Akureyri - 09.10.2014, Qupperneq 2
2 37. tölublað 4. árgangur 9. október 2014
Segir illt að búa við til-
hæfulausar ásakanir
Eins og fram kemur á forsíðu blaðsins eru harðar deil-
ur uppi milli Hjörleifs Hallgríms, kaupmanns á Akur-
eyri, og framkvæmdastjóra KEA, Halldórs Jóhanns-
sonar. Hjörleifur er fyrrverandi ritstjóri Vikudags.
Hann seldi KEA Vikudag fyrir tæpum áratug. Halldór
sakar Hjörleif um rangærslur eftir að Hjörleifur skrif-
aði aðsenda grein í Akureyri Vikublað fyrir tveimur
vikum. Vegna álitaefna sem komu fram í gagn-
rýni Hjörleifs á KEA, sendi Akureyri Vikublað
framkvæmdastjóra KEA fyrirspurn sem Hall-
dór Jóhannsson hefur nú svarað fyrir hönd
félagsins.
Er þetta „Flórumál“ eitthvað sem deila má
um hvort hafi þjónað hagsmunum KEA?
„Kaup KEA á tæplega þriðjungshlut í Ás-
byrgi Flóru í ársbyrjun 2013 voru byggð á
sömu forsendum og aðrar fjárfestingar KEA.
KEA kom þar inn ásamt öðrum fjárfesti í hlut-
hafahóp félagsins. Ákvörðun um fjárfestingu í
þessu fyrirtæki var m.a. byggð á því að félagið
var að vaxa verulega með kaupum á fyrirtæki
í samskonar rekstri en með uppkaupunum á
Maxí í Reykjavík voru öll framleiðsluumsvif
og störf flutt til Akureyrar og velta félagsins
nærri þrefölduð. Félagið veltir tæplega 400
milljónum króna og hjá því starfa 11 manns.
Nýlega fengu meirihlutaeigendur í Ásbyrgi
Flóru tilboð í sinn hlut sem þeir samþykktu
en KEA gekk inn í tilboðið á grundvelli for-
kaupsréttar. Áherslur tilboðgjafa og KEA um fram-
tíðarrekstur félagsins voru ólíkar og því neytti KEA
forkaupsréttar síns en KEA vill láta reyna á stækk-
un félagsins og uppbyggingu þess á Akureyri sem og
stefna að áframhaldandi vexti. KEA hefur endurselt
20% hlut af eign sinni í Ásbyrgi Flóru. Eins og á við um
allar fjárfestingar þá mun tíminn einn leiða það í ljós
hvort þessi reynist árangursrík eða ekki.“
Hverju svararðu gagnrýni ritstjórans fyrrverandi á
ykkar störf?
„Nánast ekkert af því sem fram kemur í greininni
um KEA, mig eða formann félagsins er sannleikanum
samkvæmt eða rétt frá greint.“
SAKAÐIR UM MISNOTKUN OG KLÍKUSKAP
Er rétt að þú hafi hringt í Hjörleif illur eftir
að grein hans birtist og hafir m.a. viðrað hvort
KEA færi dómstólaleiðina vegna skrifanna?
Hvaða atriði eru það ef rétt er, sem þú telur
falla undir meiðyrði í grein Hjörleifs?
„Já, það er rétt að ég hafði samband við
viðkomandi en illur var ég ekki. Í greininni
eru bornar á mig sem einstakling sem og
formann félagsins ásakanir um að misnota
aðstöðu okkar hjá KEA til að hygla ýmist
sjálfum okkur eða meintum vinum á kostnað
KEA. Það er illt við það að búa að opinber-
lega séu bornar fram tilhæfulausar ásakanir
á einstaklinga sem byggðar eru á kjaftasög-
um eða rangfærslum. Þetta snýr því að mér
persónulega ekki síður en KEA og af þeirri
ástæðu átti ég samtal við greinarhöfund þar
sem ég leiðrétti rangfærslur og spurði hvað
honum gengi til með þessum ávirðingum á
mig sem einstakling og hvort hann áttaði sig
á því að þarna væri mögulega verið að birta
meiðandi ummæli. Hvorki ég sem einstak-
lingur, formaður félagsins eða KEA munu elta ólar við
skoðanir greinarhöfundar. Hann hefur og mun áfram
fjalla um KEA og þá sem þar starfa og er það að sjálf-
sögðu frjálst. Rangfærslur dæma sig hins vegar sjálfar,“
svarar framkvæmdastjóri KEA.
