Víkurfréttir - 26.05.2011, Síða 12
12 Fimmtudagurinn 26. maí 2011VÍKURFRÉTTIR
›› Séra Sigurður Grétar prestur að Útskálum í viðtali:
Trúfastur hópur sem
stendur fast við sína kirkju
- Hvernig er að þjóna að Út-
skálum?
„Það er mjög ánægjulegt. Ég er
búinn að vera hérna núna í rúm-
lega eitt og hálft ár. Maður hefur
lært mikið og vonandi þroskast
eitthvað. Þetta er mjög ólíkt því
sem ég þjónaði áður fyrir norðan.
Hér finnur maður að það eru tvær
myndugar litlar sóknir í sjálf-
stæðum bæjarfélögum og tvær
félagslegar einingar. Maður verður
stundum svolítið þeytispjald á
milli sóknanna. Það er mjög trú-
fastur hópur hér sem stendur fast
við bakið á kirkjunni. Það finnur
maður vel. Hér að Útskálum er
töluverður hópur sem ber sterkar
tilfinningar til þessarar kirkju og
þessa staðar. Af og til, sérstaklega
á vorin og haustin, kemur hingað
fólk annars staðar frá í messu sem
heyrði hana auglýsta í útvarpi eða
sá í Mogganum. Þetta er fólk sem
á einhverjar minningar tengdar
þessari kirkju. Ég man eftir
nokkrum dæmum þar sem fólk
kemur í hárri elli hingað og dregur
svolítið andann til að rifja upp
minningar“.
Bæði þorps- og sveitakirkja
„Margir hafa komið hingað og
viljað sjá kirkjuna eftir endur-
bæturnar sem þykja hafa heppnast
mjög vel. Ég er pínu sveitakall í
mér og líkar það vel og finnst
ánægjulegt að þjóna í kirkju sem er
bæði sveitakirkja og einnig þorps-
kirkja, sem Útskálakirkja er. Hún
er þannig staðsett í Garðinum og
Garðurinn liggur eins og hann
liggur. Byggðin er blanda af þorpi
og sveitaandrúmslofti.
Það er merkilegt, og kannski
hugsar maður ekki nóg um það, en
þessi staðreynd að þjóna á stað og
predika í kirkju, annast helgihald
í kirkju og þjónusta söfnuð í gleði
og sorg, í húsi sem margar kyn-
slóðir hafa komið saman í í sama
tilgangi. Og áður en þetta hús var
reist, þá hefur verið á þessum stað
prestþjónusta um aldir. Það er
töluverð upplifun að finna sig hluta
af þeirri sögu en kirkju er getið að
Útskálum á fjórtándu öld“.
Áberandi í sögu Suðurnesja
Útskálakirkja er með eldri kirkjum
á landinu og þar var fagnað 150
ára afmæli um liðna helgi. Þá er
gamla prestsetrið á Útskálum
elsta standandi prestseturshús á
landinu, byggt 1889. Það var séra
Hjörtur Magni Jóhannsson, nú
Fríkirkjuprestur í Reykjavík, sem
síðastur bjó í húsinu. Útskálar eru
áberandi í sögu Suðurnesja og þar
var t.a.m. Sparisjóðurinn í Keflavík
stofnaður fyrir rétt rúmum 100
árum.
Óvenju margar útfarir
- Hvernig er daglegt líf prestsins?
Ég hef fyrir því heimildir að frá
því þú komst til starfa í Útskála-
prestakalli hafi verið þar óvenju
margar útfarir.
„Jú, það er ekki hægt að neita því
að árið 2010 var mjög strembið ár.
Það var fyrsta heila árið sem ég var
hérna þannig að ég vissi nú ekki
alveg hvaðan á mig stóð veðrið.
Það var mjög mikið um andlát,
miklu meira en í meðalári. Eins
voru mjög mörg sorgleg mál, slys
og alvarleg veikindi þar sem fólk
var að deyja langt fyrir aldur fram,
mjög hátt hlutfall“.
-Þetta hlýtur að taka á, nýbyrj-
aður á nýjum stað?
„Já. En það getur bæði haft kosti og
galla að vera nýkominn. Þetta hefði
verið enn verra fyrir mann sem
einstakling ef maður hefði verið
ný vígður. Ég er hins vegar búinn
að vera prestur í rúm 12 ár og því
ekki reynslulaus. Kosturinn við
það að vera tiltölulega nýkominn
er sá að þá er maður ekki kominn
í eins mikil persónuleg tengsl við
þá sem eru að kveðja, eins og ef
maður væri búinn að vera í 10 ár
og væri að þjónusta persónulega
vini og annað. Gallinn á móti er að
maður er ekki nægilega vel inni í
ættartrjánum og tengslunum.
Presturinn er nú þannig að hann
finnur ekki hlutina á sér og hvar
þörfin er brýn. Þess vegna er svo
mikilvægt, eins og oft er, að fólk
veki athygli prestsins á einhverj-
um aðstæðum, sem það telur að
presturinn geti þjónustað inní.
