Fréttatíminn


Fréttatíminn - 25.07.2014, Qupperneq 50

Fréttatíminn - 25.07.2014, Qupperneq 50
Fyrstur forseta til að synja lögum staðfestingar (Fjölmiðlalögin 2004 og síðan Icesave-lögin 2010) 50 forsetakandídatar Helgin 25.-27. júlí 2014 Ó lafur Ragnar Grímsson lýsti því yfir þegar hann tilkynnti um framboð sitt til forseta í fimmta sinn árið 2012 að hann myndi hugsan- lega hverfa til annarra verkefna áður en kjörtímabilið væri á enda og forsetakosningar færu þá fram fyrr en ella. Nú er kjörtímabilið hálfnað og Ólafur Ragnar neitar að upplýsa þjóðina um áform sín samkvæmt því sem fram kom í fréttum RÚV á dögunum þar sem forsetaritari, Örnólfur Thorsson, segir að forsetinn ætli ekki að veita viðtal um þetta efni, „enda ræði hann ekki það sem fram hafi komið í kosningabaráttu eftir að hann hefur tekið við embætti. Um- ræða í kosningabaráttu verði ekki framlengd inn í embættis- tíð forseta,“ er haft eftir Örnólfi í fréttum RÚV. Þangað til forseta hugnast að tilkynna þjóðinni um áform sín er rétt að undirbúa farveginn fyrir næstu forsetakosningar, fara yfir feril Ólafs og velta upp hugmyndum um hvaða einstaklingur myndi leiða þjóðina farsællega eftir brott- hvarf Ólafs af Bessastöðum. Fréttatíminn hefur sett í gang kosningu á Facebook-síðu sinni (facebook/frettatiminn) þar sem stungið er upp á 16 einstaklingum sem blaðið telur að eigi fullt erindi í stól forseta. Lesendur blaðsins eru hvattir til að kjósa milli þessara 16 „frambjóðenda“ og bæta jafn- framt við nafni á listann telji þeir þörf á. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is Tími á nýjan forseta? Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, til- kynnti í síðustu kosningabaráttu að hann myndi ef til vill ekki sitja allt kjörtímabilið. Nú er það hálfnað og telur Fréttatíminn því tímabært að hefja umræðu um hver gæti orðið arftaki hans. Forseta- frambjóð- endurnir * Jón Gnarr Ragna Árnadóttir Guðbjartur Hannesson Bergþór Pálsson Magnús Geir Þórðarson Dagur B. Eggertsson Gísli Marteinn Baldursson Þóra Arnórsdóttir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Kristín Ingólfsdóttir Salvör Nordal Margrét Pála Ólafsdóttir Hildur Eir Bolladóttir Steinunn Sigurðardóttir Björk Guðmundsdóttir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Stefán Haukur Jóhannesson *Að mati Fréttatímans 16 Fyrstur fo rseta til að kvæ nast í embætti Á eftir að skipa utanþingsstjórn (eins og Sveinn Björnsson 1942) Á eftir að neita að taka við lausnarbeiðni forsætisráð- herra (eins og Sveinn Björnsson gerði með lausnarbeiðni Hermanns Jónassonar árið 1941) Fyrstur forseta til að hætta við að hætta Fyrstur forseta til að sitja lengu r en fjögur kjörtímabil Þótt það sé lööööngu uppselt á tónleika Justin Timberlake eiga lesendur Fréttatímans kost á því að vinna miða á tónleika ársins. Á Facebook-síðu Fréttatímans er lauflét- tur og skemmtilegur spurningaleikur upp úr efni blaðsins þessa vikuna. Hafðu blaðið við hendina meðan þú svarar spurnin- gunum og þú ferð létt með að svara og ert þar með komin/n í pott sem dregið verður úr á mánudaginn. Hinn heppni fær tvo miða á tónlei- kana sem fram fara í Kórnum þann 24. ágúst. Viltu vinna miða á Justin Timberlake? Finndu okkur á Facebook! VAKANDI!VERTU blattafram.is VERNDARI BARNA Í 10 ÁR 55% þeirra sem beita stúlkur kynferðislegu ofbeldi eru karlar tengdir fjölskyldu þeirra. VATNSHELDAR TÖSKUR OG SJÓPOKAR margar gerðir, stærðir og l itir í húsi Hirzlunnar, Smiðsbúð 6, Garðabæ, s ími : 564 5040 Duffle Big Zip Rack-Pack X-tremer PS 10 Moto dry bag PD 350 Sölustaðir: Útilíf Smáralind og Glæsibæ Kaupfélag Skagfirðinga Verslunin Eyri www.fjalli.is PD 350

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.