Fréttatíminn - 25.07.2014, Blaðsíða 34
vel við sig þarna á mótum Kópa-
vogs og Garðabæjar því hann varð
Íslandsmeistari í holukeppni þar
árið 2012, sama ár og hann varð Ís-
landsmeistari.
Ólafur Björn Loftsson
Atvinnukylfingurinn Ólafur Björn
var aldrei langt undan í baráttunni
á síðasta ári. Ólafur er búinn að
spila mikið erlendis þetta árið og
fýsir efalaust í stigin sem sigur
á Íslandsmeistaramótinu gefa á
heimslistanum, auk heiðursins
sem fylgir titlinum að sjálfsögðu.
Fyrir mótið vann hann létta keppni
nokkurra kylfinga um það hver
kæmist næst holu af hundrað
metra færi. Hann gerði sér lítið
fyrir og setti boltann 64 sentímetra
frá og virðist því í fantaformi.
Kristján Þór Einarsson
Íslandsmeistarinn í holukeppni
virðist engan veginn hafa gert
Kristján Þór saddan. Hann sendi í
kjölfarið léttar pillur á Úlfar Jóns-
son landsliðsþjálfara yfir því að
vera ekki valinn í landsliðið. Nái
Kristján að nýta það á vellinum í
stað þess að pirrast bara meira er
hann líklegur til að bæta Íslands-
meistaratitli nr. 2 á ferilskrána.
Fréttir eru þó að berast um að
bakið sé að angra hann þessa
dagana og gæti það sett strik í
reikninginn.
Ragnar Már Garðarsson
Ragnar Már byrjaði mótaröðina
sjóðheitur og sigraði á tveimur
fyrstu mótunum í sumar. Nú
hefur hann það sér í hag að spila
á heimavelli og nái kylfingurinn
ungi að nýta sér það að þekkja
hverja þúfu er erfitt að veðja
gegn honum. Komist hann fljótt
framarlega þarf hausinn að halda
og muna að svona mót er maraþon
en ekki spretthlaup.
Haraldur Jónasson
hari@frettatiminn.is
Í slandsmótið í golfi fer fram á Leirdalsvelli nú um helgina. Völlurinn er mitt á milli Kópa-
vogs og Garðabæjar og ku vera í
toppstandi. Allir bestu kylfingar
landsins mæta til leiks og þeir
bestu munu leika 72 holur um Ís-
landsmeistaratitilinn og verðlauna-
gripinn sem leikið hefur verið um
í jafn mörg ár. Allt frá því að Gísli
Ólafsson vann það sem þá var
kallað Landsmót þrisvar sinnum í
röð. Það fyrsta árið 1942.
Með sigri á Birgir Leifur Haf-
þórsson möguleika á því að vinna
mótið sex sinnum og jafna með
því við þá Úlfar Jónsson landsliðs-
þjálfara og gamla brýnið, Björg-
vin Þorsteinsson, sem oftast hafa
orðið Íslandsmeistarar. Þeir unnu
sex titla á síðustu öld. Birgir Leifur
byrjaði líka á tuttugustu öldinni,
vann fyrst árið 1996, en hefur
haldið áfram að safna titlunum á
þeirri tuttugustu og fyrstu og er
hvergi nærri hættur. Þeir eru þó
nokkrir sem munu reyna að koma í
veg fyrir að Birgir bæti við putta af
vinstri til að telja titlana. Fréttatím-
inn spáir hér í spilin um það hver
mun hampa Íslandsmeistaratitl-
inum á sunnudaginn.
Haraldur Franklín Magnús
Haraldur var hársbreidd frá því
að verja Íslandsmeistaratitilinn á
heimavelli síðasta sumar og langar
að koma krumlunum á bikarinn
aftur. Þetta er mögulega síðasta
árið sem Haddi verður með áhuga-
mannaréttindi og hann vill örugg-
lega klára þann kafla með titlinum
eftirsótta. Virðist auk þess kunna
VINCENZO NIBALI AND THE S-WORKS TARMAC – A
HERO IS MADE. TOGETHER NIBALI AND THE
TARMAC CONQUERED A LEGENDARY COURSE IN EVEN
MORE LEGENDARY CONDITIONS TO BECOME
GIRO D’ITALIA CHAMPIONS.
