Fréttatíminn - 25.07.2014, Side 24
T
oshiki Toma
er prestur
innflytjenda
á Íslandi
og starfar
á vegum
þjóðkirkjunnar. Í starfi sínu
aðstoðar hann fólk af öllum
trúarbrögðum og hefur beitt
sér fyrir mannréttindum
innflytjenda. Fyrstu árin
var hann oft spurður hvers
vegna hann væri aðstoða fólk
sem ekki væri kristinnar trú-
ar en hann segir þetta ekki
flókið; sé fólk í vanda, sé
hann reiðubúinn að hjálpa,
sama hver trúin er. Toshiki
giftist íslenskri konu árið
1990 og saman fluttu þau
til hingað til lands tveimur
árum síðar. Síðar skildu þau
en eiga saman tvö börn, þau
Ísak og Önnu Maríu.
Kristni er nátengd verka-
lýðshreyfingunni í Japan
Kristin trú er ekki algeng í
Japan og er Toshiki sá eini
kristni í sinni fjölskyldu.
„Á unglingsárunum var ég
leitandi og las mikið um
heimspeki og hin ýmsu
trúarbrögð. Í kirkjunni hitti
ég gott fólk og leið vel þar.
Svo þegar ég var tvítugur
var ég skírður.“ Toshiki
segir að þó kirkjan í Japan sé
fámenn hafi hún haft mikil
áhrif á samfélagið. „Japan
var lokað land þar til fyrir
150 árum er Meji-byltingin
var gerð. Þá var byrjað að
byggja upp nútímaríki með
hugmyndum um lýðræði og
mannréttindi. Þá kom mót-
mælendatrú til Japans sem
ný hugmyndafræði. Í Japan
er kristni nátengd verkalýðs-
hreyfingunni og til vinstri
pólitískt séð og það fannst
mér alveg rökrétt. Svo kom
ég til Íslands þar sem þessu
er öðruvísi háttað.“
Hjálpar þeim sem þurfa
hjálp
Í starfi sínu veitir Toshiki
innflytjendum aðstoð og
vinnur að því að koma í veg
fyrir fordóma og mismunun.
Á fyrstu árunum var hann
nær daglega spurður að
því hvers vegna hann, sem
þjóðkirkjuprestur, væri að
aðstoða búddista frá Asíu.
Enn þann dag í dag er hann
spurður þessarar spurn-
ingar. „Það skiptir mig ekki
máli hverrar trúar fólk er.
Ef það þarf á hjálp að halda,
hjálpa ég. Nú til dags hitti ég
marga múslima. Stundum
er kvartað yfir því að ég geri
ekki meira af því að sinna
trúboði. Sumir telja það
mikilvægasta hluta starfsins
en því er ég ósammála. Fyrir
mér er mikilvægara að að-
stoða innflytjendur andlega
og einnig við praktíska hluti
og að sýna þeim fram að
kirkjan sé með þeim.“
Prestar innflytjenda á
Norðurlöndum hittast annað
slagið og meðal þeirra eru
tvær andstæðar stefnur
ríkjandi. Annars vegar að
tala um Jesú við fólk í neyð
því trúin eigi eftir að hjálpa
því. Hins vegar einfaldlega
að hjálpa fólki í neyð svo að
það fái sjálfstraust aftur. „Sú
síðari er mín stefna og ég
held að miklu fleiri aðhyllist
hana. Það er eitthvað rangt
við það að segja við fólk í
neyð: „Ef þú trúir á Guð skal
ég hjálpa þér.“
Glósaði blaðagreinar
Toshiki fæddist í Tókýó árið
1958 og bjó þar til þrítugs
er hann tók við stöðu prests
í borginni Nagoya. Stuttu
áður en hann lauk námi í
prestaskóla fór hann til Ísra-
els á námskeið hjá sænskri
stofnun og kynntist þá Helgu
Soffíu Konráðsdóttur sem
þá starfaði sem prestur í
Uppsölum í Svíþjóð. Þau
felldu hugi saman og giftu
sig á Íslandi stuttu síðar og
hún flutti svo til Nagoya.
„Þar bjuggum við í tvö ár
en ákváðum svo að flytja til
Íslands í þeirri von að við
gætum bæði þjónað sem
prestar,“ segir hann.
Fyrstu árin á Íslandi gekk
illa hjá Toshiki að fá starf og
vann hann ýmis hlutastörf
og hugsaði um börnin tvö,
þau Ísak og Önnu Maríu. „Þá
fékk ég tækifæri til að kenna
börnunum mínum japönsku
og enn í dag tala ég alltaf jap-
önsku við þau,“ segir hann
og brosir. Toshiki fór svo í
íslenskunám við HÍ og lauk
auk þess fögum um sögu
kristni og annað svo hann
yrði fullfær um að messa
hér á landi. Réttu orðin til að
nota við prestsstarfið lærði
hann svo við lestur aðsendra
greina í dagblöðunum. „Þar
var alltaf eitthvað um kirkju-
SKÓLANEMAR: 25% AFSLÁTTUR GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS!
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR & KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS - MIÐASALA: 412 7711
EYE ON FILMS, SEX SPENNANDI MYNDIR
BEFORE YOU KNOW IT
ONLY IN NEW YORK MAN VS TRASH
THE GAMBLER
SUPERNOVA
CLIP
Það er eitt-
hvað rangt
við að segja
við fólk í
neyð: „Ef
þú trúir á
Guð skal ég
hjálpa þér.“
Toshiki Toma hefur starfað sem prestur innflytjenda á Íslandi í nær tvo áratugi.
Hann segir fólk oft tapa útgeislun sinni í erfiðleikum en að hún komi alltaf aftur
þegar lífið kemst á réttan kjöl. Toshiki er frá Japan þar sem gamalgrónar reglur
gilda í samskiptum fólks og öldruðu sem og háttsettu fólki er alltaf sýnd mikil
virðing. Hann kann vel að meta íslensku samskiptareglurnar þar sem fólk hefur
val um það fyrir hverjum það ber ómælda virðingu.
Ég er sá
eini kristni
í fjölskyldunniToshiki Toma flutti til Íslands árið 1992 með þáverandi eiginkonu sinni, Helgu Soffíu
Konráðsdóttur. Hann telur viðhorf Íslendinga til innflytjenda hafa tekið miklum breyt-
ingum á þeim tíma og nú sé í góðu lagi að tala ekki framúrskarandi góða íslensku. Lj
ós
m
yn
d:
H
ar
i
Framhald á næstu opnu
24 viðtal Helgin 25.-27. júlí 2014