Víkurfréttir - 26.05.2011, Síða 10
10 Fimmtudagurinn 26. maí 2011VÍKURFRÉTTIR
Uppáhalds
Matur:
Lambahryggur
Bíómynd:
The Last Song og Coach Carter
Sjónvarpsþáttur:
Svo margir en
CSI:Miami og 90210
Veitingastaður:
Langbest, bara af því brauð-
stangirnar þar eru svo góðar
Tónlist:
Svo margir en Drake
stendur upp úr!
Vefsíðan:
Facebook!
Íþrótt:
Körfubolti auðvitað
Íþróttamaður:
Kobe Bryant og Shannon Brown
Þetta eða hitt
Kók eða Pepsi:
Drekk ekki mikið af þessu en
ég myndi frekar velja kók
Morgunblaðið eða
Fréttablaðið:
Fréttablaðið því ég hef
lesið það oftar haha
Hamborgari eða pizza:
Pizza, borða ekki hamborgara
Vatn eða mjólk:
Vatn því mjólk er bara góð
ef það er kakó í henni
Cocoa Puffs eða Lucky Charms:
Bæði gott en held ég
velji Cocoa Puffs
Maggi Mix eða Nilli:
Nilli því ég er komin með
meira leið á Magga
Abercrombie eða Hollister:
Hollister því ég á fleira frá því
Justin Bieber eða Usher:
Justin Bieber því hann er sætari
Makki eða PC?
Mac, því ég á svoleiðis elsku
Spurning frá seinasta
grunnskólanema vikunn-
ar: Facebook eða Twitter:
Facebook því ég nota það meira
lokaspUrningar:
Hvað ertu að hugsa núna?
Hvað það verður
skemmtilegt í sumar!
Hvað langar þig að
verða í framtíðinni?
Ekki hugmynd
Hver eru helstu áhuga-
málin þín?
Körfubolti
Hvað finnst þér um eldgosið?
Mér finnst það leiðinlegt fyr-
ir fólkið og dýrin sem þurfa
að fá alla öskuna til sín
Hvað viltu spyrja næsta grunn-
skólanema vikunnar að?
Ferðu til útlanda í sumar?
grUnn
VikUnnar
skÓlaneMi
Birta dröfn
Jónsdóttir
9. HE HEIÐARSKÓLA
UMsJÓn:
páll orri pálsson
›› Eitt af nýsköpunarfyrirtækjunum á Suðurnesjum er Spiral. Hannar og framleiðir kvenfatnað:
Spiral er eitt af nýsköpunar-f yrirtækjunum á Suður-
nesjum. Það varð til í kreppunni.
Oft er sagt að sköpun verði meiri í
efnahagsþrengingum. Það varð að
vísu ekki kveikja að Spiral því þær
voru báðar með vinnu. Íris hefur
verið myndlistarkennari í Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja í ellefu ár
og Ingunn hefur undanfarið verið
flugfreyja og starfað hjá IGS flug-
þjónustunni. En fatahönnunin
hefur blundað í þeim báðum og
svo virðist sem örlögin hafi komið
þeim saman í þessu dæmi en þær
hafa verið vinkonur í mörg ár.
Íris hafði stundað myndlist með
kennslunni í mörg ár og gert
myndir sínar í þrívídd sem sam-
samar sig vel með fatahönnuninni.
Hún rifjar það upp að þegar hún
hafi verið yngri hafi hún oft setið
langtímum saman yfir mömmu
sinni sem var mikil saumakona.
Fyrir nokkru kviknaði meiri áhugi
á fatahönnun hjá henni og hún fór í
textílnám og einnig á námskeið hjá
klæðskerameistara. Og keypti sér
alvöru saumavél.
Hönnun og sköpun var einnig
í blóðinu hjá Ingunni. Hún rifjar
það upp að þegar hún hafi verið
13 ára hafi hún haft mikinn áhuga
á saum og gert mikið af því. Segist
meira segja hafa sniðið og saumað
djammföt fyrir sig og vinkonur
sínar. Hún fór í innanhússtílist-
anám í Tækniskólanum og þá hefur
tenging hennar við fyrirtækið Ál-
nabæ sem tengdafjölskylda hennar
á haft sitt að segja en það er eitt það
þekktasta á sviði vefnaðarvöru og
gluggatjalda hér á landi.
