Fréttatíminn


Fréttatíminn - 25.07.2014, Síða 22

Fréttatíminn - 25.07.2014, Síða 22
Lausn - Þú ratar þangað ef þekkt heiti sveitarfélaganna eru tilgreind: www.siggaogtimo.is Demantshringur 1.36ct Verð kr 1.275.000.-  finndu sveitarfélagið Sundabyggð og fleiri byggðir Í Helgarpistli Fréttatímans fyrir hálfum mánuði var sett fram fróm ósk um að Keflavík hlyti fyrri sess en nafni bæjarins var fórnað við sameiningu sveitarfélaga á Suðurnesjum. Jafnframt var á það bent að enn þann dag í dag, tuttugu árum eftir sameiningu og nafnabreyt- ingu, færu allir til Keflavíkur – ekki Reykjanesbæjar. Þá var vakin athygli á ýmsum bæjar- og sveitarfélagsnöfn- um sem trauðla hafa slegið í gegn. Á hvaða leið eru menn til dæmis þegar þeir halda í Norðurþing eða Rangár- þing ytra? Óhætt er að segja að pistillinn hafi vakið viðbrögð og vonandi leyfist að vitna í tvo sómamenn málinu viðkom- andi. Jón Eysteinsson, fyrrverandi sýslumaður í Keflavík, sagði meðal annars í tölvupósti: „Nú er kominn tími til að vinna að því að breyta nafni bæjarins [Reykjanesbæjar] aftur í Keflavík...“ „... og leggja niður þetta nafn(skrípi), sem einungis að mig minnir 487 íbúar kusu á sínum tíma, en þær kosningar voru nauðungar- kosningar, þar sem einungis mátti kjósa um nöfnin Suðurnesjabær og Reykjanesbær, en öll önnur atkvæði voru ógild...“ en þar skilaði stór hluti kjósenda auðu eða greiddi Keflavík atkvæði og gerði atkvæðaseðilinn þar með ógildan.“ Viðbrögð Ísólfs Gylfa Pálmasonar, sveitarstjóra í Rangárþingi eystra, voru einföld þar sem hann ræddi um nafngiftir á sveitarfélögum: „Fín ábending sem við þorum ekki að tala um.“ Vilji menn hitta Ísólf Gylfa og hans fólk halda þeir rakleitt til Hvols- vallar. Komi einhvern tímann til samein- ingar Reykjavíkur og Seltjarnarness, bæjanna tveggja við Sundin blá, má reikna með því af fenginni reynslu, að sameinað sveitarfélag og höfuðborg landsins fái nafnið Sundabyggð! Sumarfrí standa nú sem hæst og landsmenn eru á ferð út og suður með landakortið útbreitt. Til að stytta mönnum stundir á milli staða má því setja upp léttan sumarleik undir heit- inu: „Finndu sveitarfélagið“. Reynist það einhverjum erfitt má finna lausn hér á síðunni undir því heiti sem það – eða þau – þekkjast í raun. Nöfn þessara sveitarfélaga breyttust við sameiningar, þegar minni sveitarfé- lög gengu inn í stærri af hagkvæmnis- ástæðum. Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Strandabyggð ..... Norðurþing ..... Rangárþing eystra ..... Dalabyggð ..... Skagafjörður ..... Ölfus ..... Fjarðabyggð ..... Reykjanesbær ..... Fljótsdalshérað ..... Borgarbyggð ..... Árborg ..... Sundabyggð ..... Langanesbyggð ..... Fjallabyggð ..... Vesturbyggð ..... Rangárþing ytra ..... Snæfellsbær ..... Hornafjörður ..... 1. Árborg: Selfoss, Eyrarbakki og Stokkseyri. 2. Fjarðabyggð: Neskaupstaður, Eskifjörður, Reyðarfjörður, Fáskrúðsfjörður og Stöðvarfjörður. 3. Skagafjörður: Sauðárkrókur, Hofsós og nágrenni. 4. Borgarbyggð: Borgarnes og nágrenni. 5. Fljóts- dalshérað: Egilsstaðir og nágrenni. 6. Norðurþing: Húsavík, Kópasker og Raufarhöfn. 7. Hornafjörður: Höfn og nágrenni. 8. Fjallabyggð: Siglufjörður og Ólafsfjörður. 9. Ölfus: Þorlákshöfn og nágrenni. 10. Rangárþing ytra: Hella og nágrenni. 11. Rangárþing eystra: Hvolsvöllur og nágrenni 12. Snæfellsbær: Ólafsvík, Hellissandur og Rif. 13. Vesturbyggð: Patreksfjörður og Bíldudalur. 14. Dalabyggð: Búðardalur og hreppar Dalasýslu. 15. Langanesbyggð: Þórshöfn og Bakkafjörður. 16. Strand- abyggð: Hólmavík og hreppar Strandasýslu. 17. Reykjanesbær: Keflavík, Njarðvíkur og Hafnir 18. Sundabyggð: Hugsanlegt framtíðarnafn á höfuðborginni, sameinist hún Seltjarnarnesi! Vilji menn hitta Ísólf Gylfa og hans fólk halda þeir rakleitt til Hvolsvallar. 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 Tengdu sveitar- félagið við númer og sjáðu hvað þú nærð mörgum réttum 22 sumarleikur Helgin 25.-27. júlí 2014

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.