11.2014, Blaðsíða 4

Fjarðarpósturinn - 27.11.2014, Blaðsíða 4
2 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2014 Búist er við töluverðri fækkun leikskólabarna í Hafnarfirði á næstu árum og endurspeglast það í til­ lögum til fjárhagsáætlunar Hafnar­ fjarðarbæjar þar sem gert er ráð fyrir 73 milljónir kr. á næsta ári. Á sama tíma á að hækka leikskólagjöldin og ná inn 18 milljónum með þeirri hækkun og hækkun á gjaldskrá grunnskóla. Skera á niður framlög til Miðstöðvar símenntunar um 20 milljónir. Auka á einkavæðingu á grunnskólastiginu og fara rúmlega 36 milljónir kr. til þess. Aðeins sparast um þriðjungur á móti vegna fækkunar bekkjardeila í grunnskólum bæjarins. Engin almenn umræða hefur farið fram um einkavæðingu grunnskóla, um kosti þess og galla og pólitísk hentistefna virðist ráða þar eins og þegar skólahúsnæði var byggt í einka­ framkvæmd, eingöngu til að fegra reikningshald bæjarins ­ tímabundið. Þegar þessi fjárhagsáætlun verður afgreidd er í raun gert ráð fyrir að úttekt sem ljúka á á næsta ári skili raunhæfum tillögum til hagræðingar því þær hagræðingar eiga að skila hallalausum A­hluta bæjarsjóðs sem ekki er hægt að sýna fram á núna. Það má e.t.v. segja að bæjarbúar verði að bíða til næsta árs til að sjá hvernig ný bæjarstjórn tekur á málunum því hún hefur farið rólega af stað og niðurstaða úr greiningu, eins og menn vilja nú kalla úttektina, verður grunnur að ákvörðunum sem munu skipta bæjarbúa miklu máli. En menn geta velt því fyrir sér hvers vegna leikskóla­ börnum fækkar skyndilega eftir mikinn topp. Var upp­ bygging í bænum of hröð? Bæjarfélög hljóta að kjósa jafna uppbyggingu sem hefur ekki í för með sér holskeflu nýrra nemenda í skóla á stuttum tíma og heldur ekki að tímabil komi þar sem lítið sem ekkert framboð er af húsnæði fyrir ungt fólk sem er að hefja búskap. Umræða um fjárhagsáætlun kemur á versta tíma fyrir bæjarbúa, þegar þeir eru komnir í undirbúning jólanna, unglingarnir í próflestri og fjölmargir að hugsa um margt skemmtilegra en fjármál sveitarfélagsins eins og útskriftir, jólatónleika, menningu í miðbænum og fl. Megi gleði og friður ríkja hér í bæ í helgum mánuði jóla og bæjarbúar hvattir til virkrar þátttöku í bæjarlífinu. Guðni Gíslason ritstjóri. leiðarinn Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380 Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf. Ritstjóri: Guðni Gíslason Ábyrgðarmaður: Steingrímur Guðjónsson. Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193 www.fjardarposturinn.is www.facebook.com/fjardarposturinn Sunnudagurinn 30. nóvember Heimsókn frá Annríki - þjóðbúningar og skart Messa kl. 11 Félagar úr Barbörukórnum leiða söng. Organisti er Douglas Botchie. Prestur er sr. Þórhildur Ólafs. Messuhópur frá Annríki tekur þátt í messunni; les bænir og ritningarorð og aðstoðar við útdeilingu. Sunnudagaskóli kl. 11 í Hásölum Strandbergs, safnaðarheimilis. Leiðtogi barnastarfs er Anna Elísa Gunnarsdóttir, henni til aðstoðar eru Margrét Heba og Ingeborg. Kaffi, kex og djús í Ljósbroti eftir messu og sunnudagaskóla. Föstudagur 28. nóvember Jólafundur Kvenfélags Hafnarfjarðarkirkju kl. 19 í Hásölum Strandbergs. Matur, skemmtiatriði, happadrætti og hugvekja. www.hafnarfjardarkirkja.is. HAFNARFJARÐARKIRKJA 1914 - 2014 Sunnudagurinn 30. nóvember Sunnudagaskóli kl. 11 Fríkirkjubandið leiðir sönginn. Aðventustund kl. 13 með fermingarbörnum og foreldrum Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, kemur í heimsókn. Örn Arnarson, Erna Blöndal og Guðmundur Pálsson sjá um tónlistina. www.frikirkja.is 35 ár Stolt að þjóna ykkur Útfararskreytingar kransar, altarisvendir, kistuskreytingar, hjörtu Bæjarhrauni 26 Opið til kl. 21 öll kvöld Símar 555 0202 og 555 3848 www.blomabudin.is Aðventuhátíð Víðistaðakirkju verður haldin sunnudaginn 30. nóvember kl. 17:00 Kór Víðistaðakirkju, Barnakór Víðistaðakirkju og Gisur Páll Gissurarson flytja falleg aðventu- og jólalög undir stjórn Helgu Þórdísar organista. Steinunn Jóhannesdóttir rithöfundur flytur erindið „Hallgrímur jólabarn“ og les upp úr nýútkominni jólabók sinni. Sr. Halldór Reynisson leiðir stundina. Ókeypis aðgangur og allir hjartanlega velkomnir. Föstudaginn 28. nóvember Lofgjörðarkvöld kl. 20 Gestur: Sigurbjörn Þorkelsson Félagar úr kór Ástjarnarkirkju annast tónlistina. Sunnudaginn 30. nóvember Messa kl. 11 Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar. Prestur sr. Kjartan Jónsson. Jólaföndur í sunnudagaskólanum. Starf eldri borgara miðvikudaginn 3. desember kl. 13.00 Gestur: Halldór Blöndal fv. alþingismaður. www.astjarnarkirkja.is Styðjum Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem veitir neyðaraðstoð fyrir komandi jól til þeirra sem eiga lögheimili í Hafnarfirði 2014 Styrkja má störf nefndarinnar með því að leggja inn á: Íslandsbanka 0544-04-760686, kt. 460577-0399 Landsbankann 0140-15-381231, kt. 460577-0399

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.