Fréttatíminn - 25.07.2014, Qupperneq 60
Í takt við tÍmann hlynur hallgrÍmsson, söngvari Eglu og 1860
Gæti ekki farið í gegnum lífið án Leví s 501 og Pepsi Max
Hlynur Hallgrímsson er 29 ára og starfar sem tónlistarmaður. Hann er meðlimur í hljómsveitunum 1860 og EGLA sem var að gefa út plötuna Þyrnirós núna á
dögunum. Síðastliðin 6 ár hefur hann starfað sem við dagskrárgerð og útsendingarstjórn á Bylgjunni en stendur á tímamótum. Í haust ætlar hann að segja skilið
við útvarpið og skella sér í meistaranám í stjórnmálahagfræði á Bifröst.
Staðalbúnaður
Ég hafði svosem ekki pælt í því fyrr
en að mér var bent á það um daginn,
en ég geng nær eingöngu í svörtum
Levi’s 501 gallabuxum. Á þrenn
pör sem ég bara rótera. Þess fyrir
utan er ég alltaf með armbandsúr á
vinstri og á þeirri hægri er ég með
Datoga trúlofunararmband, sem ég
og hún Una, unnusta mín, fengum
okkur í Tanzaníu. Ef ég er ekki með
bæði, þá fer eiginlega „innri balans-
inn“ hjá mér í algjört rugl og ég verð
ómögulegur. Síðan er aldrei langt í
Pepsi Max dósina hjá mér. Þegar ég
pæli í því, þá hugsa ég að ég myndi
örugglega fúnkera alveg bærilega
buxnalaus og án úrs og armbands ef
ég fengi bara nóg af Pepsi Max.
Hugbúnaður
Oftast er dægrastyttingin að
glamra, annað hvort á mandólínið
eða á píanó. Þess utan eyði ég tíma
í sjónvarpsgláp og kúr með kæró.
Rick and Morty er t.d. stórkostlegt
sjónvarpsefni en það er hinsvegar
Game of Thrones sem er í sérstöku
uppáhaldi. Er einmitt að ljúka við
fimmtu bókina í A Song of Ice and
Fire. Það er möguleiki á að ég gangi
í hafið þegar ég klára hana og verð
ekki með neitt Game of Thrones í
lífi mínu, hvorki sjónvarpsþætti né
bækur.
Vélbúnaður
Er með iPhone 4, sem stendur enn
sína plikt. Það smáforrit sem ég
nota langmest er Spotify, þvílíkur
tryllingur sem það er að vera með
nær alla heimsins tónlist í vasanum.
Langar þig til að hlusta á General
MD Shirinda & the Gaza Sisters, nú
eða bara Vieux Farka Touré? Ekki
málið, þetta er allt þarna inni! Síðan
er Loopy appið líka snilld ef mann
langar til að fíflast á meðan maður
bíður eftir strætó. Heima fyrir er það
Macbook Pro sem hefur reynst mér
gríðarlega vel, bæði í hljóðvinnslu
sem og í freelance umbrotsvinnu
sem ég hef tekið að mér í gegnum
tíðina. Fann það að vísu núna á dög-
unum þegar ég vann að nýju plötu-
umslagi fyrir Stórsveit Reykjavíkur
að þessi elska var nú ekki alveg jafn
lipur og maður hefði viljað, þannig
að líklegast er stutt í uppfærslu.
Aukabúnaður
Ég er að taka tímabil þar sem ég
er allt, allt of oft að fá mér núðlur
á vaði frá Núðluskálinni. Núðlur á
vaði og Pepsi Max... ég kemst bara
í gott skap við að segja þetta upp-
hátt. Ég er búinn með sumarfríið
mitt, sem fór í ferðalag um megin-
land Tanzaníu og Zanzibar með fjöl-
skyldu minni og unnustu, þannig
restin af sumrinu fer bara í að klára
þessar síðustu vaktir á Bylgjunni.
