Fréttatíminn - 25.07.2014, Blaðsíða 46
46 matur Helgin 25.-27. júlí 2014
N ok Narumon opnaði á dögunum taílenskan skyndibitastað, Pad
Thai Noodles Iceland, við Álfheima.
Þar er boðið upp á pad thai sem er
vinsæll taílenskur núðluréttur. „Pad
thai í Taílandi er svipað og pylsur á
Íslandi. Þegar fólk er úti, til dæmis
niðri í bæ, og að flýta sér fær það sér
pad thai. Ég lærði að gera sósuna hjá
mömmu minni en er svo aðeins búin
að breyta uppskriftinni í gegnum
árin,“ segir Nok og hlær.
Nok hefur búið á Íslandi í 25 ár og
rekur fjölskyldan tvo Noodle Station
veitingastaði, einn í miðbæ Reykja-
víkur og annan í Hafnarfirði og hefur
hún starfað þar með sonum sínum.
Þessa dagana er Bogi Jónsson, eigin-
maður hennar, í Noregi þar sem þau
opnuðu nýlega Noodle Station stað
svo að í nógu er að snúast hjá þeim
þessa dagana. „Sonur minn keypti
húsnæði hér í Álfheimum og hvatti
mig til að gera eitthvað sniðugt. Það
gengur mjög vel og pad thai leggst
greinilega vel í Íslendinga.“ -dhe
Uppskrift að pad thai
Hrísgrjónanúðlur
Steikingarolía
Egg (eitt á mann)
Kjúklingur, rækjur eða grænmeti
Gulrætur
Púrrulaukur
Baunaspírur
Hvítkál
Ristaður hvítlaukur
Saxaðar salthnetur
Aðferð
Sjóðið núðlurnar samkvæmt leið-
beiningum og látið renna af þeim.
Steikið kjúkling í bitum eða
rækjur og grænmeti og leggið til
hliðar.
Setjið olíu á pönnuna. Steikið
egg (eitt egg á mann), blandið svo
saman kjúklingnum / rækjunum /
grænmetinu við eggið og leggið til
hliðar.
Setjið núðlur á pönnuna, blandið
gulrótum og púrrulauk saman við
og hrærið í. Setjið sósu yfir núðl-
urnar og steikið í 1 til 2 mín.
Því næst er baunaspírum, hvít-
káli, hnetum og hvítlauk blandað
við. Að lokum blandað saman við
kjúkling / rækjur og egg.
Pad thai sósa fyrir fjóra
5 msk. sykur
smá salt og pipar
2 1/2 msk. edik
1 msk. Tamarinde
1 msk. tómatsósa
sjóða saman í smá stund og hræra
Ilmandi krásir í
Fógetagarðinum
G ötumatar markaður verður í Fóg-etagarðinum í miðbæ Reykjavíkur á morgun laugardag þar sem tólf
veitingastaðir bjóða upp á „götuútgáfu“ af
sinni matargerð. Mataráhugafólkið Gerður
Jónsdóttir og Ólafur Örn Ólafsson, hafa haft
veg og vanda að skipulagningunni. Hann
segir hugmyndina að fólk komi og gæði sér
á góðum mat og drykk og njóti lífsins og lif-
andi tónlistar. „Þarna leiða saman hesta sína
margir af þekktustu kokkum af fínustu veit-
ingahúsunum og aðrir sem þekktir eru fyrir
einfaldan mat og búa til sína útgáfu af göt-
umat. Boðið verður upp á íslenska matargerð,
austurlenska og indverska sem eitthvað sé
nefnt,“ segir hann.
Götumatar markaðurinn verður næstu
fimm laugardaga, frá klukkan 13 til 18 og
verður sá síðasti á menningarnótt. Ólafur
segir að ef vel gangi sé aldrei að vita nema
gert verði meira úr honum á næsta ári. Mark-
aðurinn er hluti af verkefninu Torg í biðstöðu
þar sem almenningsrými eru glædd lífi og
hvatt til umhugsunar og umræðu um framtíð
VAKANDI!VERTU
blattafram.is VERNDARI BARNA Í 10 ÁR
Góð samskipti milli þín og barna
þinna er besta leiðin til að vernda
þau gegn kynferðislegu ofbeldi!
Taílenskur skyndibiti í Álfheimum
Götumatar mark-
aður verður í Fóg-
etagarðinum næstu
fimm laugardaga
þar sem veitinga-
staðir munu bjóða
upp á götuútgáfu af
matargerð sinni. Á
markaðnum verður
góð stemning og lif-
andi tónlist.
þeirra. Byggðir hafa sérstakir básar
fyrir markaðinn sem setja svip sinn
á Fógetagarðinn. Nánari upplýs-
ingar um Götumatarmarkaðinn má
nálgast á Facebook-síðunni Krás
Götumatar markaður.
Ítalskur götumatur frá Uno
Meðal matreiðslumanna á götu-
matar markaðnum eru kokkarnir á
Uno. Þeir ætla að bjóða upp á ítalska
réttinn Arancini sem á uppruna
sinn að rekja á Sikiley og er nafnið
dregið af orðinu „arancia“ sem þýðir
appelsína. Bollurnar eru líkar þeim
að lögun og lit. Til eru ýmis afbrigði
af réttinum en yfirleitt er notast við
sama risotto grunninn en fyllingin
mismunandi.
Uppskrift
1 dl jómfrúarólífuolía
250 gr risotto hrísgrjón
1 lítri kjúklingasoð
1 til 2 skarlottulaukar
100 gr rifinn mozzarella ostur
100 gr sólþurrkaðir tómatar
1 knippi basil lauf (söxuð)
salt og pipar
Heil egg
Ferskur brauðraspur
Aðferð
Hitið olíuna í potti. Steikið laukinn
þar til hann fer að gljáa. Bætið
grjónunum við og blandið vel
saman við laukinn og hrærið í um
það bil 1 mínútu. Hellið 250 ml af
soðinu út í pottinn og hrærið þar
til grjónin hafa tekið vökvann í sig.
Endurtakið með því að hella 250
ml í hvert skipti. Grjónin eru tilbú-
in þegar þau eru farin að mýkjast
og búin að drekka í sig vökvann.
Bætið að lokum sólþurrkuðum
tómötum, basil og mozzarella osti
út í pottinn og blandið vel saman.
Setjið grjónin á ofnskúffu og
dreifið aðeins úr og kælið.
Mótið grjónin í jafnar kúl-
ur. Dýfið kúlunum í eggin og
veltið þeim svo upp úr brauðraspi.
Endurtakið leikinn og dýfið aftur
í eggin og veltið svo aftur upp úr
brauðraspinum.
Kúlurnar eru svo steiktar í djúp-
steikingarolíu við 180°C þar til
þær verða fallega gylltar.
Nok Narumon „Pad thai í Taílandi er
svipað og pylsur á Íslandi."
Sérstakir básar hafa verið hannaðir og settir
upp í Fógetagarðinum í tilefni af götumatar
markaðnum. Ólafur Örn Ólafsson hefur skipu-
lagt markaðinn ásamt Gerði Jónsdóttur.
Kokkarnir á Uno verða á Krás götu-
matar markaði á morgun laugardag
og bjóða upp á ítalska réttinn
Arancini. Ljósmynd/Teitur
Láu hjartað ráða
Svalandi engiferdrykkur
alveg eir mínu höfði
enda er engifer í miklu
uppáhaldi. Drykkurinn
er gerður úr fyrstaflokks
lífrænu hráefni, meira
að seg ja vatnið hefur
lífræna vottun.