Fréttatíminn - 25.07.2014, Side 58
Komdu með bílinn
í skoðun hjá Aðalskoðun
frá 15. til 30. júlí og
þú gætir unnið
sólarlandaferð
með fjölskyldunni.
ert þú á leið
í sólina í boði
aðalskoðunar?
Opið kl. 8 – 17 virka dagawww.adal.is
tónlist lokatónleikar sumarsins í listasafni sigurjóns
Öndvegisverk tveggja sovéskra tónskálda
Einstakt tækifæri gefst til að hlýða á öndvegisverk tveggja
stærstu tónskálda Sovétríkjanna í
Listasafni Sigurjóns næsta þriðju-
dagskvöld, 29. júlí. Strokkvartettinn
Siggi flytur Strengjakvartetta númer
1 ópus 50 eftir Sergei Prokofiev
og númer 8 ópus 110 eftir Dmitri
Shostakovich. Kvartettinn skipa
strengjaleikarar úr Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands, fiðluleikararnir Una
Sveinbjarnardóttir og Helga Þóra
Björgvinsdóttir, Þórunn Ósk Mar-
inósdóttir víóluleikari og Sigurður
Bjarki Gunnarsson sellóleikari. Með
þessum tónum lýkur 26. starfsári
sumartónleika LSÓ, að því er fram
kemur í tilkynningu safnsins.
Una hefur leikið fiðlukonserta
Shostakovich, nr. 1, og Beethovens
með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Einnig hefur hún frumflutt á Íslandi
fiðlukonserta Philip Glass, Kurt
Weill, Atla Heimis Sveinssonar, Páls
Ragnars Pálssonar, Högna Egils-
sonar og Sveins Lúðvíks Björnssonar
með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hún
fæst einnig við tónsmíðar og hefur
unnið með Jóhanni Jóhannssyni og
Bedroom Community.
Una er konsertmeistari
Kammersveitar Reykjavíkur og
hefur verið gestakonsertmeistari
Klassische Philharmonie Bonn,
Trondheim Symfoniorkester og
Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hún
kennir fiðluleik og kammertónlist
við Tónlistarskólann í Reykjavík og
Nýja tónlistarskólann.
Helga Þóra hefur oft leikið einleik
með Sinfóníuhljómsveit Íslands,
Sinfóníuhljómsveit unga fólksins og
með strengjasveitinni Skark. Hún
hefur verið meðlimur kammer-
sveitarinnar Ísafoldar frá upphafi,
er meðlimur Elektra Ensemble
og strokkvartettsins Siggi og
leikur reglulega með Kammersveit
Reykjavíkur og Ensemble Adapter
í Berlín.
Þórunn Ósk starfar sem leiðandi
víóluleikari við Sinfóníuhljómsveit
Íslands og kennir á víólu við Tón-
listarskólann í Reykjavík og Listahá-
skóla Íslands.
Sigurður Bjarki hefur komið fram
á tónleikum á Íslandi, Bretlandi,
Japan, Bandaríkjunum og Kanada,
með ýmsum tónlistarhópum í
Skandinavíu, Bretlandi og Bandaríkj-
unum, þar á meðal í Carnegie Hall
og Lincoln Center. Sigurður Bjarki
hefur starfað með í Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands síðan 2002.
Strokkvartettinn Siggi varð til
á tónlistarhátíðinni Ung Nordisk
Musik 2012. Kvartettinn kom fram í
röðinni Klassík í Salnum síðast-
liðinn vetur, þar sem þau frumfluttu
meðal annars strengjakvartett eftir
Hauk Tómasson og í tónleikaröðinni
Töframáttur tónlistar árið 2014. -jh
B örnin skipa heiðurssess í Viðey næstkomandi sunnudag, 27. júlí þegar
Reykjavíkurborg heldur Barna-
daginn hátíðlegan í eyjunni. „Þá
bjóðum við yngstu meðlimi fjöl-
skyldunnar sérstaklega velkomna
og gerum það sem börnum þykir
skemmtilegast – við leikum okkur
allan liðlangan daginn! Fullorðnir
í fylgd með börnum eru auðvitað
hjartanlega velkomnir líka,“ segir í
tilkynningu borgarinnar.
„Í júlílok skartar eyjan sínu feg-
ursta og verður enn fallegri þegar
litlir krakkar í litríkum fötum
hlaupa um og leika sér. Við mun-
um bjóða upp á allskonar skemmti-
legt og það munu örugglega allir
Sigurður Bjarki Gunn-
arsson sellóleikari,
Una Sveinbjarnar-
dóttir fiðluleikari,
Helga Þóra Björg-
vinsdóttir fiðlu-
leikari og Þórunn
Ósk Marinósdóttir
víóluleilari. Mynd/
Listasafn Sigurjóns
fjölskylduskemmtun yngsta kynslóðin í fyrirrúmi á sunnudaginn
Barna-
dagurinn
haldinn
hátíðleg-
ur í Viðey
Barnadagurinn verður í Viðey á sunnu-
daginn. Þá skipar yngsta kynslóðin
heiðurssess.
finna eitthvað við sitt hæfi. Svo er
auðvitað alveg yndislegt að njóta
þess einfaldlega að vera úti í nátt-
úrunni og skoða sig um. Þessi
dagur hefur alltaf slegið í gegn hjá
krökkunum og í ár verður örugg-
lega engin breyting á því,“ segir
enn fremur.
Siglt er frá Skarfabakka klukkan
12.15. Ferjutollur er 1100 krónur
fyrir fullorðna, 550 krónur fyrir
7–15 ára og ókeypis fyrir 6 ára
og yngri. Eldri borgarar greiða
900 krónur í ferjuna. Handhafar
Gestakortsins sigla frítt og hand-
hafar Menningarkortsins fá 10%
afslátt af bæði ferjusiglingu og
veitingum.
jonas@frettatiminn.is
Viðey verður enn fallegri þegar litlir krakkar í litríkum fötum
hlaupa um og leika sér. Myndir Reykjavíkurborg
Dagskrá Barna-
dagsins í Viðey
12.15–16.00 Hægt verður að kaupa
grillaðar pylsur af kokkunum í Við-
eyjarstofu. Ís í boði hússins!
12.15–14.45 Forvitnar og skrítnar
furðuverur verða á vappi.
12.30–14.30 Skátarnir Landnemar
fara í allskonar leiki með krökkunum.
12.30-14.30 Andlitsmálning.
12.30–13.30 Fjölskyldujóga með
Arnbjörgu Kristínu Konráðsdóttur
jógakennara.
12.30–15.00 Fjörufjör með Addý
frá “Allt er hægt” náttúruupplifun.
Takið með háfa, net, skóflu og, fötur í
fjöruna. Einnig verður hægt að senda
flöskuskeyti.
15.00–15.30 Fjörug barnamessa í
Viðeyjarkirkju.
15.30–16.00 Lalli töframaður sýnir
töfrabrögð og fær hjálparkokka af
grasbalanum.
58 menning Helgin 25.-27. júlí 2014