Fréttatíminn - 25.07.2014, Síða 62
Geimfílingur á smástirni
Breiðskífan Smástirni frá Klassart hefur fengið lofsamlegar viðtökur. Sveitina skipa þrjú systkini,
feðgar og frændur. Trommuleikarinn er ekki tengdur þeim blóðböndum en þó hluti af fjölskyldunni.
H ljómsveitin Klassart gaf á dög-unum út breiðskífuna Smástirni sem hefur fengið góðar viðtökur og
hefur lagið Flugmiði aðra leið setið ofarlega
á vinsældalista Rásar tvö. Þá gaf Andrea
Jónsdóttir breiðskífunni hæstu mögulegu
einkunn í Popplandi á dögunum. Smástirni
er þriðja breiðskífa Klassart og að sögn
Fríðu Dísar Guðmundsdóttur er tónlistin
þar svolítið öðruvísi en áður hjá þeim. „Við
teljum hraðar í og vinnum með sinta þannig
að það er smá geimfílingur. Undir niðri
er samt þessi melankolía sem hefur fylgt
okkur. Það má segja að þetta sé gamaldags
tónlist í nýjum búningi.“
Segja má að Klassart sé sannkallað fjöl-
skylduband því að hana skipa auk Fríðu
Dísar tvö systkini hennar; þau Smári Guð-
mundsson, eða Smári klári, eins og hann er
kallaður og Særún Lea, yngri systir þeirra
sem syngur bakraddir. Þau systkinin eru
úr Sandgerði. Upptökustjóri plötunnar var
Keflvíkingurinn Björgvin Ívar Baldursson
en faðir hans, Baldur Þórir Guðmundsson,
leikur einnig með Klassart. Frændi þeirra
feðga, Gunnar Skjöldur Baldursson, spilar
einnig með hljómsveitinni. „Trommarinn,
Þorvaldur Ingveldarson, er úr Reykjavík
og hann er ekki skyldur neinu okkar en er
samt eins og einn af okkur í fjölskyldunni,“
segir Fríða Dís. Hljóðmaðurinn, Ástþór
Sindri Baldursson, fylgir Klassart í hvert
mál en hann bróðir Björgvins Ívars og
sonur Baldurs.
Eftir útgáfuna hefur Klassart spilað á
tónleikum víða um land og fylgt plötunni
eftir. Útgáfutónleikar voru haldnir í Sand-
gerði og í Kaldalónssal í Hörpu. Þá voru
þau Örn Eldjárn gítarleikari og Soffía Björg
söngkona úr Brother Grass með í för. Næst
á dagskránni eru svo tónleikar á tónlist-
arhátíðinni Gærunni á Sauðárkróki um
miðjan ágúst. Fríða Dís segir þó aldrei að
vita nema þau telji í tónleika áður.
Auk þess að lifa og hrærast í tónlist
stundar Fríða Dís nám í listfræði við Há-
skóla Íslands og stefnir að útskrift næsta
vor. „Þá verð ég vonandi búin að leggja
þann grunn að tónlistarferlinum sem mig
langar. Svo er bara að stökkva. Þetta er það
sem ég ætla að leggja fyrir mig svo það er
aldrei að vita hvað gerist.“
Breiðskífan kom bæði út á geisladiski og
vínyl og er þetta í fyrsta sinn sem Klass-
art gefur út á vínyl. „Við erum að reyna að
koma til móts við alla okkar aðdáendur.
Það er misjafnt hvernig fólk vill hlusta á
sína tónlist.“ Plötuna er hægt að nálgast á
vefnum tonlist.is og á Spotify. Nánari upp-
lýsingar um Klassart má nálgast á Facebo-
ok-síðunni Klassart.
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
Það er
misjafnt
hvernig
fólk vill
hlusta
á sína
tónlist.
62 dægurmál Helgin 25.-27. júlí 2014
tónlist Fjölskylduband Fær góðar viðtökur
Klassart gaf á dögunum út breiðskífuna Smástirni bæði á geisladiski og vínyl. Myndin er tekin á tónleikum á Rósenberg á dög-
unum. Ljósmynd/Þorsteinn Surmeli
Fríða Dís söngkona Klassart stundar nám í list-
fræði við HÍ og ætlar að gefa sig alla að tónlistar-
ferlinum að lokinni útskrift næsta vor. Ljósmynd/
Þorsteinn Surmeli
Ora grillsósur fást í næstu verslun!
Lúxus
Bernaisesósa
tónlist HaFdís Huld kynnir Þriðju sólóplötuna
Í tónleikaferð um landið með fjölskylduna
É g hef haldið mörg hundruð tónleika erlendis en mjög fáa
hér á Íslandi svo það var
alveg komin tími á það,“
segir Hafdís Huld sem gaf
út sína þriðju sólóplötu nú í
vor, „Home“. Hafdís hélt út-
gáfutónleika á Álafosskaffi í
Mosfellsbæ í vor, en hún er
nýflutt í Mosfellsdal. „Nú er
ég nýflutt heim til Íslands
með manninum mínum sem
er breskur og tveggja ára
dóttur okkar. Mig langaði til
að ferðast með þau um land-
ið svo ég ákvað að fara bara
í tónleikaferð. Amma dóttur
minnar kemur með okkur
og ætlar að passa hana á
meðan við spilum. Ég er
búin að stefna svo lengi á
að gera þetta en aldrei haft
tíma til þess fyrr en núna,“
segir Hafdís en nýja platan
fjallar um upplifun hennar
af því að flytja heim.
