Víkurfréttir - 26.05.2011, Blaðsíða 7
Fimmtudagurinn 26. maí 2011 VÍKURFRÉTTIR 7
›› Listatorg í Sandgerðisbæ:
Erum að hætta með Hekluumboð á Suðurnesjum bæði verkstæðisrekstur og söludeild.
Við þökkum viðskiptavinum okkar kærlega fyrir viðskiptin og samskiptin á liðnum árum.
Á myndinni eru frá vinstri :
Hörður Birkisson (hjá Bílar og Hjól Öskjuumboð þjónustuumboð /Kia og Mercedes-Benz), Sigtryggur Steinarsson (K.Steinarsson ehf Söluum-
boð Öskju Kia og Mercedes-Benz), Kjartan Steinarsson (K.Steinarsson ehf Söluumboð Öskju /Kia og Mercedes-Benz),
Guðbjörg Theodórsdóttir (K.Steinarsson ehf Söluumboð Öskju /Kia og Mercedes-Benz),
Sigurgeir H. Ásgeirsson (Æco-Þjónustan Toyota umboð), Jacek K. Karczmarczyk (Hópferðir Sævars Baldurs og Ferðaþjónustu Reykajaness),
Á myndina vantar Birnu Björnsdóttur (Icelandair veitingadeild)
Fimmtudaginn 26. maí kl. 20:30.
Þórir Baldursson, Einar Valur Scheving og Jóel Pálsson.
Miðaverð kr.1500.-
HR. HAMMOND
KAFFI DUUS
Undirbúningur stendur yfir
hjá félagsmönnum
Listatorgs vegna
S j ó m a n n a d a g s -
helgarinnar en þá
verður blásið til
heilmikillar veislu
ti l heiðurs sjó-
mönnum, sjónum
og sjávarfangi, á hátíð sem kallast
SJÁVARROKK.
Gallerý handverksfólks í Listatorgi
hefur farið í gegnum andlitslyftingu
undanfarið og mun einnig opna
eftir breytingar þessa helgi, með
fullt af fallegu íslensku handverki.
Dagskráin verður mjög fjölbreytt
þessa fyrstu helgi í júní en fyrst má
nefna opnun listsýningar Fríðu
Rögnvaldsdóttur, listakonu úr
Reykjanesbæ, laugardaginn 4. júní,
í sal Listatorgs.
Fræðasetrið í Sandgerði verður
með opið upp á gátt þessa helgi
en þar má meðal annars finna alls
konar furðudýr og smáskrímsli úr
sjónum. Á planinu
úti við Listatorg
verða kör frá Fræða-
setrinu með lifandi
fiskum og furðu-
dýrum úr sjónum.
Mjög spennandi
sýning fyrir alla ald-
urshópa.
Veitingahúsið Vit-
inn mun afhúpa sjávarréttamat-
seðil sinn þessa helgi en í sumar er
ráðgert að bjóða þar upp á ljúffenga
fisk- og sjávarrétti. Forsmekkurinn
að glæsilegu veitingasumri hefst
þessa helgi hjá þeim hjónum Bryn-
hildi og Stefáni.
Vitinn býður gestum einnig upp
á girnilegt kaffihlaðborð, bæði
laugardag og sunnudag á sann-
gjörnu verði þessa helgi.
SJÁVARROKK verður sem sagt
hátíðarskemmtun fyrir alla lands-
menn, frá klukkan 13:00 til 17:00 á
Sjómannadagshelgi í Sandgerðisbæ.
Mætið snemma og eigið góðan dag
í fersku sjávarlofti!
Menningarráð Suðurnesja ásamt menningarfulltrúum sveitarfélaga
á Suðurnesjum standa fyrir Málþingi um
menningu, laugardaginn 28. maí nk. Mál-
þingið fer fram í Bíósal Duushúsa og hefst
kl. 11. Stefnt er að því að Málþinginu ljúki
um kl. 15. Þema Málþingsins er Staðarvit-
und/Staðarímynd.
Við höfum fengið ti l l iðs við okkur
valinkunna fyrirlesara, sem hafa mikla þekk-
ingu og reynslu af menningarmálum og
menningartengdri ferðaþjónustu. En það eru
þeir Einar Falur Ingólfsson, ljósmyndari og
blaðamaður, Kjartan Ragnarsson, forstöðu-
maður Landnámsseturs Íslands í Borgar-
nesi og Jónatan Garðarsson, útvarpsmaður,
útgefandi og viðburðarstjórnandi.
Auk þess munu 10 listamenn og menningar-
forkólfar sem allir vinna á Suðurnesjum í
skapandi greinum, verða með stutt inn-
legg um framtíðarsýn og tækifæri í atvinnu-
sköpun hver á sínu listasviði. Listamenn-
irnir eru: Sossa, myndlist, Jóhann Smári
Sævarsson, Norðuróp, Marta Eiríksdóttir,
Púlsinn, Guðmundur Magnússon, Stein-
bogi kvikmyndagerð, Marta Jóhannesdóttir,
Hlaðan, Bergur Ingólfsson, GRAL atvinnu-
leikhús, Baldur Guðmundsson, Geimsteinn,
Ellert Grétarsson, gönguleiðir, ljósmyndir,
Hildur Harðardóttir, Gallerí8, Íris Jónsdóttir,
Spiral design. Auk þess sem Kristján Pálsson
hjá Markaðsstofu Suðurnesja verður með
stutt erindi um verkefni sem Markaðsstofan
vinnur að m.a. fjölgun ferðamanna á Suður-
nesjum.
Málþingið er öllum opið og aðgangur er
ókeypis. Rjúkandi heitt kaffi á könnunni og
samlokur í hádegishléi.
Suðurnesjamenn eru hvattir til að mæta og
taka virkan þátt í framgangi menningar- og
menningarferðaþjónustu á Suðurnesjum,
segir í tilkynningu frá Menningarráði.
Furðudýr til sýnis!
Málþing um menningu í Bíósal Duus-húsa á laugardaginn