Fréttatíminn


Fréttatíminn - 25.07.2014, Page 16

Fréttatíminn - 25.07.2014, Page 16
kannski aðrir unnið en hún sagðist þá bara ætla að hlaupa hraðar.“ Öll fjölskyldan er á kafi í íþróttum en Hinrik Snær, tvíburabróðir Þórdísar, æfir einnig frjálsar og badminton og hefur náð góðum árangri. Pabbi Þór- dísar er Steinn Jóhannsson sem á árum áður keppti í millivegalengdar hlaupum og hefur að undanförnu keppt í þríþraut og meðal annars átt Íslandsmetin í hálfum og heilum Járn- karli. Eldri systirin er um tvítugt og æfði áður sund af miklu kappi. Þá æfði afi Súsönnu og langafi Þórdís- ar frjálsar með FH á fyrstu árum frjálsíþróttadeildar- innar svo frjálsíþrótta tengingin nær langt aftur. Þórdís æfir enn eins og barn og er ekki í sér- stakri afreksþjálfun og segja foreldrarnir mjög mikilvægt að halda því þannig. „Við erum í góðu sambandi við þjálfarana sem eru alveg frábærir.“ Foreldrarnir mæta á nánast öll mót en bæði hafa þau mikla reynslu af frjálsíþrótta- þjálfun og aðstoða því stundum á mótum. „Það er samt erfitt að ætla að leiðbeina sínum eigin börnum. Þau eru ekki ánægð með það. Nema kannski í tæknigreinunum, eins og langstökki og þrístökki,“ segir Steinn. Góður árangur Anítu Hinriks- dóttur á hlaupabrautinni hefur eflaust ekki farið framhjá neinum og er fjölskyldan sammála um að hún hafi að mörgu leyti rutt braut- ina og vakið athygli fjölmiðla enn frekar á frjálsum íþróttum, ásamt því að vera góð fyrirmynd fyrir stúlkur í frjálsum. Þegar Þórdís er spurð hvort hún ætli að bæta metin hennar Anítu í framtíðinni segir hún: „Já, ég ætla að reyna það,“ án þess að hika. Dagný Hulda Erlendsdóttir dagnyhulda@frettatiminn.is Þ órdís Eva Steinsdóttir er fjórtán ára gömul stúlka úr Hafnarfirði sem þykir einstaklega efnileg í frjálsum íþróttum. Á undanförnum þremur árum hefur hún sett á sjötta tug Ís- landsmeta. Tvö metanna, í 300 og 800 metra hlaupum 14 ára stúlkna, átti mamma hennar, Súsanna Helgadóttir og höfðu þau staðið í yfir þrjátíu ár. Met mömmu sinnar í 800 metra hlaupi sló Þórdís fyrr í sumar á móti í Gautaborg í Svíþjóð. „Ég held að ég hafi verið ánægðust þegar metið féll og grét næstum því af gleði uppi í stúku þegar ég sá tímann hennar á töflunni. Þetta gerist ekki betra,“ segir Súsanna. Í gegnum tíðina hefur oft munað litlu að metið yrði slegið. Frá því Þórdís var tíu ára hefur því mikið verið gantast með það að ef til vill yrði það hún sem myndi á endanum ná að bæta metið. Þórdísi finnst félagslífið og fjöl- breytnin það skemmtilegasta við frjálsar íþróttir. „Það eru svo margar ólíkar og skemmtilegar greinar. Svo á ég líka mjög góðar vinkonur sem æfa með mér,“ segir Þórdís sem ekki lætur nægja að æfa frjálsar heldur er líka á fullu í fótbolta þar sem hún leikur í stöðu vinstri kantmanns. Æfingarnar skarast oft svo hún sleppir þeim til skiptis. 400 metra hlaup og þrístökk eru í mestu uppáhaldi hjá Þórdísi og hlakkar hún til að keppa í 400 metra grindahlaupi þegar hún eldist en í hennar aldursflokki er aðeins keppt í 300 metra grindahlaupi. Aðspurð um lykilinn að góðum árangri og hvort hún borði aðeins hollan mat segir Þórdís svo ekki vera. „Ég fæ mér nú bara eitthvað ef ég er svöng, svona venjulegan mat.“ Mamma hennar bætir við að ef til vill sé það karakterinn sem ráði miklu. „Þegar SANYL ÞAKRENNUR • RYÐGA EKKI • PASSA Í GÖMLU RENNUJÁRNIN • STANDAST ÍSLENSKT VEÐURFAR • AUÐVELDAR Í UPPSETNINGU • ÓDÝR OG GÓÐUR KOSTUR á mót kemur veit Þórdís alveg hvað hún vill, að vinna. Hún er mjög einbeitt og mikil keppnis- manneskja. Svona hefur þetta alltaf verið. Þegar hún var fjög- urra ára og tók þátt í víðavangs- hlaupi Hafnarfjarðar sagði hún að það væri góður dagur og að hún héldi að hún myndi vinna. Þá sagði ég henni að það gætu Á dögunum bætti Þórdís Eva Íslandsmet mömmu sinnar, Súsönnu Helgadóttur, í 800 metra hlaupi stúlkna. Metið hafði staðið í tæplega 31 ár. Ljósmynd/Teitur Þórdís Eva hefur sett á sjötta tug Íslandsmeta í frjálsum íþróttum og hlakkar til að fá að spreyta sig í 400 metra grindahlaupi þegar hún verður eldri. Bætir Íslandsmet mömmu sinnar Þórdís Eva Steinsdóttir, fjórtán ára stúlka úr Hafnarfirði, hefur sett fjölda Íslandsmeta í hinum ýmsu greinum frjálsra íþrótta. Á dög- unum bætti hún 31 árs gamalt met mömmu sinnar í 800 metra hlaupi í flokki 14 ára stúlkna. Hún setur markið hátt og stefnir að því að bæta fleiri met í framtíðinni. 16 íþróttir Helgin 25.-27. júlí 2014

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.