Sjá grein Hjörleifs bls. 8
–BÞ
Ekki hægt að lofa nafn-
leynd og rjúfa hana svo
Töluverðrar óánægju gætir með að
stjórn nýstofnaðs Menningarfélags
Akureyrar hafi ákveðið að birta ekki
nöfn umsækjenda sem
sóttu um nýja fram-
kvæmdastjórastöðu
hjá félaginu. Stefnt
er að ráðningu fram-
kvæmdastjóra á næstu
dögum en alls sótti 21
um. Fimm manns eru
komnir í lokaúrtak
en ákvörðun verður
kynnt eftir helgi.
Félagið er sjálfs-
eignastofnun og var
myndað við samein-
ingu Leikfélags Akur-
eyrar, Sinfóníuhljóm-
sveitar Norðurlands
og Menningarfélagsins Hofs. Rök
félagsins að birta ekki nafnalista
eru að ekki sé um að ræða opinbert
starf. Því hafa margir mótmælt á
opinberum vettvangi. Fyrrum bæj-
arfulltrúi á Akureyri, Oddur Helgi
Halldórsson, telur að félagið byrji
ekki starfsemi sína vel. „Það getur
vel verið að þurfi ekki
að birta lista yfir um-
sækjendur, en það er
algjörlega siðlaust að
gera það ekki,“ segir
Oddur Helgi í um-
ræðu um málið á eigin
facebook síðu. Hann
bendir á að félagið sé
að mestu rekið fyrir
fé úr sameiginlegum
sjóðum bæjarbúa og
ætti því að haga sér
sem slíkt.
Kristján Arngríms-
son, doktor í heim-
speki, segir í umræðu
um málið: „Væntanlega er þarna
nafnleynd vegna þess að einhverjir
umsækjendur eru í vinnu annar-
staðar og vilja ekki að þar fréttist
að þeir hafi sótt um. Líklega eru
þetta vinir þeirra sem ráða þessu
félagi og það er vinargreiði að birta
ekki nöfnin.“ Fram kemur einnig að
málið sé „lágkúrulegt“ og bendi til
óheilinda, því skattborgarar muni
greiða laun framkvæmdastjórans.
Fleiri kalla eftir auknu gagnsæi
og benda á að sá sem verði ráðinn
sé settur í erfiða stöðu með svona
pukri.
LÖGLEGT – EN SIÐLEGT ÁLITAEFNI
Sigurður Kristinsson er formaður
Menningarfélagsins. „Það eru sterk
rök fyrir því að birta nöfnin og við
hefðum vel viljað gera það en okk-
ur bar ekki lagaleg skylda til þess,“
segir Sigurður.
Spurður hvort nafnalisti sé ekki
akkílesarhæll allra opinberra ráðn-
inga og að það sé einfaldlega eitt-
hvað sem menn verði að lifa með
segir Sigurður að siðlega sé málið
umdeilanlegt. Rökin að birta ekki
nöfnin hafi verið að umsækjendur
hafi sýnt áhuga á umsókn en þá að-
eins að með því skilyrði að nöfnin
yrðu ekki gerð opinber.
