Akureyri - 09.10.2014, Qupperneq 1
37. tölublað 4. árgangur 9. október 2014
VI
KU
BL
AÐ
H A F N A R S T R Æ T I 1 0 6
www.icewear.is
CLAUDIA HETTUÚLPA kr. 29.900
ÞÍN ÚTIVIST
ÞÍN ÁNÆGJA
Ásakanir um óheiðar-
leika og meiðyrði
Hjörleifur Hallgríms, kaupmaður á
Akureyri, fyrrverandi ritstjóri héraðs-
fréttablaðsins Vikudags og félagsmaður
í KEA, segir í aðsendri grein í blaðinu
í dag að Halldór Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri KEA, hafi brugðist illa
við aðsendri grein í Akureyri Vikublaði
fyrir tveimur vikum.
Í greininni gagnrýndi Hjörleif-
ur rekstur KEA en fer aftur fram á
ritvöllinn í dag með annarri grein
sem ber fyrirsögnina „Sárindi fram-
kvæmdastjórans“. Segir þar að Akur-
eyri Vikublað hafi naumast verið komið
út fyrir tveimur vikum þegar Halldór
Jóhannsson framkvæmdastjóri hafi
hringt í greinarhöfund og skammað
hann.
„Sakaði hann mig um óheiðarleg
vinnubrögð, ég færi ekki rétt með, hefði
átt að leita mér upplýsinga og ég bæri
sig alvarlegum sökum, sem jafnvel jöðr-
uðu við dómstólaleiðina,“ segir í grein
Hjörleifs í blaðinu í dag.
Halldór Jóhannsson staðfestir að hafa
haft samband við Hjörleif eftir að grein
hans birtist fyrir tveimur vikum en neit-
ar að hafa verið illur. Hann segist hafa
gert Hjörleifi grein fyrir að þarna kæmu
mögulega fram meiðandi ummæli. Varla
sé eitt satt orð að finna í skrifum Hjör-
leifs um KEA. Sjá bls. 2 og 8.
-BÞ
Haustið er sjúkt, sagði Sigurður Nordal – en fagurt er það eigi að síður og setur glæsilegan punkt aftan við eitt besta sumar í manna minnum.
Völundur
Hverfisgötu 18, 101 Reykjavík
sími: 533 3050
Skipagötu 14, 3. hæð, Akureyri
sími: 897 33 14
VestNord lögmenn hafa opnað útibú á Norðurlandi
VestNord lögmenn í Reykjavík hafa opnað útibú á Norðurlandi. Fyrst um sinn hefur útibúið
aðsetur að Skipagötu 14, 3. hæð, á Akureyri (Alþýðuhúsinu). Þar verður Gísli Tryggvason hdl.
með fasta viðveru alla mánudaga. Viðtal má panta í GSM 897 33 14 eða gt@vestnord.is.
VestNord lögmenn sérhæfa sig m.a. í
• starfsmannamálum og vinnumarkaðsrétti
• stjórnsýslurétti og bótaábyrgð hins opinbera
• alhliða lögfræðiráðgjöf við ferðaþjónustufyrirtæki
• mannréttindamálum og stjórnarskrá.
Gísli sinnir einnig ráðgjöf á sviði erfðaréttar og erfðafjárskatts, svo og erfðaskrárgerð, auk
dánarbúskipta en hann er annar eigenda Nord, eignarhaldsfélags, ehf. sem rekur fyrirtækið
danarbuskipti.is er býður upp á nýja heildarþjónustu við skipti á dánarbúi.
VestNord lögmenn búa yfir rúmlega 30 ára samanlagðri reynslu af ráðgjöf, hagsmunagæslu
og málflutningi í einkamálum, sakamálum og vinnumarkaðsmálum.
www.vestnord.is
Gísli er Akureyringur, hefur MBA-gráðu með áherslu á mannauðsstjórnun
og diploma í sáttamiðlun auk embættisprófs í lögum og
málflutningsréttinda fyrir héraðsdómi. Hann hefur sinnt réttindamálum
einstaklinga í 15 ár - sem talsmaður neytenda og áður lögmaður og
framkvæmdarstjóri BHM.
Varðveitum friðinn - fyrirbyggjum átök.