Fréttatíminn - 25.07.2014, Page 38
38 hönnun Helgin 25.-27. júlí 2014
fonix.is • Hátúni 6a • 105 Reykjavík • S. 552 4420
Heimilistæki
2 0 1 4
00000
w w w . v e i d i k o r t i d . i s
Eitt kort
36 vötn
6.900 kr
FLEIRI VÖTN ÓBREYTT VERÐ
2 0 1 4
bleium í Noregi og Svíþjóð þar sem
ég er með endursöluaðila. Það var
sænsk kona sem byrjaði að blogga
um bleiurnar mínar og þá rauk salan
þar upp.“
Þegar eftirspurnin eftir bleiunum
fór að minnka hér heima ákvað
Eva að bæta barnafötum við fram-
leiðsluna, sem fer öll fram í stofunni
heima hjá henni. Þar sníður hún,
saumar og hannar munstur í photos-
hop.
Skemmtilegt samstarf
Bæði bleiurnar og fötin eru úr mjög
skrautlegum efnum en Eva segist
alltaf hafa verið hrifin af fallegum
munstrum. „Þegar ég byrjaði á
bleiunum langaði mig alltaf að gera
mín eigin munstur en það gekk ekki
upp fyrr en ég byrjaði á fötunum
og fór að panta efni í meira magni.
Þetta er allt úr 100% bómull en efnin
í bleiurnar fæ ég send frá Bandaríkj-
unum en efnin í fötin læt ég prenta
fyrir mig í Evrópu. Ég byrjaði að
leika mér í photoshop með myndir
sem var leyfilegt að nota af netinu
og fannst það svo gaman að ég
ákvað að læra bara almennilega á
þetta,“ segir Eva um upphafið að
fataframleiðslunni. „Svo fór mig
að langa til að nota Ísland sem
myndefni á fötunum og þar sem ég
er úr Loðmundarfirði, sem er algjör
paradís á jörðu, ákvað ég að nota
hann sem bakgrunn. Vinur minn,
Einar Ben Þorsteinsson, gaf mér
svo myndir af hestum til að klippa
inn í landslagið. Svo langaði mig
að nota fleiri dýr og fékk mynd hjá
Náttúrufræðistofnun Vesturlands
af branduglunni og hjá gamla líf-
fræðikennaranum mínum úr ME af
hreindýrunum. Það er bara ótrúlega
gaman að vinna í þessu og sérstak-
lega skemmtilegt að gera þetta í
samstarfi við vini og kunningja.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
hönnun Kisur í útrás
Kisukertin í
Urban Outfitters
K isulaga kerti eftir Þórunni Árna-dóttur hönnuð eru
nú komin úr framleiðslu
og í sölu víða um heim.
Kertin eru nokkuð frum-
leg í eðli sínu því þegar
þau brenna kemur í ljós
beinagrind. Þórunn
safnaði fyrir framleiðsl-
unni á vefnum Kick-
starter og gekk vonum
framar og safnaði því
sem til þarf á aðeins
fjórum dögum. Við-
brögðin hafa verið
góð og segir Þórunn
ótrúlega gaman að fá
vöruna sína úr fram-
leiðslu. „Ferlið var ekki
vandræðalaust því kertin
þurftu að fara í gegnum
alls konar gæðaprófanir til
að standast bandaríska og
evrópska gæðastaðla. Það
er skemmtilegt að sjá fólk
birta myndir af kertunum út
um allan heim á samfélags-
miðlunum og gleðilegt
hvað allir eru ánægðir með
kisurnar sínar. Þegar ég
gerði fyrstu prufurnar af
kertunum hefði ég aldrei
getað ímyndað mér að þau
yrðu svona vinsæl. Ég gerði
þetta bara svona hálf part-
inn í gamni á meðan ég var í
námi úti í London.“
Í febrúar voru kertin
kynnt á stórri hönnunar-
sýningu í Frankfurt og
náðust þá samningar við
stórar keðjur eins og Urban
Outfitters. Hér á landi fást
Kisukertin í Minju, Spark
Design Space, Kraum,
Hrím, Epal, Aurum og á
vefnum Snúran.is. -dhe
Framleiðir
bleiur og föt
heima
Eva Sædís Sigurðardóttir var orðin leið á því að henda
bleium í ruslið og ákvað að taka til sinna ráða. Hún
stofnaði fyrirtækið RassÁlfa og hefur selt heimagerðar
bleiur á netinu í tvö ár. Nú er hún líka farin að gera
barnaföt sem njóta mikilla vinsælda.
É g byrjaði að gera tau-bleiur fyrir 2 árum,“ segir Eva sem var orðin
leið á því að henda bleium í
ruslið, langaði að vera umhverf-
isvæn og ákvað að búa bara til
sínar eigin bleiur. „Þetta fór vel
af stað en í dag sel ég mest af
Nýjasti bolurinn
úr fataframleiðslu
Evu. Myndin er
tekin á heima-
slóðum Evu, í
Loðmundarfirði.
Bleiurnar eru
þægilegar og
mjúkar, úr
100%bómull sem
þolir endalausa
þvotta.
Eva með börnin
sín, Hilmi, Júlíus
og Elísu. Mynd/
Teitur