Fréttatíminn - 25.07.2014, Page 32
M
ín velferð hef-
ur verið því
að þakka að
ég sagði frá,
ekki þeirri
staðreynd að
hann beitti mig ofbeldi.“ Þetta segir
Björk Brynjarsdóttir, blaðakona
og ein stofnenda veftímaritsins
Blævar, en hún er á meðal þeirra
fjölmörgu sem hyggjast ganga
Druslugönguna á morgun, laugar-
daginn 26. júlí. Ástæðuna segir
Björk vera einfalda, hún gengur til
þess að skila skömm þangað sem
hún á heima en hún var beitt kyn-
ferðisofbeldi þegar hún var sex
ára gömul af einstaklingi sem hún
þekkti vel og treysti.
„Það sem er sérstakt við þetta
atvik er að strákurinn var 14 ára
þegar brotið átti sér stað, hann var
átta árum eldri en ég. Það var því
ekki hægt að kæra hann og þrátt
fyrir augljóst valdamisræmi þá var
hann líka barn,“ útskýrir Björk
fyrir blaðamanni þar sem við sitjum
yfir kaffibolla í heimahúsi. Björk
hefur heillandi nærveru og fyrir
þau sem trúa á fyrri líf myndi hún
sannarlega flokkast sem gömul og
reynd sál í ungum líkama.
„Litla leyndarmálið okkar“
Björk fæddist árið 1994 og er
yngsta barn foreldra sinna, eða rétt
um tvítugt. Þrátt fyrir ungan aldur
hefur Björk ferðast frá Síberíu
um Austur-Asíu til Burma, verið
í klaustri í Taílandi, búið í Berlín,
flakkað um heiminn. Margt mis-
þungt hefur þannig ratað í bak-
pokann á lífsleiðinni. Það þyngsta
hefur hún burðast með allt frá
barnæsku, leyndarmálið ljóta sem
hún ætlar ekki að skammast sín
fyrir lengur.
„Þetta gerist árið 2000, rétt eftir
6 ára afmælisdaginn minn. Hann
var fjölskylduvinur,“ segir Björk og
útskýrir að drengurinn hafi verið
gestur á heimili hennar í um viku-
tíma en hann bjó á landsbyggðinni
ásamt foreldrum sínum. „Hann
bauð mér inn í herbergi og nálgað-
ist mig með að bjóðast til að kenna
mér svolítið. Ég var á þeim aldri að
ég vildi læra allt í heiminum svo ég
fór með honum,“ útskýrir Björk og
dregur ekkert undan í lýsingum
sínum af verknaðinum við blaða-
mann. Pilturinn sleikti kynfæri
hennar nokkrum sinnum og lét
hana svo kyssa sig með tungunni.
„Hann ítrekaði að þetta væri litla
leyndarmálið okkar.“
Skömmin varð að magaverk
Eftir þetta var Björk sem annað
barn. „Ég sem áður hafði verið
glaðvær og kát fékk oft grátköst
og kvartaði stöðugt yfir verkjum
í maganum. Ég gerði mér grein
fyrir að magaverkurinn tengdist
því sem gerst hafði inni í herberg-
inu en ég gat ekki sagt neinum frá
því. Ég fór í rannsóknir og ég man
eftir að hafa legið á læknabekk eitt
sinn á meðan ég var skoðuð þegar
ég hugsaði með mér að læknirinn
myndi aldrei fatta af hverju mér var
illt í maganum.“
Foreldrar Bjarkar voru ráðþrota
um stund enda breytingin snörp.
Rétt áður en þau gripu til þess að
senda Björk til barnasálfræðings
ákvað hún upp á sitt einsdæmi að
segja foreldrum sínum frá misnotk-
uninni en Björk segist alltaf eiga
eftir að muna þann dag.
