Fréttatíminn - 25.07.2014, Síða 6
– Reykjavík – Akureyri –
E i t t s í m a n ú m E r 5 5 8 1 1 0 0
– Komdu núna –
TAXFREE
DAGAR
20,32% afsláttur af öllum vörum
– EKKI mISSa aF ÞESSu –
að sjálfsögðu fær ríkissjóður 25.5% virðisaukaskatt af söluverði.
20,32% afslátturinn er alfarið á kostnað Húsgagnahallarinnar.
Brighton – 3jA sætA sófi – Eik & LEðuR
taxfrE
E vErð
!
254.972
Krónu
r
taxfrEE vErð!
10.350
Krónur
aros
stóll,
margir litir ivv spEEdy
skálar,
6 í setti
taxfrEE vErð!
12.741
Krónur
Hvað er nálgunarbann?
Lögreglustjóri eða löglærður fulltrúi hans
tekur ákvörðun um nálgunarbann og/eða
brottvísun af heimili. Lögreglustjóri skal
bera ákvörðunina undir héraðsdóm til stað-
festingar svo fljótt sem auðið er.
dómsmál lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Þegar kona
stígur fram
og segir frá
ofbeldi eða
lögregla er
kölluð inn á
heimili fer í
gang miklu
markviss-
ara ferli en
annars.
b orgarstjórn samþykkti í vor að beita sér fyrir átaki gegn heimilisofbeldi. Slíkt átak gaf góða raun á Suður-
nesjum þar sem árangur hefur náðst með
víðtæku samstarfi og bættu verklagi.
Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni
á höfuðborgarsvæðinu er undirbúningur
hjá embættinu kominn vel á veg. Nákvæm
tímasetning um hvenær átakið hefst með
formlegum hætti liggur ekki fyrir en þar
á bæ er vonast til að það verði á haustmán-
uðum eða í síðasta lagi um næstu áramót.
Eitt af markmiðum átaksins á Suðurnesjum
var að nýta betur úrræði um nálunarbann
og brottvísun af heimili og ná fleiri málum
í gegnum refsivörslukerfið. Á meðan
átaksverkefnið á Suðurnesjum stóð yfir,
tímabilið 1. febrúar 2013 til 1. febrúar 2014,
bárust lögreglunni þar 56 tilkynningar um
heimilisofbeldi. Í 14 málum tók lögreglu-
stjórinn ákvörðun um brottvísun af heimili
og/eða nálgunarbann en einu tilviki var
síðar hafnað af héraðsdómi. Lögregluemb-
ættinu á höfuðborgarsvæðinu bárust 255
tilkynningar um heimilisofbeldi árið 2013
og 16 beiðnir um nálgunarbann og voru 12
þeirra samþykktar.
Að sögn Sigþrúðar Guðmundsdóttur,
fræðslu- og framkvæmdastýru Samtaka
um kvennaathvarf, hafa slík átaksverkefni
mikla þýðingu fyrir konur í ofbeldissam-
böndum. „Þegar kona stígur fram og segir
frá ofbeldi eða lögregla er kölluð inn á
heimili fer í gang miklu markvissara ferli
en annars. Að málinu koma ýmsir aðilar
sem konan þyrfti annars að leita sérstak-
lega til og það skiptir gríðarlega miklu
máli. Í átaksverkefnum sem þessum felst
viðurkenning á því að þetta sé flókið verk-
efni sem oft þarf víðtæka aðstoð við að
leysa,“ segir hún.
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
Undirbúa átak gegn
heimilisofbeldi
Síðar á árinu hefst átak gegn heimilisofbeldi á höfuðborgarsvæðinu en slíkt átak gaf
góða raun á Suðurnesjum. Framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf segir slík
átaksverkefni fela í sér viðurkenningu á því að það að losna úr ofbeldissambandi sé
flókið verkefni sem oft þurfi víðtæka aðstoð við að leysa.
Sigþrúður Guðmundsdóttir, fræðslu- og fram-
kvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf.
Tilkynningar um heim-
ilisofbeldi árið 2013
56
Suðurnes
255
Höfuðborgarsvæðið
Úrskurðir um nálgunar-
bann og/eða brottvísun
af heimili árið 2013
13
Suðurnes
12
Höfuðborgarsvæðið
Síðar á árinu hefst átaksverkefni gegn heimilisofbeldi á höfuðborgarsvæðinu. Á Suður-
nesjum náðist góður árangur með slíku átaki. Eitt markmiðanna á Suðurnesjum var
að nýta betur úrræði um nálgunarbann og brottvísun af heimili og ná fleiri málum í
gegnum refsivörslukerfið. Ljósmynd/NordicPhoto/GettyImages
samgöngur nýskráningar fólksbíla
Bílaleigur kaupa 40 prósent nýrra fólksbíla
r úmlega sex þúsund fólkbifreiðar hafa
verið nýskráðar að
sem af er árinu sem er
nálægt því að vera jafn
mikið og allt árið í fyrra
er þær voru rúmlega sjö
þúsund, samkvæmt töl-
um frá Samgöngustofu.
Mest var salan í maí og
júní síðastliðnum þegar
um tvö þúsund fólksbif-
reiðar voru nýskráðar,
í hvorum mánuði. Að
sögn Björns Ragnars-
sonar, framkvæmda-
stjóra bílasviðs Bíla-
búðar Benna, er helsta
skýringin á söluaukn-
ingunni sú að bílaleigur
hafi keypt stóran hluta
nýrra fólksbifreiða að
undanförnu. „Aukning
á almennri sölu er ekki
nema 8,2% á milli ára.
Bílaleigurnar kaupa
nú um fjörutíu prósent
allra nýrra fólksbíla
samanborið við 15 pró-
sent fyrir hrun,“ segir
hann.
Björn segir algengt
að bílaleigur selji bíla
sína eftir eins til eins
og hálfs árs notkun.
„Nýlegir bílar koma því
á bílasölurnar sem er
jákvætt fyrir almenning
sem er að endurnýja
bíla sína því það er ekki
á allra færi að kaupa
splunkunýjan bíl.“
dagnyhulda@frettatiminn.is
Aukning á
kaupum al-
mennings og
fyrirtækja á
nýjum fólks-
bílum er um
8,2%.
Ljósmynd/
GettyImages/
NordicPhoto
Nýskráningar
fólksbifreiða
2014 6.207 Janúar til júní
2013 7.267
2010 3.095
2007 15.944
6 fréttir Helgin 25.-27. júlí 2014