„Við vildum fá eins marga sterka
umsækjendur og völ var á og töld-
um mjög brýnt að ráða hratt hæf-
an framkvæmdastjóra. Þess vegna
ákváðum við að setja það í forgang
að missa ekki af sterkum umsækj-
endum. Þegar búið er að lofa nafn-
leynd rýfur maður ekki nafnleynd.“
-BÞ
SLEIPUR ÞJÓFUR Í APÓTEKI
Gauti Einarsson apótekari í Akueyrarapóteki segir að ítrekað hafi þjófur
náð að stela sleipiefni úr apótekinu. Hann hefur tjáð sig um málið með
húmorískum hætti og sagði m.a. í færslu á facebook:
„À èg að segja ykkur? Haldið ekki að sleipiefnabófinn hafi látið á sér
kræla að nýju akkúrat 2 vikum eftir síðasta áhlaup. En hann rann mér sem
fyrr úr greipum. Það gerir ein vika per brúsa sem verður að teljast nokkuð
gott hjá honum. Samstarfskonur mínar eru allar komnar með Stokkhólms-
heilkennið og finnst ég bara ómenni að vilja góma hann. En ég skal ná í
“skottið” á honum þótt síðar verði.“
Gauti segir að í aðdraganda þess að sleipiefnaræninginn lét til skarar
skríða öðru sinni, hafi þjófurinn spurst ítarlega fyrir um tannlím til að villa
um fyrir samstarfskonu sinni.
„Það hefði óneitanlega getað boðið upp á makleg málafjöld ef hann
hefði svo ruglast og hnuplað tannlíminu.“ -BÞ
Felgulökkun
Sandblásum og lökkum felgur undir öll farartæki.
Haf ið samband og kynn ið ykkur mál ið !
D r a u p n i s g a t a 7 m l s í m i 4 6 2 - 6 6 0 0 / 8 9 7 - 8 4 5 4 l p o l y a k @ s i m n e t . i s
Áttu vandaðar felgur
sem farnar eru að láta á sjá?
Notum innbrennda duftlökkun sem er
slitsterkasta lökkunaraðferð sem býðst og
hentar því einstaklega vel til lökkunar á
bílfelgum.
Það borgar sig að láta okkur duftlakka
gömlu felgurnar og gera þær sem nýjar.
Lökkum / húðum einnig alla málma og gler.
Er ekki tímabært að lagfæra felgurnar fyrir veturinn?
GUNNAR VINNUR AÐ BÆTTU LÆSI
Gunnar Gíslason, sem sagði eftir kosn-
ingar lausri stöðu sinni sem fræðslu-
stjóri á Akureyri, hefur tekið til starfa
í verkefnahópi í mennta- og menn-
ingarmálaráðuneytinu þar sem Illugi
Gunnarsson, menntamálaráðherra
Sjálfstæðisflokksins ræður ríkjum.
„Það var óskað eftir því að ég
tæki sæti í verkefnahópi sem tengist
Hvítbók mennta- og menningarmála-
ráðherra og á að vinna aðgerðaáætl-
un um bætt læsi. Þar sit ég ásamt
7 öðrum sem allir fengu samskonar
boð og ég. Þetta er er ekki ráðning í
þeim skilningi en greidd þóknun fyrir
vinnuframlag eins og svo oft þegar
um slíka hópa er að ræða sem vinna
afmarkað verk á stuttum tíma,“ segir
Gunnar.
Soffía Vagnsdóttir var ráðin
fræðslustjóri í stað Gunnars og er hún
í þann mund að flytja frá Vestfjörð-
um til Akureyrar til að gegna nýjum
starfa sínum. Gunnar er oddviti sjálf-
stæðismanna á Akureyri. Listi þeirra
fékk 3 menn í síðustu bæjarstjórnar-
kosningum en situr í minnihluta. -BÞ
Sigurður Kristinsson.
Nokkrir dagar í að nýr
framkvæmdastjóri Menn-
ingarfélags Akureyrar verði
kynntur. Ráðningarferlið
hefur skapað óánægju.
Hjörleifur Hallgríms
Halldór Jóhannesson