Þegar það verða andlát, þá hafa
þau stundum langan aðdraganda
og stundum stuttan. Stundum er
presturinn kominn inn í mál áður
en andlát á sér stað en stundum er
hann kallaður til við andlát. Þá er
ákveðið ferðalag sem presturinn
fer í með aðstandendum og menn
fara saman í gegnum ákveðna hluti.
Presturinn reynir að fylgja fólki í
gegnum þetta ferli, en presturinn
getur aldrei farið í sömu spor og
syrgjendur. Maður gengur frekar
við hliðina og reynir að þjónusta
af einlægni og virðingu. Kistu-
lagning, útför og ákveðin eftir-
fylgd hafa sinn gang. Eftirfylgdin
er mjög misjöfn eftir aðstæðum.
Stundum kveðjast menn nánast í
kirkjugarðinum og það fer allt eftir
aðstæðum“.
Nærfjölskylda hvers og eins er
mikilvægasta stuðningsnetið en
presturinn er alltaf tilbúinn til að
styðja við þegar eftir því er leitað.
Ekki hægt að flýja sorgina
Séra Sigurður Grétar segir að fólk
verði að fara í gegnum sorgina,
maður geti ekki flúið hana og
presturinn taki sorgina ekki frá
fólki, þó presturinn geti verið sam-
ferðamaður.
Þá er einnig til í dæminu að sorg
einstaklinga sé hreinlega deyfð
niður með lyfjagjöf. Það sé einna
helst gert í kjölfar stórra áfalla.
„Það er náttúrulega bara frestun,“
segir Sigurður Grétar en ítrekar
að það geti verið nauðsynlegt svo
fólk fái svefn því ef fólk missir
svefn í nokkrar nætur, þá minnkar
öll mótstaða svo mikið því álagið
er svo mikið. „Þetta getur verið
nauðsynlegt í samráði við lækni,
en maður losnar ekki við sorgina
þannig“.
Rannsóknir hafa sýnt að yfir 90%
syrgjenda eru komnir í ágætis jafn-
vægi eftir ár frá andláti ástvinar.
Svo er alltaf einhver hluti sem þarf
að fá áframhaldandi og frekari fag-
vinnu til að vinna sig í gegnum
sorgina. Svo er ekki óalgengt að
þegar fólk fer í gegnum sorg og
áföll þá ýfist upp eitthvað gamalt
sem aldrei hefur verið unnið úr.
Það eru ýmsir sem koma að því,
s.s. prestar og einnig sálfræðingar
á stofu sem hjálpa fólki í slíkri
vinnu.
Kreppan bítur í sókninni
Eins og annars staðar á Suður-
nesjum þá hefur kreppan einnig
verið að bíta í sóknarbörn séra
Sigurðar Grétars. Hann segist
ekki hafa samanburð frá því fyrir
kreppu í prestakallinu en ákveðinn
hópur hafi leitað til sín í kreppunni
og viðurkennir Sigurður Grétar að
sá hópur sé of stór.
„Kjör öryrkja sem eru einir eru
mjög bág og þá gildir einu hvort
það sé kreppa eða ekki. Það má
ekkert útaf bera og þeim eru oft all-
ar bjargir bannaðar. Það er stærra
pólitískt mál sem þarf að skoða frá
mörgum sjónarhornum. Bæði frá
sjónarhóli almannatryggingakerf-
isins og eins frá sjónarhóli afskipta,
ef ég má orða það svoleiðis. For-
sjárhyggja getur verið mjög nei-
Mikil afmælishátíð var haldin að Útskálum um nýliðna helgi þegar 150 ára afmæli Út-
skálakirkju var haldið hátíðlegt. Kirkjustaðurinn Útskálar á sér þó mun lengri sögu en
skriflegar heimildir eru til um kirkju að Útskálum frá því um 1350. Sóknarprestur að
Útskálum er séra Sigurður Grétar Sigurðsson og heldur hann utan um líflegt kirkjustarf
í Útskálaprestakalli en undir prestakallið heyrir Útskálasókn og Hvalsnessókn. Hilmar
Bragi Bárðarson, blaðamaður Víkurfrétta, tók hús á séra Sigurði Grétari og settist með
honum á fremsta bekk í hinni öldnu kirkju Garðmanna og ræddu þeir um lífið í sókn-
inni, óvenju mörg andlát og kreppuna í ýmsum myndum.
Lífið, dauðinn
og kreppan
„Það er stórhættulegt að setja 18 ára krakka á bætur.
Það er bara stórhættulegt. Það verður að leita allra
annarra leiða áður en þau eru sett á bætur, þó svo þau
eigi rétt á því. Ástæðan er sú að það er svo mikilvægt
á mótunarskeiði einstaklinga sem hafa færni, getu til
vinnu eða náms, að þeir finni til samfélagsábyrgðar“.