Fréttatíminn - 25.07.2014, Síða 4
S igríður Björk Guðjóns-dót t ir verður f yrsta konan sem gegnir emb-
ætti lögreglustjóra á höfuð-
borgarsvæðinu. Hún hefur
gegnt embætti lögreglustjóra
á Suðurnesjum frá árinu 2009.
Sigríður segir gaman að vera
fyrsta konan sem gegnir emb-
ættinu á höfuðborgarsvæðinu
og að nýju fólki fylgi alltaf nýjar
áherslur svo væntanlega verði
gerðar einhverjar breytingar
þegar hún tekur við. „Ég á von
á að innleiða einhverjar af þeim
áherslum sem við erum með á
Suðurnesjum en það er enn of
snemmt að skýra nánar frá því.
Mitt fyrsta verk verður að taka
stöðuna með samstarfsfólkinu.
Ég hlakka til að vinna með nýju
samstarfsfólki og í þágu borgar-
búa,“ segir hún.
Aðspurð hvort konur sem
gegni embætti lögreglustjóra
séu almennt með aðrar áherslur
en karlar segir hún erfitt að
svara því þar sem einstaklingar
séu mismunandi. „Það er æski-
legt að í efstu lögunum sé blönd-
un og að í yfirmannastöðunum
séu bæði karlar og konur.“
Verkefni lögregluembættis-
ins á höfuðborgarsvæðinu er
mun umfangsmeira en á Suð-
urnesjum en Sigríður segir
eðli starfseminnar þó mjög
áþekkt. „Embætti lögreglu-
stjóra á Suðurnesjum sker
sig úr vegna flugvallarins, en
þar hafa verið miklar áskor-
anir þar sem umferð um flug-
völlinn hefur aukist verulega
undanfarin ár.“ Í tengslum
við starfsemina á Keflavíkur-
flugvelli sat Sigríður í stjórn
Frontex, landamærastofnun-
ar Evrópu, og segir það hafa
verið mjög áhugaverðan vett-
vang.
Sigríður hefur verið lög-
reglustjóri á Suðurnesjum frá
árinu 2009, en áður hefur hún
starfað sem aðstoðarríkis-
lögreglustjóri, sýslumaður á
Ísafirði og skattstjóri á Vest-
fjörðum. Hún er menntaður
lögfræðingur frá HÍ og er með
meistarapróf í Evrópurétti frá
Háskólanum í Lundi. Þá er
hún með diplómagráðu í stjór-
nun frá Lögregluskóla ríkis-
ins og í opinberri stjórnsýslu
frá HÍ. Eiginmaður hennar er
Skúli Ólafsson, sóknarprestur
í Keflavík, og eiga þau hjónin
þrjú börn.
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
veður FöStudagur laugardagur Sunnudagur
Smá væta v- og Sv-lanDS, En léttSkýjað
na- og a-til.
HöfuðborgarSvæðið: RigniR fRaman af
degi, en síðan að mestu þuRRt.
Hæglæti og rofar til. Hafátt og SuDDi mEð
na-StrönDinni.
HöfuðborgarSvæðið: nokkuð bjaRt, en
hafgola.
Hægur v-vinDur og yfirlEitt þurrt. Sól
Einkum Sa- og S-lanDS.
HöfuðborgarSvæðið: skýjað með köflum, en
þuRRt.
ágætt útlit og Suður-
land stendur upp úr
smám saman þornar s- og V-lands, en þó
ekki fyrr en á laugardag. lægðin þaul-
setna suðvestur af landinu hverfur loks
af öllum veðurkortum og í staðinn verður
hæðarhryggur með vestlægu
lofti. Á laugardag er útlit
fyrir þurrt veður um nánast
allt land og víða sól, einna
hlýjast s- og sa-lands
að þessu sinni. svipað á
sunnudag. þessa daga
verður frekar skýjað úti
við n- og na-ströndina.
13
13 17
20
12
14
12 11 15
17
13
11 15 15
18
Einar Sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
líkið er af
bandaríkjamanninum
kennsla nefnd rík is lög reglu stjóra hef ur
staðfest að lík manns ins sem fannst við
háöldu suðvest ur af land manna laug um
sé af banda ríkja mann in um nath an samu el
foley-mendels sohn. hann hvarf 10. sept-
ember síðastliðinn.
