Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.05.2011, Blaðsíða 12

Víkurfréttir - 26.05.2011, Blaðsíða 12
12 Fimmtudagurinn 26. maí 2011VÍKURFRÉTTIR ›› Séra Sigurður Grétar prestur að Útskálum í viðtali: Trúfastur hópur sem stendur fast við sína kirkju - Hvernig er að þjóna að Út- skálum? „Það er mjög ánægjulegt. Ég er búinn að vera hérna núna í rúm- lega eitt og hálft ár. Maður hefur lært mikið og vonandi þroskast eitthvað. Þetta er mjög ólíkt því sem ég þjónaði áður fyrir norðan. Hér finnur maður að það eru tvær myndugar litlar sóknir í sjálf- stæðum bæjarfélögum og tvær félagslegar einingar. Maður verður stundum svolítið þeytispjald á milli sóknanna. Það er mjög trú- fastur hópur hér sem stendur fast við bakið á kirkjunni. Það finnur maður vel. Hér að Útskálum er töluverður hópur sem ber sterkar tilfinningar til þessarar kirkju og þessa staðar. Af og til, sérstaklega á vorin og haustin, kemur hingað fólk annars staðar frá í messu sem heyrði hana auglýsta í útvarpi eða sá í Mogganum. Þetta er fólk sem á einhverjar minningar tengdar þessari kirkju. Ég man eftir nokkrum dæmum þar sem fólk kemur í hárri elli hingað og dregur svolítið andann til að rifja upp minningar“. Bæði þorps- og sveitakirkja „Margir hafa komið hingað og viljað sjá kirkjuna eftir endur- bæturnar sem þykja hafa heppnast mjög vel. Ég er pínu sveitakall í mér og líkar það vel og finnst ánægjulegt að þjóna í kirkju sem er bæði sveitakirkja og einnig þorps- kirkja, sem Útskálakirkja er. Hún er þannig staðsett í Garðinum og Garðurinn liggur eins og hann liggur. Byggðin er blanda af þorpi og sveitaandrúmslofti. Það er merkilegt, og kannski hugsar maður ekki nóg um það, en þessi staðreynd að þjóna á stað og predika í kirkju, annast helgihald í kirkju og þjónusta söfnuð í gleði og sorg, í húsi sem margar kyn- slóðir hafa komið saman í í sama tilgangi. Og áður en þetta hús var reist, þá hefur verið á þessum stað prestþjónusta um aldir. Það er töluverð upplifun að finna sig hluta af þeirri sögu en kirkju er getið að Útskálum á fjórtándu öld“. Áberandi í sögu Suðurnesja Útskálakirkja er með eldri kirkjum á landinu og þar var fagnað 150 ára afmæli um liðna helgi. Þá er gamla prestsetrið á Útskálum elsta standandi prestseturshús á landinu, byggt 1889. Það var séra Hjörtur Magni Jóhannsson, nú Fríkirkjuprestur í Reykjavík, sem síðastur bjó í húsinu. Útskálar eru áberandi í sögu Suðurnesja og þar var t.a.m. Sparisjóðurinn í Keflavík stofnaður fyrir rétt rúmum 100 árum. Óvenju margar útfarir - Hvernig er daglegt líf prestsins? Ég hef fyrir því heimildir að frá því þú komst til starfa í Útskála- prestakalli hafi verið þar óvenju margar útfarir. „Jú, það er ekki hægt að neita því að árið 2010 var mjög strembið ár. Það var fyrsta heila árið sem ég var hérna þannig að ég vissi nú ekki alveg hvaðan á mig stóð veðrið. Það var mjög mikið um andlát, miklu meira en í meðalári. Eins voru mjög mörg sorgleg mál, slys og alvarleg veikindi þar sem fólk var að deyja langt fyrir aldur fram, mjög hátt hlutfall“. -Þetta hlýtur að taka á, nýbyrj- aður á nýjum stað? „Já. En það getur bæði haft kosti og galla að vera nýkominn. Þetta hefði verið enn verra fyrir mann sem einstakling ef maður hefði verið ný vígður. Ég er hins vegar búinn að vera prestur í rúm 12 ár og því ekki reynslulaus. Kosturinn við það að vera tiltölulega nýkominn er sá að þá er maður ekki kominn í eins mikil persónuleg tengsl við þá sem eru að kveðja, eins og ef maður væri búinn að vera í 10 ár og væri að þjónusta persónulega vini og annað. Gallinn á móti er að maður er ekki nægilega vel inni í ættartrjánum og tengslunum. Presturinn er nú þannig að hann finnur ekki hlutina á sér og hvar þörfin er brýn. Þess vegna er svo mikilvægt, eins og oft er, að fólk veki athygli