Fréttatíminn


Fréttatíminn - 25.07.2014, Qupperneq 30

Fréttatíminn - 25.07.2014, Qupperneq 30
arnir litlar sem engar tekjur. Þeir náðu að kría út smá lán hjá vinum og vandamönnum og unnu auka- vinnu meðfram forritunarvinn- unni. „Eftir á að hyggja var þetta ekkert góð hugmynd,“ segir Davíð og hlær. „Ef litið er á viðskipta- hugmyndina „objektívt“ var þetta ekkert áhugaverður markaður. En „pródúktið“ var svakalegt... mjög, mjög gott. Þótt það hafi verið frekar slæmt til að byrja með hafði það óskaplega flotta styrki. Ég segi við fólk sem biður mig um ráð fyrir viðskiptahugmyndina sína að það eigi ekki að hafa áhyggjur af veikleikanum heldur einblína á sterkasta styrkleikann. Það er oft nóg að gera eitthvað eitt alveg svakalega vel svo hugmyndin geti orðið að veruleika,“ segir Davíð. „Það sem við gerðum vel var að við bjuggum til hugbúnað sem var mjög létt að nota. Hann var ekkert mjög öflugur þótt hann hafi orðið það seinna. En það var þægilegt að nota hann þannig að þeir sem byrj- uðu að nota hann vildu halda því áfram. Þeir fáu notendur sem við fengum framan af sögðu vinum sínum frá vörunni, sem sögðu svo vinum sínum. Við vorum hins veg- ar mörg ár að vaxa mjög hægt. Við höfðum örlitlar tekjur frá sumrinu 2005. Fyrst dugðu þær til að borga fyrir skrifstofu, svo fengum við smá vasapeninga og svo fórum við að geta ráðið einn og einn snill- ing,“ segir Davíð. „Við réðum nokkra óskaplega snillinga, það er eitt af því sem við gerðum vel. Allir þeir sem komu inn voru á heimsmælikvarða. Við fórum í raun ekki að fá mannsæm- andi laun fyrir en árið 2009 og vorum því einhvern veginn í svona „survival“ gír í 6 ár,“ segir Davíð og hlær og bætir því við að hann mæli ekki með því við nokkurn mann að fara þá leið sem þeir fóru. iPhone stóri vendipunkturinn Stóri vendipunkturinn hjá Unity var árið 2008 þegar Appstore iPhone opnaði og Unity náði for- skoti á markaðinn með því að sníða hugbúnað sinn að leikjagerð fyrir iPhone. „Við höfðum haft mik- inn áhuga á iPhone eftir að hann kom út 2007 og vorum spenntir fyrir snjallsímahugmyndinni. Við bjuggumst við því að eitthvað myndi gerast á markaðinum þegar iPhone myndi opna Appstore – en sáum náttúrulega aldrei fyrir hversu stórt þetta tækifæri reynd- ist vera. Við flýttum okkur því að búa til útgáfu af Unity fyrir iPhone og fengum í raun enga keppinauta í mörg ár. Við höfðum þennan markað því lengi í friði og gerðum mikið úr því. Það er sjaldan sem kemur svona svakaleg bylting í því hvernig fólk notar tölvur eða tæki. Síðast var það PC byltingin sem hófst um miðjan áttunda áratug- inn,“ segir Davíð. „Upp frá þessu fór Unity að vaxa villt og galið. Við vorum 15 manns þegar við komum út hugbúnað- inum fyrir iPhone en vorum tvöfalt fleiri hálfu ári síðar. Þá fundum við að við þyrftum verulega á fjármagni að halda því fyrirtæki verða brothætt þegar þau vaxa svona hratt því maður er alltaf að fjárfesta veltuna um leið og hún kemur inn. Veltan jókst mjög hratt en bara smá mistök hefðu getað sett okkur á hausinn. Svo var þetta ekki bara okkar fyrirtæki. Þetta