Celtic ofjarl kR
íslandsmeistarar
kR eru úr leik í for-
keppni meistara-
deildar evrópu í
knattspyrnu eftir
4-0 ósigur í glasgow
á þriðjudaginn.
Celtic vann fyrri leikinn hér heima 1-0 og
því samanlagt 5-0.
(18191 kR lógó)
norðurlandalánið greitt
upp
Ríkissjóður og seðlabanki íslands endur-
greiddu fyrr í vikunni 114 milljarða króna
lán sem ísland fékk hjá norðurlöndunum
haustið 2008. Lánið var upphaflega á
gjalddaga á árunum 2019, 2020 og 2021.
fjármagnið sem notað var til endur-
greiðslunnar er afrakstur af sölu ríkissjóðs
á skuldabréfum í evrum fyrr í mánuðinum.
þar með hafa lán frá norðurlöndunum,
í kjölfar hrunsins, að fullu verið endur-
greidd. samtals námu þau 1.775 milljónum
evra, jafnvirði ríflega 276 milljarða ís-
lenskra króna.
Tal og 356 stefna að
sameiningu
Viðræður hafa staðið
yfir milli 365 miðla og
tals um sameiningu
félaganna undir merkjum 365. Viljayfir-
lýsing þess efnis hefur verið undirrituð. slík
sameining er háð samþykki samkeppnis-
eftirlitsins og Póst- og fjarskiptastofnunar.
Meira rigndi 1885 og 1926
Úrkoma í Reykjavík í júlí hafði mælst
76,4 millimetrar á þriðjudaginn. Íbúar á
sunnan- og vestanverðu landinu eru orðnir
langþreyttir á rigningunni en ólíklegt er þó
að þessi mánuður slái úrkomumet, að því er
fram kemur hjá trausta jónssyni veður-
fræðingi. talsvert langt þarf þó að fara aftur
í tímann til samanburðar en meira rigndi í júlí
1885 og 1926. Júní var hins vegar næstblau-
tasti júní frá því að mælingar hófust í höfuð-
borginni. aðeins júní 1899 slær hann út.
Vegakerfið fari í
forgang
brýnt er að huga að viðhaldi vega næstu
árin, að því er fram kemur hjá
hönnu birnu kristjánsdótt-
ur innanríkisráðherra.
Vegamálastjóri hefur
lýst því yfir að vegna
ónógs viðhalds sé hætta
á að vegakerfið brotni
smám saman niður
og verði hættulegt
umferðinni.
vikan Sem var
Skriða féll í öskjuvatn
Rúmlega kílómetra breið spilda féll úr fjalli við öskju aðfararnótt þriðjudags. hluti
skriðunnar lenti ofan í Víti. Nokkrar 50 metra háar flóðbylgjur skullu á klettunum
umhverfis vatnið. Hrunið varð í suðaustanverðri öskjunni. Ljóst er að tugmilljónir
rúmmetra hafa fallið ofan í vatnið. mildi þykir að enginn ferðamaður var nærri þegar
skriðan féll. göngu leiðin norðan með öskju vatni er lokuð.
sigríður björk guðjóns-
dóttir tekur á næstunni
við embætti lögreglu-
stjóra höfuðborgar-
svæðisins. frá árinu 2009
hefur hún gegnt embætti
lögreglustjóra á suður-
nesjum.
lögreglan Sigríður lögregluStjóri á höFuðborgarSvæðinu
Kona ráðin til að
stjórna karlaveldi
sigríður björk guðjónsdóttir mun á næstunni taka við embætti lögreglustjóra á höfuðborgar-
svæðinu. Hún segir æskilegt að í efstu lögunum sé blöndun og að í yfirmannastöðum séu bæði
karlar og konur.
Ég á von
á að inn-
leiða
einhverjar
af þeim
áherslum
sem við
erum með
á Suður-
nesjum.
STÍGVÉLABÚÐIN
STÍGVÉLABÚÐIN
STÍGVÉLABÚÐIN
STÍGVÉLABÚÐINSTÍGVÉLABÚÐIN
STÍGVÉLABÚÐIN
Vertu smart í stígvélum!
Álfabakka 14a í Mjódd · 109 Reykjavík · Sími: 527 1519
4 fréttir helgin 25.-27. júlí 2014