Ákvað sjálf að segja frá
„Ég var að horfa á Tomma og Jenna
á laugardagsmorgni þegar ég ákvað
að tíminn væri kominn. Ég fór inn
í rúm til þeirra og sagðist þurfa að
tjá þeim svolítið. Á þeim tíma vissi
ég ekki að ég væri að segja þeim
frá ofbeldi, bara að eitthvað rangt
hafi átt sér stað og það að leyna því
olli þrálátu magaverkjunum.“ Björk
segir foreldra sína hafa brugðist
hárrétt við í aðstæðunum. Þau voru
yfirveguð og spurðu hana spurn-
inga. „Létu mig finna að ekkert
af þessu væri mér að kenna og að
þetta hafi hann ekki átt að gera.
Svo kúrðum við þarna öll saman í
smá stund þangað til ég ákvað að
ég vildi horfa meira á barnatímann.
Þegar ég horfi til baka á þessa sex
ára litlu stúlku þá finnst mér hún
vera hugrakkasta stúlka í heimi. Ég
hugsa líka oft til þess hvernig lífið
mitt hefði verið allt öðruvísi ef ég
hefði ekki sagt frá á þessum tíma
og hvað ég er heppin að foreldrar
mínir brugðust strax við.“
Við tók langt ferli þar
sem foreldrar Bjarkar
fundu viðeigandi úrræði
hjá fagaðilum, tilkynntu
atvikið til barnavernd-
arnefndar og Björk
fékk aðstoð í Barna-
húsi.
Áfall fyrir alla
Fjölskyldu stráks-
ins var jafnframt
gert viðvart en
viðbrögð þeirra
voru óvægin í
garð Bjark-
ar. „Hann
gekkst ekki
við þessu og foreldrar hans af-
neituðu þessu alveg. Ég veit svosem
ekki hvernig þeim datt í hug að 6
ára barn hefði hugmyndaflug í að
búa þetta til. Það er kannski mann-
legt að bregðast svona við þegar
barnið þitt beitir slíku ofbeldi,“
segir Björk og bætir við, „en með
afneitun tæklum við aldrei vanda-
málið.“
Samskiptum fjölskyldnanna lauk,
eðli málsins samkvæmt, á þessum
tímapunkti. Björk segist þó vita til
þess að drengurinn hafi verið send-
ur í tíma hjá sálfræðingi. „Ég veit
ekkert hvernig það fór en ég vona
innilega að hann hafi fengið hjálp
við að brjóta ekki aftur af sér.“
Mikil hjálp frá Stígamótum
Kynferðisbrotið angraði hana vissu-
lega sem barn en það var ekki fyrr
en Björk var orðin tólf ára að hún
eignast loks orð yfir líðan sína.
„Við vorum nokkur í frímín-
útum að skiptast á að lesa
„Hvað er málið“ sem voru
unglingabækur. Ég var að
lesa upphátt kaflann um
kynferðisofbeldi þegar
ég skildi allt í einu það
sem hafði átt sér stað
sex árum áður. Þetta
var ofbeldi og nú gat
ég loks rætt það á þeim
forsendum. Fyrst um
sinn vissi ég ekki alveg
hvernig ég á að fóta
mig með þessar upp-
lýsingar,“ segir Björk
sem leitaði þá aftur til
Stígamóta. „Með hjálp
kvennanna Stígamótum
fór ég fyrst að vinna
úr skömminni og
sektarkenndinni því ég skildi allt í
einu miklu betur en áður hvað hafði
gerst.”
Seinna stóra bakslag Bjarkar
kom á fyrsta ári í menntaskóla en
þá dembdi hún sér í félagslífið af
fullum krafti. „Ég geng dálítið fram
af mér á þeim tíma. Þá er líka allt í
einu komin þessi pressa um að fara
að sofa hjá og verða kynvera. Ég
þurfti því að leita aftur upp í Stíga-
mót til að fá stuðning.“
Á þessum tíma lærði Björk
að þekkja svokölluð váhrif eða
„trigger“, eitthvað utanaðkomandi
sem vekur upp gömul sár og veldur
óskiljanlegri vanlíðan löngu eftir
að brotið er framið. Áhrif kyn-
ferðisofbeldis geta því fylgt þolanda
þess allt út lífið. Björk segir það því
mikilvægt að læra að þekkja sín
mörk og að læra á tækin til þess að
takast á við slík bakslög.