prestsins á einhverj- um aðstæðum, sem það telur að presturinn geti þjónustað inní. Þegar það verða andlát, þá hafa þau stundum langan aðdraganda og stundum stuttan. Stundum er presturinn kominn inn í mál áður en andlát á sér stað en stundum er hann kallaður til við andlát. Þá er ákveðið ferðalag sem presturinn fer í með aðstandendum og menn fara saman í gegnum ákveðna hluti. Presturinn reynir að fylgja fólki í gegnum þetta ferli, en presturinn getur aldrei farið í sömu spor og syrgjendur. Maður gengur frekar við hliðina og reynir að þjónusta af einlægni og virðingu. Kistu- lagning, útför og ákveðin eftir- fylgd hafa sinn gang. Eftirfylgdin er mjög misjöfn eftir aðstæðum. Stundum kveðjast menn nánast í kirkjugarðinum og það fer allt eftir aðstæðum“. Nærfjölskylda hvers og eins er mikilvægasta stuðningsnetið en presturinn er alltaf tilbúinn til að styðja við þegar eftir því er leitað. Ekki hægt að flýja sorgina Séra Sigurður Grétar segir að fólk verði að fara í gegnum sorgina, maður geti ekki flúið hana og presturinn taki sorgina ekki frá fólki, þó presturinn geti verið sam- ferðamaður. Þá er einnig til í dæminu að sorg einstaklinga sé hreinlega deyfð niður með lyfjagjöf. Það sé einna helst gert í kjölfar stórra áfalla. „Það er náttúrulega bara frestun,“ segir Sigurður Grétar en ítrekar að það geti verið nauðsynlegt svo fólk fái svefn því ef fólk missir svefn í nokkrar nætur, þá minnkar öll mótstaða svo mikið því álagið er svo mikið. „Þetta getur verið nauðsynlegt í samráði við lækni, en maður losnar ekki við sorgina þannig“. Rannsóknir hafa sýnt að yfir 90% syrgjenda eru komnir í ágætis jafn- vægi eftir ár frá andláti ástvinar. Svo er alltaf einhver hluti sem þarf að fá áframhaldandi og frekari fag- vinnu til að vinna sig í gegnum sorgina. Svo er ekki óalgengt að þegar fólk fer í gegnum sorg og áföll þá ýfist upp eitthvað gamalt sem aldrei hefur verið unnið úr. Það eru ýmsir sem koma að því, s.s. prestar og einnig sálfræðingar á stofu sem hjálpa fólki í slíkri vinnu. Kreppan bítur í sókninni Eins og annars staðar á Suður- nesjum þá hefur kreppan einnig verið að bíta í sóknarbörn séra Sigurðar Grétars. Hann segist ekki hafa samanburð frá því fyrir kreppu í prestakallinu en ákveðinn hópur hafi leitað til sín í kreppunni og viðurkennir Sigurður Grétar að sá hópur sé of stór. „Kjör öryrkja sem eru einir eru mjög bág og þá gildir einu hvort það sé kreppa eða ekki. Það má ekkert útaf bera og þeim eru oft all- ar bjargir bannaðar. Það er stærra pólitískt mál sem þarf að skoða frá mörgum sjónarhornum. Bæði frá sjónarhóli almannatryggingakerf- isins og eins frá sjónarhóli afskipta, ef ég má orða það svoleiðis. For- sjárhyggja getur verið mjög nei- Mikil afmælishátíð var haldin að Útskálum um nýliðna helgi þegar 150 ára afmæli Út- skálakirkju var haldið hátíðlegt. Kirkjustaðurinn Útskálar á sér þó mun lengri sögu en skriflegar heimildir eru til um kirkju að Útskálum frá því um 1350. Sóknarprestur að Útskálum er séra Sigurður Grétar Sigurðsson og heldur hann utan um líflegt kirkjustarf í Útskálaprestakalli en undir prestakallið heyrir Útskálasókn og Hvalsnessókn. Hilmar Bragi Bárðarson, blaðamaður Víkurfrétta, tók hús á séra Sigurði Grétari og settist með honum á fremsta bekk í hinni öldnu kirkju Garðmanna og ræddu þeir um lífið í sókn- inni, óvenju mörg andlát og kreppuna í ýmsum myndum. Lífið, dauðinn og kreppan „Það er stórhættulegt að setja 18 ára krakka á bætur. Það er bara stórhættulegt. Það verður að leita allra annarra leiða áður en þau eru sett á bætur, þó svo þau eigi rétt á því. Ástæðan er sú að það er svo mikilvægt á mótunarskeiði einstaklinga sem hafa færni, getu til vinnu eða náms, að þeir finni til samfélagsábyrgðar“.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.