Fjarðarpósturinn - 27.11.2014, Page 8
6 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2014
Hönnunar og handverksmarkaður
á Strandgötu 11
(Húsnæði vinstri grænna)
Laugardagana
29. nóvember
6. desember
13. desember
20. desember
Opnunartími: 12:00-18:00
kjólar · töskur · náttuglur · grifflur
spiladósir · eyrnabönd · sjöl
barna ullarnærbolir · húfur
jurtalitað ullarband · hálsmen
Söngvaskáldin Ragnheiður
Gröndal, Kristjana Stefáns og
Svavar Knútur halda tónleika í
Víðistaðakirkju á sunnudaginn
kl. 20 undir yfir skriftinni
Eitthvað fallegt. Tón leikarnir
heita eftir sam nefndri hljómplötu
þeirra, sem kom út í fyrra hjá
Dimmu útgáfu.
Á tónleikunum kennir ýmissa
grasa úr jólagarðinum, bæði
verða flutt sígild íslensk jólalög
og nokkur frumsamin lög af
listafólkinu og er áherslan lögð á
látleysi, einfaldleika og einlægni
í flutningi. Allur hljóðfæraleikur
er í höndum tríósins og er
hljómnum þannig haldið eins
lágstemmdum og mögulegt er.
Ragnheiður, Kristjana og
Svavar leggja upp úr því að
stemmningin á tónleikunum
verði líkust kvöldvöku eða góðri
samverustund og verður
húmorinn og gleðin látin ráða
ferð milli jólalaganna. Þetta ætti
því að vera hin fínasta stund fyrir
alla fjölskylduna.
Börn og unglingar velkomnir
Svavar Knútur segir mjög
mikilvægt að börn og unglingar
séu velkomnir með á tónleika,
enda sé mikilvægt að jóla
tónleikar séu hluti af samveru
stundum fjölskyldunnar. „Við
leggjum líka mikla áherslu á að
hafa þetta allt kósý og afslappað,
svo fólk fari ekki út með suð í
eyrunum og hausverk,“ segir
Svavar. „Það er eitthvað svo
dásamlegt að dvelja í hæglátri
stemmningu og eiga notalega
kvöldstund saman. En það
verður samt stuð og gleði, annað
er ekki í boði.“
Miðaverð er 3.500 kr., ókeypis
er fyrir börn og unglinga og
afsláttur fyrir eldri borgara,
öryrkja og atvinnulausa. Hluti
miðaverðs tónleikanna rennur til
góðs málefnis í heimabyggð.
Ragnheiður, Svavar Knútur og Kristjana syngja í Víðistaðakirkju á sunnudagskvöld
Eitthvað fallegt á tónleikum
Ragnheiður Gröndal, Kristjana Stefáns og Svavar Knútur
Setning: Sigrún Edda Eðvarðsdóttir, formaður Foreldrafélags Álftanesskóla
Agla Bríet, Veronika Heba og Thelma, nemendur í 8. bekk Álftanesskóla
og Dansskóla Birnu Björns, sýna frumsaminn dans
Álftaneskórinn flytur nokkur lög
Tískusýning - nemendur í 5. bekk sýna eigin hönnun
Grænfánaverkefni Álftanesskóla
Una Stef spilar og syngur nokkur lög
Elvar Kristinn Gapunay og Sara Lind Guðnadóttir,
13 ára Norður-Evrópumeistarar í Latin-dönsum, sýna dans
Kvennakór Garðabæjar
Ingó Veðurguð flytur nokkur lög
Stefán Hilmarsson flytur nokkur lög og áritar nýju jólaplötuna sína
Nemendur í nútímadansi í Listdansskóla Hafnarfjarðar sýna
frumsaminn dans
Birta Marín, nemandi í Álftanesskóla, syngur
Hraðbingó Lions – allir spila
ókeypis bingóspjöld – veglegir vinningar
Agla Bríet, nemandi í Álftanesskóla, syngur jólalög
Kveikt á jólatrénu, jólasveinar mæta á staðinn
Lionsklúbburinn Seyla og Lionsklúbbur Álftaness bjóða upp á ókeypis blóðsykursmælingar.
Hægt er að panta sölu- og kynningarborð fyrir 28. nóv. í gegnum netfangið godgerdadagur@gmail.com.
Hvert söluborð kostar 3000 kr. Allur ágóði af leigu borðanna rennur til góðs málefnis.
Líknarsjóður Álftaness tekur á móti AUKApakkanum og Rauði krossinn í Garðabæ tekur á móti fatapokanum.
DAGSKRÁ
13.00 - 13.30
14.00 - 14.30
14.30
15.00 - 15.30
15.30 - 16.00
16.15
Álftanesi, laugardaginn 29. nóvember
í Íþróttamiðstöðinni kl. 12.00 – 16.00
Handverksmarkaður, hönnunarvörur, söluborð, kaffisala og fleira
ALLIR VELKOMNIR
Jóla- og góðgerðadagurinn
Foreldrafélag Álftanesskóla
og hin ýmsu félagasamtök
Nemendur í 10. bekk Álftanesskóla
verða með kaffisölu.
Nemendur í 7. bekk verða með dekurhorn.
Nemendur í 6. bekk verða með
jóla merkimiða til sölu.
Nemendur í 4. bekk verða með tombólu,
allur ágóði mun renna til góðra málefna.
Kynnir:
Sigríður
Klingenberg
Ingó
Veðurguð
mætir
HRAÐ-BINGÓ
TOMBÓLA
KAFFI-
SALA
Stebbi
Hilmars
mætir á
svæðið
Leikskólabörn skreyta
Leikskólabörn Hafnarfjarðar
skreyta jólatrén í Jólaþorpinu í
vikunni fyrir opnun. Þá koma
þau í mörgum hópum frá öllum
leikskólum bæjarins með fallega
skrautið sitt. Tekið er á móti um
400 leikskólabörnum sem stolt
leggja leið sína í þorpið til að
skreyta. Það er því virkilega
fallegt um að litast í Jólaþorpinu
og fjölbreytt og litríkt skraut. Í
fyrra fór af stað skemmtilegt
verkefni þegar ákveðið var að
skreyta hluta Hellisgerðis. Þetta
verður endurekið í ár og eru það
6. bekkingar sem sjá um að fegra
viss svæði í Hellisgerði með alls
konar skrauti og setja þannig
ævintýralegan blæ á garðinn
fallega.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n