Fyrstu alvöru Spiral skrefin voru
stigin í saumastofu Álnabæjar í
Keflavík en tengdaforeldrar Ing-
unnar, þau Guðrún og Magni
í Álnabæ hafa verið þeim innan
handar við efniskaup og ráðgjöf á
þessu fyrsta ári. „Við byrjuðum þar
á kvöldin og síðan þegar við vorum
búnar að sauma slatta af flíkum
fengu vinkonur okkar auðvitað að
sjá þær og þar fengum við strax
mjög góð viðbrögð,“ segja þær
Íris og Ingunn og það liggur ekki
á svarinu þegar þær eru spurðar
hvernig standi á því af hverju konur
hafi svona mikinn áhuga á fötum.
„Karlar hafa áhuga á íþróttum,
konur á fötum. Er það ekki,“ sögðu
þær nánast í kór og horfðu beint í
augu VF ritstjórans.
Aðspurðar um hvaðan hugmynd-
irnar komi og innblásturinn í
hönnuninni segja þær margt koma
til. „Alls staðar úr umhverfinu.
Þetta bara kemur einhvern veginn.
Markmiðið okkar var að hanna föt
á hina venjulegu konu og horfa
til þess að konur eru misjafnlega
byggðar. Við höfum fengið konur
á ýmsum aldri og í öllum stærðum,
ef við getum orðað það svo, til að
sýna á tískusýningum og það hefur
gengið mjög vel,“ segir Íris og Ing-
unn bætir við: „Við höfum horft
nokkuð til Viktoríutímabilsins í
okkar hönnun og viljum sjá kjól-
ana rykkta í miðjunni en leggjum
áherslu á klassískan og þægilegan
fatnað sem hægt sé að vera í við
hin margvíslegu tækifæri. Sjáðu,
eins og til dæmis þessi kjóll sem er
í raun þrjár flíkur, “ segir Ingunn
og stendur upp og útskýrir hvernig
Ævintýri líkast
-segja þær Íris Jónsdóttir og Ingunn Yngvadóttir
sem hella sér í fyrirtækjarekstur af alvöru eftir eitt
ár í aukavinnu
„Þetta hefur verið ævintýri líkast. Ein lítil kvöldstund við
saumavélina er orðin að alvöru fyrirtæki og nú snúum við
okkur að þessu af fullum krafti eftir að hafa sinnt þessu
í aukavinnu fram að þessu,“ segja þær Íris Jónsdóttir og
Ingunn Yngvadóttir í fatahönnunarfyrirtækinu Spiral
sem fagnaði eins árs afmæli nýlega.
kjóllinn hennar geti verið á þrjá
vegu, enda sé nafnið á honum „hó-
kus-pókus“. Með einu handbragði
sé hægt að galdra fram þrjár mis-
munandi flíkur.
Á þessu ári hafa þær Spiral kon-
ur ekki haft undan að framleiða
fatnað en þær hafa haft gott fólk og
fyrirtæki með sér í framleiðslunni
og þá hafi Spiral merkið fengið
auka „stjörnu“ þegar Fríhöfnin
tók það í sölu. „Við höfum alls
staðar fengið svo góðar móttökur
og fyrir það viljum við þakka. Það
er með miklum ólíkindum en svo
skemmtilegt.“
Nýlega fékk Spiral einnar milljón
krónu styrk sem notaður skyldi til
markaðssetningar og hluti af því
verkefni var að koma upp heima-
síðu. Því verkefni er nýlokið og
var síðan kynnt á ársafmæli sem
haldið var í húsakynnum Spiral
við Hafnargötu 6 í Keflavík. Í sama
húsnæði voru fyrir rúmum tuttugu
árum bæjarskrifstofur Keflavíkur
og SBK. Í hvelfingu í einu her-
berginu þar sem sjá má stóra og
mikla „peningaskáps“-hurð geyma
Spiraldrottningarnar gullþræði
fyrirtækisins þar sem gullkrónur
og skjöl Keflavíkurbæjar voru áður.
Þær viðurkenna að þær hafi stóra
drauma í framtíðinni. Nú þegar sé
Spiral fatnaður seldur í Fríhöfn-
inni, hjá þeim sjálfum í Keflavík og
í Reykjavík en einnig á Akureyri og
í Vestmannaeyjum. Reykjavíkur-
svæðið sé þó ennþá nánast ósnert.
Þá séu í skoðun nýir spennandi
möguleikar í framleiðslunni. „Við
hlökkum til að vakna á morgnana.
Það er svo gaman að vera að skapa
nýja hluti á hverjum degi,“ sögðu
þær Íris og Ingunn að lokum.
Ingunn og Íris spjölluðu
við gesti í afmælinu.
Margir góðir gestir voru í afmæl-
ishófinu. Leynigestur var Sigríður
Klingenberg. Fleiri myndir eru í ljós-
myndasafni á vf.is.
Fyrirsæta í
Spiral fatnaði.
Ljósm. Gunnar Gestur
Geirmundsson.