Víkurfréttir - 26.05.2011, Síða 6
6 Fimmtudagurinn 26. maí 2011VÍKURFRÉTTIR
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið gunnar@vf.is. Auglýsingar
berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á
fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is.
Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur
frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur
auglýsinga fram um einn sólarhring.
Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar
birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu
greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent
efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum
Víkurfrétta.
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, sími 421 0000
Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is
Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is
Gunnar Einarsson, sími 421 0001, gunnar@vf.is
Víkurfréttir ehf.
Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0011, thorgunnur@vf.is
Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0011
Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0009, rut@vf.is
og Aldís Jónsdóttir, sími 421 0010, aldis@vf.is
Landsprent
9000 eintök.
Íslandspóstur
www.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is
Útgefandi:
Afgreiðsla og ritstjórn:
Ritstjóri og ábm.:
Fréttastjóri:
Blaðamaður:
Auglýsingadeild:
Umbrot og hönnun:
Auglýsingagerð:
Afgreiðsla:
Prentvinnsla:
Upplag:
Dreifing:
Dagleg stafræn útgáfa:
Ritstjórnarpistill Víkurfrétta
páll ketilsson, ritstjóri
Ekki er vika án Víkurfrétta - sem koma næst út miðvikudaginn 1. júní. Bókið auglýsingar í síma 421 0001 eða gunnar@vf.is
Reykjanesbær er ekki eina sveitarfélagið sem er í erf-
iðleikum með að láta enda ná
saman því Sandgerðingar virðast
vera í enn meiri vandræðum. Þeir skulda
fimm og hálfan milljarð króna sem er
rúmlega fimm sinnum meira en árstekjur
þeirra. Það er ljóst að nýr bæjarstjóri er
ekki öfundsverður í starfi sínu en hann
þarf að taka fram galdrastafinn á næst-
unni til að laga til erfiða stöðu. Svo virðist
sem Sandgerðingar hafi farið fram úr sér í góðærinu
og eru að súpa seiðið af því. Þó rekstur hjá nágrönnum
þeirra í Garði sé líka erfiður þá er skuldastaðan þar allt
önnur. Garður skuldar fáa krónupeninga.
Þá komum við að því sem við höfum rætt hér áður
í ritstjórnarpistli. Sameining sveitarfélaga, nokkuð
sem forráðamenn minni sveitarfélaganna á Suðurnesj-
um á undanförnum áratugum hafa ekki viljað ræða,
þurfa núna að fara að vakna til lífsins og skoða þann
möguleika af alvöru. Það segir sig sjálft að Sandgerði og
Garður gætu leikandi dottið inn í Reykjanesbæ með lít-
illi fyrirhöfn og þannig gætu strax sparast mjög stórar
fjárhæðir. Nú er staðan hins vegar sú að það er ljóst að
forráðamenn Reykjanesbæjar verða líklega ekki neitt
spenntir fyrir svona sameiningu því rekstur á minni
sveitarfélögum er mun erfiðari en á þeim stærri. Til
framtíðar og heildarinnar litið er þetta
þó eina vitið. Það sé hver heilvita maður.
Nú er ekki lengur hægt að láta tilfinn-
ingar ráða. Nú er það veskið sem æpir á
og heimtar að það sé lagað. Forráðamenn
þessara sveitarfélaga munu án efa innan
skamms tíma með góðu eða illu þurfa að
setjast niður og undirbúa sameiningu.
Það væri hægt að afgreiða hana fyrir
næstu bæjarstjórnarkosningar, eftir tvö
ár. Þá verður líka hægt að segja að nafnið
Reykjanesbær fari að standa undir nafni með megnið af
Reykjanesinu í sama bæjarfélagi.
All nokkur nýsköpunarfyrirtæki hafa sprottið upp í
kreppunni. Eitt þeirra er Spiral en það er í eigu tveggja
kvenna sem hanna kvenfatnað. Um það er fjallað í
blaðinu í dag. Að loknu fyrsta árinu ætla eigendur þess
að fara í reksturinn af alvöru eftir að hafa sinnt honum
í aukavinnu fyrsta árið. Fleiri slík dæmi væri hægt að
benda á. Þetta eru jákvæðar fréttir því svona sprotar
koma með ávöxt inn í samfélagið og hafa jákvæð áhrif
í atvinnulífinu. Þó fleiri smærri fyrirtæki sjái dagsins
ljós er ljóst að það mun ekki duga til skemmri tíma
til að hafa nægilega mikil áhrif á atvinnulífið í mjög
svo slæmu ástandi sem nú er. Því er það nauðsynlegt
að stærri verkefni á borð við álver komist í gang til að
koma Reykjanesinu í alvöru gír á nýjan leik.
Afgreiðsla Víkurfrétta er opin
alla virka daga frá kl. 09-12 og 13-17.
Athugið að föstudaga er opið til kl. 15.
Sameining og nýsköpun á Suðurnesjum
vf.is
Auglýstu í Víkurfréttum!
Auglýsingasíminn er 421 0001
Tölvupóstur: gunnar@vf.is
Tvær viðurkenningar komu til Suðurnesja á aðalfundi
Rauða kross Íslands sem fór fram
í Stapa um sl. helgi. Suðurnesja-
deild Rauða kross Íslands fékk
viðurkenningu fyrir verkefnið
Ungt fólk til athafna og þá fékk
Kristín Gestsdóttir viðurkenn-
ingu fyrir framúrskarandi sjálf-
boðaliðastarf í þágu Rauða kross
Íslands.
Yfir 100 fulltrúar deilda Rauða
kross Íslands sátu aðalfundinn sem
fram fór í Reykjanesbæ.
VORSÝNING NEMENDA
2011
Laugardaginn. 28. Maí
kl. 14:00 og kl. 16:00
ANDREWS LEIKHÚSINU,
FLUGVALLARBRAUT 700, ÁSBRÚ
GSM: 772 1702 WWW.BRYN.IS NETFANG: BRYN@BRYN.IS
Miðaverð Kr.1200*
*Frítt fyrir 7 ára og yngri í fylgd með fullorðnum.
LISTDANSSKÓLIREYKJANESBÆJARBRYNBALLETTAKADEMÍAN
Allir velkomnir!
Kolbrún Sigurðardóttir,
Jóhanna Guðrún Sigurðardóttir,
Hansína Sigurðardóttir, Pétur Jónsson,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð
og hlýju við andlát og útför ástkærs föður okkar,
tengdaföður, afa, langafa og langalangafa,
Sigurðar Sturlusonar,
frá Þverdal, Aðalvík,
Faxabraut 13-15, Keflavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hjúkrunarheimilisins
Hlévangs fyrir einstaka umönnun og hlýju.
Rúnar Helgason, formaður Suðurnesjadeildar RKÍ og Kristín Gestsdóttir.
Viðurkenningar til
Suðurnesja frá RKÍ
Stapinn var þétt setinn á aðalfundi Rauða kross Íslands.
Næsta blað á miðvikudaginn!
Þar sem uppstigningardagur er fimmtudaginn 2. júní
þá kemur næsta blað út miðvikudaginn 1. júní.
Skilafrestur auglýsinga er mánudaginn 30. maí.
Sími auglýsingadeildar er 421 0001 - póstur: gunnar@vf.is