Fréttatíminn


Fréttatíminn - 25.07.2014, Side 2

Fréttatíminn - 25.07.2014, Side 2
Á dagskrá Þjóðhátíðar í Vest-mannaeyjum eru karlar mikill meirihluti þeirra sem stígur á stokk á kvöldvökunum. Að sögn Védísar Hervarar Árnadóttur, formanns KÍTÓN, félags kvenna í tónlist á Íslandi, er það ekki nýlunda að fáar konur komi fram á Þjóðhátíð í Eyjum. „Svona var þetta líka í fyrra og árin þar á undan. Ég trúi því þó ekki að þetta sé vilj- andi gert af skipuleggjendum að sniðganga tónlistarkonur og auðvitað ganga þeir út frá því að fá þá inn sem þykja vinsælastir hverju sinni en hlutdrægnin spilar alltaf sitt hlutverk. Rótin að skekkjunni liggur ef til vill dýpra en þar því að samkvæmt rannsóknum innan kynjafræði er erfiðara fyrir sjálfstætt starf- andi tónlistarkonur að fá spilun í útvarpi og umfjöllun í fjölmiðl- um og það er ekki einsdæmi á Íslandi. Tónleikahaldarar geta svo skýlt sér á bak við það að hafa bókað vinsælustu tónlistar- mennina. Það skýrir þó ekki hvers vegna vinsælar tónlistar- konur eru ekki á dagskránni í Eyjum. Kannski er það eitt- hvað sem er staðbundið þarna í Eyjum og mætti færa rök fyrir því að hátíðinni sé algjörlega í sjálfsvald sett að velja inn sína listamenn án svona kvabbs frá femínistum en þetta er fordæm- isgefandi og allt morandi í fyrir- myndum ungra stúlkna og þar liggur kannski ábyrgðin helst,“ segir hún. Védís telur lausnina þó ekki felast í kynjakvótum heldur vilji þær í KÍTÓN höfða til almennr- ar skynsemi. „Finnst okkur þetta í lagi? Það er vel hægt að ná fram hugarfarsbreytingu í tónlist, eins og að einhverju leyti hefur tekist í stjórnum fyrirtækja og í íþróttum.“ Ekki náðist í skipuleggj- endur hátíðarinnar við vinnslu fréttarinnar. -dhe Þetta er mjög krefjandi kappreið og ég er orðin mjög spennt. A níta Margrét Aradóttir mun taka þátt í lengstu og erfiðustu kapp-reið í heimi, í Mongolíu í ágúst. 45 reiðmenn alls staðar að úr heiminum taka þátt í Mongol Derby kappreiðinni sem er 1.000 kílómetra löng og jafnframt talin sú hættulegasta sem til er. Keppendur ríða mongólskum villihestum sem eru lítt eða ekkert tamdir en skipt verður um hest á 40 kílómetra fresti svo að hestarnir þreytist ekki. Aníta er fyrsti Íslendingurinn sem tekur þátt í Mongol Derby reiðinni en hún mun styrkja barnaspítalasjóð Hringsins í reiðinni í Mongólíu. „Þetta er mjög krefjandi kappreið og ég er orðin mjög spennt. Ég sótti upphaflega um að taka þátt í keppninni á næsta ári en það losnuðu skyndilega pláss í keppnina núna í ár þannig að ég sló til. Ég fæ mun styttri undirbúningstíma en hinir knaparnir en þeir voru valdir í október á síðasta ári. Ég ætla að gera mitt allra besta og stefnan er auðvitað að klára kappreiðina og komast alla þessa 1.000 kilómetra á sem bestum tíma,“ segir Aníta. Hún er lærður tamninga- maður frá Háskólanum á Hólum og hefur starfað sem tamningamaður í 16 ár. Auk þess er hún reiðkennari að mennt. Aníta hefur starfað mikið erlendis, bæði í Evrópu og Bandaríkjunum, bæði við að þjálfa ís- lenska hesta og sýna þá á hestasýningum. Mongol Derby reiðin hefur verið haldin undanfarin sex ár og hefur reynst mörgum knöpum ofviða vegna hinnar erfiðu og löngu reiðar. „Ég er ekkert smeyk þrátt fyrir að þetta sé löng, erfið og hættuleg leið. Ég er full af baráttuanda og bjartsýni. Ég lít á þetta sem mikið ævintýri,“ segir hún. Mjög mikill kostnaður fylgir því að taka þátt í Mongol Derby reiðinni. Bæði þarf Aníta að greiða keppnisgjald og ferðagjöld en hún segir að vel gangi að fjármagna ferðina. Keppendum í Mongol Derby ber skylda til að safna hvatningarstyrkjum og mun Aníta safna fyrir fyrir Barnaspítalasjóð Hringsins. Einnig mun hún safna pening- um til styrktar góðgerðarfélagsins Cool Earth sem vinnur að verndun regnskóga Amazon. ,,Allir sem taka þátt í kappreiðinni þurfa að safna fyrir Cool Earth en svo mátti ég velja annað góðgerðarfélag sjálf. Ég vildi velja góðgerðarmál sem hvetur mig áfram og ég veit að Barnaspítalasjóður Hringsins mun gera það,“ segir Aníta en hún verður að ná ákveðnu lágmarki í söfnuninni og verður hún að hafa náð því mánuði eftir að keppninni lýkur. Hægt er að heita á Anítu með fjárframlög- um með því að leggja inn á reikning 515- 26-253774 til að styrkja Barnaspítalasjóð Hringsins og 515- 26- 253778 til að styrkja Cool Earth. Sama kennitala er á báðum reikningunum: 200282-3619. Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is  íþróttir AnítA MArgrét ArAdóttir tekur þÁtt í Mongol derby Keppir í hættulegustu kappreið í heimi Alls keppa 45 reiðmenn í þúsund kílómetra langri kappreið í Mongólíu. Knaparnir ríða lítt eða ekki tömdum mongólskum villihestum. Með reiðinni styrkir Aníta Margrét barnaspítala Hringsins. Aníta Margrét Aradóttir í fullum skrúða á hestbaki við félagsheimili Fáks í gær. Hún mun keppa á öllu villtari skepnum í Mongólíu í næsta mánuði, lítt eða ekki tömdum villihestum. Mynd Teitur Borgartúni 28, 105 Reykjavík | sími 553-8331 25 % 25 % af slá ttu r af slá ttu r 10 o g 30 st k. p ak kn in ga r 10 o g 30 st k. pa kk ni ng ar 30 st k. p ak kn in g 10 mg Loratadin 10 og 30 töflur Ódýrt frá Flestir fluttu til Noregs Alls fluttu 190 Íslendingar til Noregs á öðrum ársfjórðungi ársins, samkvæmt tölum Hag- stofunnar, og var Noregur helsti áfanga- staður brottfluttra Ís- lendinga á tímabilinu. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 430 íslenskir ríkis- borgarar af 650 alls. Af þeim 680 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 140 manns. Alls fluttu 130 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu. -sda Aukinn kaupmáttur launa Launavísitala í júní 2014 hækkaði um 0,5% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 5,4%, að því er Hagstofa Íslands greinir frá. Vísitala kaup- máttar launa í júní hækkaði um 0,1% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 3,1%. - jh Seljalandsfoss fær viður- kenningu TripAdvisor Seljalandsfoss hefur hlotið viðurkenningu frá ferðamálavefnum TripAdvisor sem einn af þeim ferðamannastöðum í heiminum sem fær stöðugt góðar athugasemdir inni á vef þeirra. Þetta kemur fram á vefnum sunn- lenska. TripAdvisor er einn af stærstu ferða- miðlum heims með yfir 100 milljón notendur. Á síðunni gefa ferðalangar stöðum, afþrey- ingu, hótelum og fleira einkunn sem aðrir ferðamenn geta svo nýtt sér, að því er fram kemur á vefnum. -sda Hanarán á Eyrarbakka Hananum Gullkambi var rænt af heimili sínu á Eyrarbakka, að því er fram kemur á vefnum sunnlenska.is. Haft er eftir eigand- anum, Helgu Sif Sveinbjarnardóttur, sem býr í Sóltúni á Eyrarbakka, að hans sé sárt saknað. „Ég ætlaði ekki að trúa því að það væri búið að stela hananum þegar ég fór að vitja um hænurnar,“ segir hún í viðtali við vefinn. „Það hefur ekki minkur drepið hann því það er allt í lagi með allar hænurnar og engar fjaðrir að sjá,“ segir hún. „Gullkambur er ekki bara fallegur heldur sérstaklega gæfur enda stendur hann stundum á höfðinu á mér,“ bætir Helga Sif við. Myndin við fréttina er tekin af vef Sunn- lenska. -sda Veiða nær helmingi meira Heildarveiði íslenskra skipa var um 40% meiri í júní 2014 en í sama mánuði árið 2013, samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands. Botnfiskafli var almennt nokkuð meiri en í júní í fyrra og kolmunni veiddist einnig mun betur. Þegar borin eru saman 12 mánaða tímabil á milli ára kemur í ljós nokkur minnkun í bæði botnfisk- og upp- sjáfarafla á milli ára. -sda Lögreglustjóri til Reykjavíkurborgar Stefán Eiríksson lögreglustjóri var í gær ráðinn sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og tekur hann til starfa þann 1. september. Stefán hefur starfað sem lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins frá árinu 2007 en á árunum 2002-2007 var hann skrifstofustjóri og staðgengill ráðuneytisstjóra dóms- og kirkjumálaráðu- neytis. Stefán lauk embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands í febrúar 1996 og hdl. 1997. Hann hefur sótt fjölmörg námskeið, sinnt kennslu í lögfræði á háskólastigi og verið fyrirlesari á ýmsum vettvangi, m.a. í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að Stefán hafi verið talinn uppfylla best allra umsækjenda þær kröfur sem gerðar eru til starfs sviðsstjóra velferðarsviðs  verslunArMAnnAhelgin tónlistArflutningur í vestMAnnAeyjuM Rýr hlutur kvenna á dagskrá Þjóðhátíðar Formaður KÍTÓN gagnrýnir hversu fáar konur stíga á stokk á Þjóðhátíð í Eyjum. Ljósmynd/GettyImages/ NordicPhoto 2 fréttir Helgin 25.-27. júlí 2014

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.