Víkurfréttir - 26.05.2011, Síða 15
Fimmtudagurinn 26. maí 2011 VÍKURFRÉTTIR 15
Vertu í góðu sambandi!
Auglýsingadeild í síma 421 0001 (gunnar@vf.is)
Fréttadeild í síma 421 0002 (hilmar@vf.is)
Ritstjórn og afgreiðsla í síma 421 0000
vf.is • m.vf.is • kylfingur.is
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Helstu verkefni
» Almenn þjónusta við viðskiptavini
» Upplýsingagjöf um vörur og
þjónustu Landsbankans
» Vinna við Greiðsluþjónustu og
listavinnu vegna útibúa
» Afstemmingar og eftirlit
Hæfniskröfur
» Stúdentspróf
» Nákvæmni og skipulögð
vinnubrögð
» Frumkvæði og þjónustulund
» Hæfni í mannlegum samskiptum
» Reynsla af bankastörfum er kostur
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Berglind
Ingvarsdóttir hjá Mannauði í síma
410 7914.
Umsókn merkt „Sumarstarf í Reykja
nesbæ“ fyllist út á vef bankans.
Umsóknarfrestur er til og með
28. maí 2011.
Sumarstörf í
Reykjanesbæ
Landsbankinn auglýsir laus til umsóknar sumarstörf í Reykjanesbæ.
Um er að ræða starf í útibúinu við Tjarnargötu og bakvinnslustarf
í Útibúaþjónustu sem tilheyrir Fjármálasviði bankans. Störfin eru
tímabundin, til loka ágústmánaðar.
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
BLIKABRAUT 11, REYKJANESBÆ
Um er að ræða skemmtilega 3 herbergja nh. með bílskúr. Íbúðin er öll ný
endurnýjuð m.a. ný gólfefni, innréttingar, tæki, lagnir, gluggar, gler, baðher-
bergi endurnýjað frá grunni, þak á bílgeymslu ofl. Íbúðin er 86,5m2 og bí-
lgeymsla er 24.5m2.
Húsið er vel staðsett, stutt í skóla, íþróttasvæði bæjarins og í alla þjónustu.
Hafnargötu 91 - 230 Reykjanesbæ - Sími: 420 4050
Kr. 17.800.000,-
„Skuldsetning Sandgerðisbæjar
er mikil og þarf að vinna áfram að
rekstrarlegri hagræðingu, aukn-
um atvinnutækifærum og aukn-
ingu tekna,“ segir Sigrún Árna-
dóttir, bæjarstjóri en ársreikn-
ingur bæjarins fyrir árið 2010 var
lagður fram til fyrri umræðu á
fundi bæjarstjórnar í fyrradag.
Lög gera ráð fyrir að fjallað skuli
um ársreikninginn á tveimur
fundum bæjarstjórnar og sam-
þykkti bæjarstjórn að vísa reikn-
ingunum til síðari umræðu á bæj-
arstjórnarfundi þann 1. júní.
Niðurstaða ársreiknings fyrir árið
2010 er betri en gert hafði verið
ráð fyrir. Rekstrarniðurstaða fyr-
ir A- og B-hluta var neikvæð um
rétt rúmlega 64 mkr. en var áætl-
uð neikvæð um tæplega 222 mkr.
Betri rekstrarniðurstaða skýrist
fyrst og fremst af gengishagnaði á
langtímaskuldum og skuldbind-
ingum. Aukning á rekstrargjöldum
umfram áætlun er 44 mkr. fyrir A-
og B-hluta en lækkar um 76 mkr.
miðað við árið 2009.
Útsvarstekjur eru rúmlega 24 mkr.
króna lægri en ráð hafði verið gert
fyrir og skýrist það bæði af fækkun
íbúa sem voru á árinu 2009 1711
en 1677 árið 2010 og lægri tekjum
íbúanna. Útsvarstekjur námu 425
mkr. en voru árið 2009 468 mkr. og
lækka því um 43 mkr. milli ára.
Stærsti einstaki útgjaldaliðurinn
er laun og launatengd gjöld og
nam kostnaðurinn 700,2 mkr.
og hækkaði um 3 mkr. frá árinu
2009. Hækkun á árinu 2010 um-
fram áætlun eru 16 mkr. Fjöldi
starfsmanna var 152 á árinu í 126
stöðugildum.
Fastafjármunir námu á árinu 2010,
4.849 mkr. og eignir eru samtals
6.575 mkr. Eignir hafa hækkað
um 812 mkr. milli áranna 2009 og
2010.
Skuldir og skuldbindingar eru
samtals 5.415 mkr. að meðtöldum
leiguskuldbindingum sem nema
2.542 mkr. Skuldir við lánastofn-
anir voru í árslok 2010 1.935 mkr.
-rekstrarniðurstaða 2010 þó betri en gert hafði verið ráð fyrir
Erfið skuldastaða Sandgerðis-
bæjar - skuldar 5,4 milljarð kr.