Fréttatíminn - 25.07.2014, Page 14
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Sigríður Dögg
Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is. Fréttastjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@
frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
Þ egar farþegar koma sér fyrir í flugvél treysta þeir því að áhöfnin sé vel þjálfuð, að reglum um viðhald vélarinnar sé fylgt og flugumsjón-armenn séu starfi sínu vaxnir. Þessu er vel fylgt eftir. Þess vegna er flug öruggur ferða-
máti, þótt aldrei sé hægt að koma í veg fyrir
öll slys, ekki frekar í flugi en öðru. Ástæðan
getur verið óvænt bilun eða mannleg mistök.
Fáir leiða hins vegar hugann að því að
farþegaflugvél í fullri flughæð,
jafnvel með mörg hundruð
manns innanborðs, sé grandað
með flugskeyti. Þess vegna er
árásin á malasísku farþega-
þotuna yfir Úkraínu svo mikið
áfall. Hörmulegt manntjónið
snertir fólk hvarvetna.
Því miður er það ekki eins-
dæmi að farþegavélar séu
skotnar niður og dæmi eru um
atburði svipaða þeim sem varð
í liðinni viku, þar sem flugvélar
flugu yfir átakasvæði. Þá hafa farþegavélar
sem villst hafa inn í lofthelgi hernaðarvelda
hlotið sömu örlög, auk þeirra sem skotnar
hafa verið niður vegna einhvers konar hern-
aðarmistaka.
Í kjölfar atburðar eins og í Úkraínu velta
ýmsir því fyrir sér af hverju farþegavélin hafi
flogið yfir átakasvæði – einkum vegna þess
að flugvélar frá sumum löndum sneiddu hjá
flugleiðinni. Það eru eðlilegar vangaveltur
en það breytir ekki því að flugleiðin var opin,
hún var tiltölulega fjölfarin og fjölmörg flug-
félög önnur en malasíska flugfélagið flugu
sömu leið.
Hinn hörmulegi atburður í lofthelgi Úk-
raínu hlýtur að hafa afleiðingar, auk þeirra
sem snúa beint að flugrekendum. Ómögulegt
er á þessari stunda að segja fyrir um hverjar
þær verða – en allra augu beinast að Rúss-
landi, einkum Pútín forseta. Þótt atburðarás
voðaverksins hafi enn ekki verið staðfest
bendir flest til þess að farþegavélin, með 298
manns um borð, hafi verið skotin niður af
aðskilnaðarsinnum í Úkraínu, með flugskeyti
sem Rússar hafi útvegað þeim. Rússar segja
á hinn bóginn að stjórnvöld í Úkraínu beri
ábyrgðina.
Hvað svo sem Pútín Rússlandsforseti
segir breytir það ekki því að Rússland, undir
hans stjórn, ber þunga ábyrgð á því stríðs-
ástandi sem ríkir í Úkraínu. Hann sætti sig
illa við það að Úkraína færði sig nær öðrum
Evrópuríkjum en ríkið öðlaðist sjálfstæði
eftir fall Sovétríkjanna. Fyrr á þessu ári færði
Rússlandsforseti Evrópu á nýjan leik í búning
kalda stríðsins þegar úkraínskt yfirráðasvæði
á Krímskaga var með hervaldi fært undir
rússnesk yfirráð. Jafnframt hafa Rússar stutt
aðskilnaðarsinna í austurhluta Úkraínu með
beinum og óbeinum hætti. Framferði Rússa
minnti Evrópumenn á að öryggi í álfunni er
ekki tryggt.
Vestrænar þjóðir svöruðu yfirgangi Rússa
með efnahagsþvingunum og útilokun að
hluta í samstarfi stórþjóða. Það hefur ekki
dugað gagnvart yfirgangi Pútíns Rússlands-
forseta. Tortíming malasísku farþegaþot-
unnar kann hins vegar að reynast honum
þyngri í skauti en þær aðgerðir, sama hver
niðurstaða rannsóknar á voðaverkinu verður.
Það mun veikja stöðu Rússlandsforseta á
alþjóðavettvangi leiði rannsókn það í ljós að
vélinni hafi verið grandað með flugskeyti
sem Rússar útveguðu aðskilnaðarsinnum. Á
það var meðal annars bent í fréttaskýringu
í Morgunblaðinu, þar sem stuðst var við álit
sérfræðinga, að hafni Pútín slíkri rannsókn-
arniðurstöðu og haldi áfram stuðningi við að-
skilnaðarsinna sé nánast öruggt að vestræn
ríki herði refsiaðgerðir sínar gagnvart Rúss-
landi. Þær geti haft alvarlegar afleiðingar
fyrir efnahag landsins, leitt til kreppu og
versnandi lífskjara.
Ákveði Pútín hins vegar að una slíkri niður-
stöðu og láta af stuðningi við aðskilnaðar-
sinna gæti það sömuleiðis haft alvarlegar
afleiðingar fyrir hann. Það mætti túlka, eftir
öflugan áróður heima fyrir, sem hugleysi.
Kannanir hafa sýnt mikið fylgi við Pútín
á heimaslóð eftir innlimun Krímskagans.
Rússlandsforseti gæti því staðið frammi fyrir
miklu fylgistapi hvorn kostinn sem hann
velur. Í þá stöðu hefur hann komið sér með
árásargirni og yfirgangi, stöðu sem hann sá
ekki fyrir áður en malasíska farþegaþotan var
skotin niður.
Afleiðingar árásarinnar á malasísku farþegaþotuna
Aðþrengdur Rússlandsforseti
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LOABOROTORIUM LóA hjáLMTýsdóTTIR
14 fréttir Helgin 25.-27. júlí 2014
Cheddar ostar
verða varla betri
en þessir
Leikskólastjóri óskast
Leikskólinn Barnaból á Skagaströnd auglýsir eftir leikskólastjóra frá og
með næsta skólaári. Leikskólinn er 30 – 40 barna, tveggja deilda skóli
sem ætlar að innleiða aðferðir og starfshætti Hjallastefnunnar í samstarfi
við Hjallastefnuna ehf. Nánari upplýsingar um leikskólann er m.a. að
finna á http://skagastrond.is/leikskoli.asp
Við leitum að jákvæðum einstaklingi sem er tilbúinn að taka þátt í
innleiðingu á Hjallastefnunni þar sem metnaður, gleði og kærleikur er
hafður að leiðarljósi. Viðkomandi þarf að vera leikskólakennari eða hafa
aðra uppeldismenntun, sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og hafa
brennandi áhuga á jafnrétti og lýðræði í leikskólastarfi.
Skólar Hjallastefnunnar starfa að sameiginlegum markmiðum eftir sömu
hugmyndafræði en sjálfstæði hvers skóla er mikið. Jafnréttisuppeldi,
skapandi hugsun, félagsþjálfun og einstaklingsstyrking eru innviðir
hugmyndafræðinnar sem við teljum að geti skipt sköpum í þroska
komandi kynslóða.
Áhugasamir sendi umsókn eða fyrirspurnir á netfangið
hjallastefnan@hjalli.is eða Magnús B. Jónsson í síma 455 2700,
magnus@skagastrond.is
VAKANDI!VERTU
blattafram.is VERNDARI BARNA Í 10 ÁR
55% þeirra sem beita stúlkur
kynferðislegu ofbeldi eru karlar
tengdir fjölskyldu þeirra.