Heilræðið sem breytti öllu
Björk hafði útilokað andlit ger-
andans úr minni sínu sem barn en
rifjaði það upp síðar meir. Á síðasta
ári stóð hún svo frammi fyrir að
hitta gerandann í fyrsta skipti eftir
brotið, á hátíð úti á landi, en há-
tíðina hafði hún alla tíð forðast af
hættu við að rekast á hann. Hún
hafði samband við vinkonu sína
sem þekkti svipaðar aðstæður. Sú
kona gaf Björk mikilvægt heilræði:
„Björk, hann á ekkert í þér.“
„Ég er mjög ánægð með mann-
eskjuna sem ég er í dag en sú kona
er náttúrulega mótuð af þessari
reynslu. Mér fannst því alltaf sem
hann ætti eitthvað í mér. Það var
ekki fyrr en þarna sem ég tengdi
að mín velferð hefur verið því að
þakka að ég sagði frá, ekki þeirri
staðreynd að hann beitti mig
ofbeldi.“
Vill fórnarlambavæðingu burt
Á þessum sömu nótum segir Björk
að það sé afar ríkt hjá almenningi
að setja fórnarlambsstimpil á brota-
þola. „Slíkt verður til þess að ekki
einungis þarftu að vinna úr áfallinu
eftir kynferðisofbeldi heldur líka
því hvernig samfélagið horfir á þig.
Mér fannst Þórdís Elva orða þetta
svo vel í bókinni sinni, Á Manna-
máli, en þar sagði hún; Ímyndum
okkur hvaða áhrif það hefur á
sjálfsmyndina að vera kallaður
fórnarlamb ár eftir ár. Getur verið
að það sé nógu mikið lagt á herðar
þeirra sem verða fyrir ofbeldi án
þess að þeim sé statt og stöðugt líkt
við deyjandi dýr?“
Björk horfir hvergi bangin fram
veginn. Hún hvetur brotaþola til
þess að leita sér aðstoðar, sama
hversu langt sé um liðið.
„Ég veit af eigin reynslu hvað það
skilar miklu að rjúfa þögnina og
leita sér hjálpar. Áhrif kynferðisof-
beldis eru oft á tíðum langvarandi
en með góðri aðstoð er hægt að
yfirstíga þau. Sem betur fer búum
við að samtökum eins og Stíga-
mótum, Drekaslóð og Barnahúsi,“
segir hún og hvetur fólk jafnframt
til þess að skila skömminni til síns
heima og fjölmenna í Druslugöng-
una á morgun, laugardag, fyrir öll
þau sem hefur ekki ennþá gefist
tækifæri á að rjúfa þögnina.
María Lilja Þrastardóttir
ritstjorn@frettatiminn.is
Hugrakkasta stúlka í heimi
Björk Brynjarsdóttir, blaðakona og ein stofnenda veftímaritsins Blævar, varð ung fyrir kynferðisofbeldi af hendi
mun eldri dreng sem var ekki hægt að kæra fyrir verknaðinn því hann var sjálfur enn barn að aldri. Hún segir að þó svo
að afleiðingar kynferðisofbeldis séu oft á tíðum langvarandi sé með góðri aðstoð hægt að yfirstíga þær.
Björk er ung
blaðakona á upp-
leið og stofnaði
nýverið vef-
ritið Blær ásamt
öðrum. „Ég er
mjög ánægð með
manneskjuna sem
ég er í dag.“
Lj
ós
m
yn
d:
T
ei
tu
r
32 viðtal Helgin 25.-27. júlí 2014