Við í 1860 erum að fara að spila eitt-
hvað smá, og erum jafnframt að
fara að taka upp myndband fyrir
nýtt lag. Síðan þarf EGLA að kynna
sig almennilega. Það er soldið sér-
stakt fyrirkomulag í gangi, í raun
tvær birtingarmyndir af hljóm-
sveitinni – gamla EGLA og nýja
EGLA. Upprunaleg mynd EGLU er
einmitt að spila á Frönskum dögum
á Fáskrúðsfirði um helgina og flytja
þá gamla efnið. En svo þegar sveitin
kemur til baka í bæinn þá fæ ég að
vera memm aftur og þá verður efnið
af nýju plötunni flutt. Það verður
líka brjálað mikið að gera hjá kæró,
Unu Stef. Það eru margir tónleikar
á næstunni hjá henni. Það læðist að
mér sá grunur að ég verði eitthvað
að spila undir hjá henni. Þannig að
það verður spilamennskufjör það
sem eftir lifir sumars. Eftir þau
herlegheit þarf maður bara að ydda
blýanta, skoða námsskrá og preppa
sig andlega fyrir það að setjast aftur
á skólabekk.
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Lj
ós
m
yn
d/
Te
it
ur
F áar konur taka þátt í gerð þeirra fjögurra kvikmynda sem teknar verða á Íslandi í sumar og haust með styrkjum frá Kvikmyndamiðstöð
Íslands. Formaður félagsins Konur í kvikmyndum og
sjónvarpi segir það þjóðfélagsmein að konur geti ekki
speglað sig í íslenskum kvikmyndum, að því er fram
kom í viðtali við Ríkisútvarpið.
„Ég veit til þess að núna í ár sóttu fjórar af okkar
efnilegustu kvikmyndagerðarkonum um handrits-
styrk til þess að gera
kvikmynd í fullri lengd.
Þær fengu jákvætt
svar frá ráðgjafa en
peningarnir voru búnir
í sjóðnum, þannig að
þær fengu ekki styrk.
Á sama tíma er verið að
gera fjórar bíómyndir í
sumar, sem er leikstýrt
af körlum með karla í
öllum aðalhlutverkum,“
segir Dögg Mósesdótt-
ir, formaður félagsins
Konur í kvikmyndum
og sjónvarpi, að því er fram kemur í viðtalinu.
Aðeins þrjár konur eru á meðal 21 handritshöf-
undar, leikstjóra, framleiðanda og aðalleikara þeirra
fjögurra kvikmynda sem teknar verða víðs vegar um
Ísland í sumar. Bíómyndirnar fjalla allar að miklu
leyti um samskipti karla.
„Ísland er það eina af Norðurlöndunum þar sem
nær öll framleiðsla kvikmynda er ríkisstyrkt. Þrátt
fyrir það gengur konum illa að komast að við fram-
leiðslu kvikmyndar í fullri lengd. Dögg telur að
jafnvel ætti að eyrnamerkja hluta Kvikmyndasjóðs
verkefnum eftir konum. Dæmin sanni að enginn
skortur sé á sögum eftir þær. Kalla verði eftir þeim
með skipulegum hætti, líkt og hafi gefist vel annars
staðar á Norðurlöndunum,” segir enn fremur í RÚV
viðtalinu.
„Þetta er svo mikið þjóðfélagsmein, að konur sjáist
ekki og geti ekki speglað sig í íslenskum kvikmynd-
um. Þetta er bara alvarlegt mál. Það þarf að gera eitt-
hvað róttækt í þessu því þetta breytist ekki af sjálfu
sér,“ segir Dögg Mósesdóttir í viðtalinu við Ríkisút-
varpið.
kvikmyndir styrkir kvikmyndasjóðs
Kvikmyndagerðarkonur
hafðar út undan
Kvikmyndin
Hrútar í leik-
stjórn Gríms
Hákonarsonar
er ein hina
fjögurra nýju
mynda. Hún
er í leik-
stjórn Gríms
Hákonarsonar
og verður tekin
upp á Mýri
og Bólstað í
Bárðardal í
haust. Mynd
641.is
60 dægurmál Helgin 25.-27. júlí 2014