var fyrirtæki sem var gert fyrir leikjaþróarana sem voru að nota hugbúnaðinn og þeir voru orðnir um 1000 talsins og ábyrgð okkar því mikil,“ segir hann. Fékk 50 nei frá fjárfestum Davíð segist hafa talað við alls kyns fjárfesta, fyrst í Danmörku og Þýskalandi og loks í Silicon Valley í Bandaríkunum og fengið samtals um 50 nei. „Við skömmuð- umst okkur svolítið fyrir það þótt ég hafi síðar komist að því að það sé nálægt meðaltalinu í Silicon Valley. Vorið 2009 rakst ég á konu sem heitir Diane Greene sem hafði stofnað nokkur fyrirtæki, þar á meðal VM Ware sem er eitt af stærstu hugbúnaðarfyrirtækjum í heimi, sem varð mjög spennt fyrir því sem við vorum að gera og vildi fjárfesta í okkur og kynnti okkur jafnframt fyrir Sequioa Capital, sem er eitt stærsta fjárfestinga- félag í þessum geira,“ segir Davíð. Sequioa varð leiðandi fjárfestir í fjárfestingu upp á 5,5 milljónir dollara, um 633 milljónir íslenskra króna og hefur Unity vaxið jafnt og þétt upp frá því. „Við vorum mjög vel undirbúnir fyrir þessa stundu,“ segir Davíð. „Við höfðum verið í kjallara og litlum skrifstofum í nokkur ár að undirbúa þetta augnablik sem við vissum þó ekki að myndi koma. Við vorum komin með sögu, góða vöru og kúnna sem elskuðu vöruna. Þótt við værum alls ekki fullkomin og með marga galla þá vorum við undirbú- in fyrir að grípa þetta tækifæri,“ segir hann. „Svona tækni er flókin og maður gerir ekki svona á nokkrum vik- um. Það tekur nokkur ár að undir- búa svona „leikja-game-engine“. Þetta var ótrúlega mikil heppni en jafnframt mikil þrautseigja. Ekkert fyrirtæki verður stórt án dálítið mikillar heppni. Enda þegar fólk spyr mig í dag hvað ég myndi vilja hafa gert öðruvísi þá svara ég eiginlega bara að ég þori ekki að hugsa til þess að við hefðum gert neitt öðruvísi því ef fiðrildi hefði blakað vængnum öðruvísi í Súmötru hefði þetta allt getað farið til fjandans, tilfinningin er svolítið þannig,“ segir Davíð. Flutti til San Fransisco Eftir að fjármagn var komið inn í fyrirtækið flutti Davíð til San Fransisco, sumarið 2009, þar sem hann hefur búið síðan. Hann á danska eiginkonu, Mie Hørlyck Mogensen, og tveggja ára dóttur, Korku. Hann segir yndislegt að búa í San Fransisco. Fyrir utan hina landfræðilegu þætti sé margt annað einnig svo jákvætt við Silicon Valley. „Þar kemur saman fólk úr tölvuleikja- og hugbúnaðar- geiranum og allir eru svo fullir af bjartsýni. Það er allt hægt á vesturströndinni. Fólk er jafnframt vinnusamt og hugsar stórt. Maður lærir sjálfur að hugsa stórt því maður umgengst fólk sem hugsar sjálft svo stórt því það hefur gert stóra hluti stundum úr engu, eins og Twitter eða Google, sem eru dæmi um hluti sem verða stórir þrátt fyrir að líta ekki út fyrir að geta orðið það í byrjun. Það er allt hægt einhvern veginn ef maður reynir á sig í því að finna ávallt réttu lausnina og vandar sig,“ segir hann. „Þetta er hollt umhverfi fyrir fyrirtæki til að vaxa í – að minnsta kosti fyrirtæki af þessari tegund, sem vaxa hratt og verða stór. Hér er einnig auðvitað aðgangur að fjármagni og reyndu starfsfólki,“ segir hann. Auðmýkt í Silicon Valley „Það er líka ákveðin auðmýkt í Sili- con Valley. Jafnvel þeir sem hafa náð mestum árangri vinna mikið og berast lítið á. Þeir sem eiga pen- inga eru ekkert að sýna þá. Það er enginn betri þótt fyrirtæki hans hafi hlotið velgengni. Zuckerberg er gott dæmi um það. Fyrir utan að hann vinnur sjálfur eins og skepna þá er konan hans að taka kandí- datsárið sitt í læknanáminu sínu og vinnur bara næturvaktir á spít- ala eins og aðrir læknanemar. Þau eru milljarðamæringar í dollurum talið en eru bara eins og venjulegt fólk. Ef þau eru ekki of fín til að vinna og haga sér eins og venjulegt fólk þá eru aðrir það ekki,“ segir Davíð. Davíð situr í stjórn Plain Van- illa, íslenska fyrirtækisins sem framleiðir spurningaleikinn Quiz Up, og er því í nánu samstarfi við Þorstein Friðriksson, forstjóra og stofnanda. Það er hins vegar ekki á allra vitorði að Davíð ber í raun ábyrgð á því að kynna Þorstein fyrir stærstu fjárfestunum í Plain Vanilla, Sequioa Capital. Fyrir tveimur árum kynnti Gunnar Hólmsteinn Guðmunds- son, stofnandi hugbúnaðarfyrir- tækisins Clara, Davíð og Þorstein þegar Þorsteinn var í Silicon Vall- ey að leita að fjármagni fyrir Plain Vanilla. „Þorsteinn var með skýra hugmynd þótt hún hafi ekki verið fullmótuð,“ lýsir Davíð fyrsta fundi þeirra. „Við þrír fengum okkur hádegismat rétt hjá skrifstofunni minni og á 45 mínútum tókst Þor- steini að sannfæra mig um að setja allt spariféð mitt í fyrirtækið hans. Þetta er ekki djók. Ég átti ekki mikinn pening en allt sem ég átti setti ég í Plain Vanilla, og fékk vini mína til að gera slíkt hið sama, svo mikið trúði ég á þetta,“ segir Davíð og hlær. Stuttu síðar kynnti Davíð Þorstein fyrir fulltrúa Sequioa Capital sem trúði einnig á hug- myndina og gerði Þorsteini kleift að láta hana verða að veruleika. Fjárfesting Sequioa og annarra fjárfesta í Plain Vanilla nemur nú um 27 milljónum Bandaríkjadala, sem samsvarar um þremur millj- örðum íslenskra króna. Enginn endir virðist á vexti Unity sem er nú með 460 starfs- menn í 18 löndum og segir Forbes tímaritið til að mynda að „allir sem fylgist með því sem gerist í snjall- símaheiminum ættu að taka vel eftir Unity.“ Unity er því orðinn risi í leikjamarkaðnum sem eflist ár frá ári – og íslenskur í þokkabót. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT METSÖLULISTI EYMUNDSSON VIKAN 16.07.14 - 22.07.14 1 2 5 6 7 8 109 43 Iceland Small World - lítil Sigurgeir Sigurjónsson Iceland Small World - stór Sigurgeir Sigurjónsson Stúlkan frá Púertó Ríkó Esmeralda Santiago Niceland Kristján Ingi Einarsson Vegahandbókin 2014 Steindór Steindórsson Amma biður að heilsa Fredrik Backman Skrifað í stjörnurnar John Green Bragð af ást Dorothy Koomson Frosinn - Þrautir Walt Disney Frosinn - Anna og Elsa eignast vin Walt Disney Það er líka ákveðin auð- mýkt í Silicon Valley. Jafnvel þeir sem hafa náð mestum árangri vinna mikið og berast lítið á. „Ég var flinkur for- ritari þegar ég var lítill.“ 30 viðtal Helgin 25.-27. júlí 2014

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.