THE BEST PROVING GROUND FOR RIDER AND
MACHINE IS MADE IN RACING. SPECIALIZED.COM
MADE IN RACING
SPECIALIZED BICYCLES & COMPONENTS
KRÍA HJÓL GRANDAÐGARÐUR 7 101 REYKJAVÍK s.5349164
Birgir Leifur reynir við sexuna
Birgir Leifur reynir nú að landa sínum
sjötta Íslandsmeistaratitli og jafna með
því við gömlu kempurnar, Björgvin Þor-
steinsson og Úlfar Jónsson.
Áhorfendur
Á Opna breska meistaramótinu í golfi
sem haldið var um síðustu helgi komu
fleiri en 200.000 áhorfendur á völlinn
til að fylgjast með Norður-Íranum Rory
Mcgilroy vinna silfurkönnuna eftir-
sóttu. Hér á Íslandi hefur aldrei skapast
stemning fyrir því að mæta á golfvöllinn
til að horfa. En það eru 17.000 manns
skráðir í golfklúbba landsins og vel
rúmlega það sem spilar golf utan klúbb-
anna. Því mætti halda að nokkur þúsund
manns ættu að hafa áhuga fyrir að mæta
á staðinn. En það er eins og landinn sé
hræddur. Hræddur um að vera fyrir,
hræddir um að þurfa að labba, hræddur
um sjá ekki nóg nú eða veðrið. Svo er það
letin sem spilar stóra rullu. Sjónvarpað er
frá lokadögunum og því góð afsökun að
vera bara heima með paprikkusnakk og
Vogaídýfu fyrir framan imbann. En trixið
er að það er ekki það sama að sjá golf
í sjónvarpinu og mæta á völlinn. Alveg
eins og í fótbolta og hvað hræðsluna
varðar; þá vilja kylfingarnir fá sem flesta
áhorfendur, mótshaldararnir vilja sem
flesta áhorfendur og Golfsambandið vill
fleiri áhorfendur. Hátt í hundrað manns
verða á Íslandsmótinu bara til að aðstoða
gesti, benda þeim á hvar á að standa og
hvenær skuli hafa hljóð þannig að um er
að gera að arka í Leirdalinn, finna lyktina
af grasinu og sjá hversu góða kylfinga við
Íslendingar eigum. Fyrir þá sem treysta
sér ekki í að labba brautirnar er búið að
setja upp áhorfendastúkur við tvær flatir
þar sem gott útsýni er yfir innáhöggin og
púttin í kjölfarið.
Tveggja turna tal
Aldrei hafa fleiri konur verið skráðar
til leiks í Íslandsmeistaramótinu í golfi
og nú. Þrjátíu og þrjár munu keppa um
titilinn og eru þær Sunna Víðisdóttir
og Guðrún Brá Björgvinsdóttir einna
líklegastar til að hampa Íslandsmeistara-
titlinum á sunnudaginn. Sunna vann á
síðasta ári eftir bráðabana við þær Guð-
rúnu Brá og Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur
og veit því hvað þarf til að endurtaka
leikinn. Hún hefur enda byrjað sumarið
vel og er búin að vinna tvö af þeim fjórum
mótum sem haldin hafa verið í sumar.
Guðrún Brá hefur aldrei verið langt
undan í ár og vill krækja puttunum utan
um titilinn eftirsótta. Áðurnefnd Ólafía
Þórunn, Ragnhildur Kristinsdóttir og
Berglind Björnsdóttir eru þó allar líklegar
um helgina og geta hæglega farið með
sigur af hólmi.
Birgir Leifur tryggir sér Íslands-
meistaratitil nr. 5 fyrir framan fjölda
áhorfenda á Korpúlfsstaðavelli.
34 golf Helgin 25.-27. júlí 2014