„Hún er öll tekin upp
heima í bleika húsinu okkar
í Mosfellsdalnum og þemað
á henni tengist mínu um-
hverfi. Platan er frekar jarð-
bundin og þess vegna ákvað
ég að tala við Ferðaþjónustu
bænda og er að skipuleggja
ferðina í samstarfi við þá.
Þetta verða 10 tónleikar og
svo gistum við í bændagist-
ingu nálægt hverjum stað,“
segir Hafdís sem getur ekki
beðið eftir að sýna fjölsyld-
unni landið.
„Útgefendum mínum í
Bretlandi og Bandaríkjun-
um leist nú ekkert sérstak-
lega vel á það að ég ætlaði
að vera í allt sumar á Íslandi
svo ég lofaði að nýta ferðina
í að taka líka upp óraf-
mögnuð vídeó af fallegum
stöðum á landinu,“ segir
Hafdís stefnir á tónleikaferð
um Bandaríkin og Bretland
í vetur.
Tónleikaferðin stendur
yfir frá 17. júlí til 2. ágúst og
hægt er að sjá tónleikastað-
ina á vefsíðu Hafdísar: www.
hafdíshuld.com -hh
Hafdís Huld er
nýflutt til Ís-
lands og hefur
komið sér vel
fyrir í bleiku
húsi í Mosfells-
dalnum.
„Look around you“
Sýning Önnu Hrundar Más-
dóttur og Helga Más Krist-
inssonar verður opnuð í
Kunstschlager á morgun,
laugardaginn 26. júlí. Heiti
sýningarinnar er „Look around
you en hún er samtal milli
listamannanna en leiðir þeirra
liggja saman í litapælingum,
fundnum hlutum og hversdags-
leikanum. Verkin á sýningunni
eru öll ný og sérstaklega sniðin
Glænýtt íslenskt tónverk verður frumflutt í Skálholti um helgina.
Verkið er eftir staðartónskáld sumarsins, Pál Ragnar Pálsson, en
hann samdi það sérstak-
lega fyrir Sumartónleika,
við texta úr Ljóðaljóðunum.
Hljómeyki mun flytja verkið
en einnig verða flutt fleiri
verk eftir Pál Ragnar. Ein-
söngvarar á tónleikunum
eru Hafsteinn Þórólfsson
baritón og hin eistneska
sópransöngkona Yiu Hirv.
Páll Ragnar lærði tón-
smíðar í Listaháskóla Ís-
lands en hélt svo til Tallin í
framhaldsnám. Sumartón-
leikarnir standa yfir í fjórar
vikur á hverju sumri og það er hefð fyrir því að kórinn Hljómeyki
komi þar fram, Það er líka hefð fyrir því að pantað sé eitt verk
af staðarskáldi hvert sumar sem er svo flutt á tónleikum hér,“
segir Páll sem ákvað að semja 20 mínútna verk við Ljóðaljóðin.
Tónleikar Hljómeykis og Páls Ragnars verða fluttir á laugardag-
inn 26. júlí klukkan 15 og sunnudaginn 27. júlí klukkan 15.
skálHolt glænýtt íslenskt tónverk
Tuttugu mínútna verk við Ljóðaljóðin
fyrir Kunstschlager. Anna Hrund starfar sem mynd-
listarmaður en hefur einnig bakgrunn í stærðfræði
og stefnir á framhaldsnám í Los Angeles. Helgi Már
starfar líka sem myndlistarmaður en auk þess er hann
sýningarstjóri í Listasafni Íslands. Verk hans einkenn-
ast af tengingum í listasöguna og hversdagsleikann.
Djass á Jómfrúnni
Veitingahúsið Jómfrúin við Lækjargötu verður með
djasstónleika á morgun, laugardaginn 26. júlí klukkan
17. Það er sveif-
lukvartett Reynis
Sigurðssonar sem
mun stíga á stokk
þessa helgina en tón-
leikarnir eru hluti af
sumardjasstónleika-
röð Jómfrúrinnar.
Í sveiflukvartett
Reynis Sigurðssonar víbrafónleikara eru auk hans
Haukur Gröndal á klarinett og saxófón, Gunnar Hilm-
arsson á gítar og Leifur Gunnarsson á kontrabassa.
Þeir munu flytja sígilda sveiflutónlist og tónleikarnir
fara fram utandyra á Jómfrúartorginu.
Páll Ragnar
Pálsson,
staðartónskáld
Sumartónleika í
Skálholtskirkju
2014.