Víkurfréttir


Víkurfréttir - 01.09.2011, Blaðsíða 18

Víkurfréttir - 01.09.2011, Blaðsíða 18
18 FIMMTudagurInn 1. sepTeMber 2011 • VÍKURFRÉTTIR Björgin – Geðræktarmiðstöð Suðurnesja er orðin mörg- um kunn en Björgin hóf starfsemi sína í byrjun árs 2005. Björgin er úrræði fyrir fólk með geðheilsu- vanda. Lagt er upp með að fólk geti sótt Björgina á mismunandi forsendum og reynt er eftir besta megni að koma til móts við þann fjölbreytta hóp sem leitar í Björg- ina. Að sögn Ragnheiðar Sifjar, forstöðumanns hefur það sýnt sig að mikil þörf er á þessari þjónustu ekki síst nú í því árferði sem er. Þjónustan hefur byggst hratt upp, en á þessum rúmu 6 árum sem liðin eru frá opnun hefur fjöldi þeirra sem hingað sækir aukist ár AÐ LIFA LÍFINU Námskeiðið, Að lifa lífi nu er ætlað ungu fólki á aldrinum 18-25 ára en það er hluti af verkefninu Energí og trú sem Kefl avíkurkirkja stendur fyrir. Markmið þess er að efl a þátt takendur í því að mæta þeim áskorunum sem lífi ð krefst. Þessar áskoranir eru af ýmsum toga. Sumar tengjast peningum, aðrar heilsu og vellíðan og enn aðrar snúast um það að vera sjálfur í leiðtogahlutverkinu í eigin lífi . Leiðbeinendur eiga það sameiginlegt að hafa mikla reynslu á þeim sviðum sem þeir fj alla um. Námskeiðið er 100 kennslustundir og stendur frá september ti l desember. Skráning hefst 20. ágúst hjá Hjördísi í Kefl avíkurkirkju 4204300 eða á netf angið hjordis@kefl avikurkirkja.is ›› Björgin - Geðræktarmiðstöð Suðurnesja: frá ári. Það sem er áberandi núna er að það virðist vera mikil þörf á úrræði fyrir fólk sem er enn í vinnu eða námi og þarf stuðning með til að takast á við lífið. Einnig hefur leitað til okkar fólk sem hef- ur misst vinnuna og jafnvel verið án atvinnu í lengri tíma. Hugræn atferlismeðferð í Björg- inni. Til að bregðast við þessari þörf fór Björgin í vor, í samstarfi við geðsvið Landspítalans, af stað með námskeið í hugrænni atferlismeð- ferð við þunglyndi og kvíða. Nám- skeiðið er í höndum Huldu Sævars- dóttur sálfræðings og Ragnheiðar Sifjar Gunnarsdóttur MS í sálfræði. Kenndar eru helstu aðferðir hug- rænnar atferlismeðferðar til að takast á við vanlíðan. „Í rauninni hentar þetta námskeið flestu fólki, jafnvel þó það eigi ekki við mik- inn vanda að stríða,“ segir Hulda. Fjölbreyttur hópur fólks á öllum aldri hefur sótt námskeiðin, bæði fólk innan og utan vinnumarkaðar sem og námsmenn. Þátttakendur áttu það allir sameiginlegt að vilja styrkja sjálfan sig til að geta betur tekist á við þau verkefni sem lífið felur þeim hverju sinni. Hugræn atferlismeðferð (HAM) er talin virka vel við ýmsum sál- rænum vanda. Námskeiðið hefur verið kennt í nokkur ár á Landspít- alanum og á heilsugæslustöðvum og gefið góða raun. HAM byggir á þeirri hugmyndafræði að hugs- un og hegðun hafi áhrif á líðan. Markmiðið er að þátttakendur læri aðferðir til að breyta líðan sinni meðal annars með því að endur- meta óhjálplegar hugsanir sem valda vanlíðan. Næsta námskeið hefst 13. september, skráning er hafin á hulda@bjorgin.is eða í síma 421-6744. Frekari upplýsingar um starfsemi Bjargarinnar er að finna á heimasíðunni, www.bjorgin.is. Það er engin heilsa án geðheilsu ›› FRÉTTIR ‹‹ Nýr vefur Sand- gerðisbæjar opnaður Sigrún Árnadóttir bæj-arstjóri Sandgerðis opn- aði í síðustu viku endurbætta heimasíðu Sandgerðisbæjar og var þeim Selmu og Smára hjá Tónaflóði/245.is og Guð- jóni Kristjánssyni þakkað fyrir vel unnin störf. Vefurinn nú er allur í notendavænna umhverfi sem auðveldar starfsmönnum að halda vefnum uppfærðum. Allt grunnefni á að vera komið inn á vefinn og annað efni fer inn á næstu vikum. Allar ábendingar eru vel þegnar og sendist þær á Guðjón á net- fangið gudjon@sandgerdi.is Heimasíða Sandgerðisbæjar: www.sandgerdi.is Auglýsingadeild í síma 421 0001 Fréttadeild í síma 421 0002 Afgreiðsla í síma 421 0000 vf.is • m.vf.is • kylfingur.is Víkurfréttir

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.