Víkurfréttir - 01.09.2011, Blaðsíða 30
30 FIMMTudagurInn 1. sepTeMber 2011 • VÍKURFRÉTTIRvf.is
Halla Har
á Ljósanótt
Sýningin er opin:
Fimmtudag 16-20
Föstudag 16-22
Laugardag 13-22
Sunnudag 13-18
Halla Har gler- og
myndlistarkona
verður með sýningu
á Hótel Keili,
Hafnargötu 37,
á Ljósanótt.
Verið velkomin
ATVINNA
Í Sveitarfélaginu Vogum er starfræktur frístundaskóli fyrir nemendur í 1.-4.bekk. Þar verður
nemendum boðið upp á tómstundir ýmiss konar, sem hæfa aldri þeirra og þroska að loknum
skóladegi til klukkan 17.
Vegna forfalla vantar umsjónarmann með frístundaskólanum.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 6-9 ára börn.
• Leiðbeina börnum í leik og starfi.
• Samráð og samvinna við börn og starfsfólk.
• Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk grunnskóla.
Hæfniskröfur
• Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi.
• Áhugi á að vinna með börnum.
• Frumkvæði og sjálfstæði.
• Færni í samskiptum.
Í boði er hlutastarf, 50% -70%
Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Svava Bogadóttir skólastjóri og
Jón Ingi Baldvinsson aðstoðarskólastjóri , Stóru-Vogaskóla í síma 440-6250.
Umsóknir má senda á skoli@vogar.is
FRÍSTUND Fjólan og Elgurinn
sýna á Flughóteli
Listakonan Fjóla Jóns og ljós-myndarinn Ellert Grétars-
son (elg) leiða saman hesta sína
á samsýningu á Ljósanótt. Sýn-
ingin, sem verður á Flughóteli,
verður opnuð fimmtudaginn
1. sepetmber kl. 17:15 og lýkur
sunnudaginn 4. sept. kl. 18:00.
Fjóla Jóns hefur fengist við mynd-
list síðustu tvo áratugina og hefur
fengið útrás fyrir sköpunargleði
sína í ýmsum miðlum. Fjóla hef-
ur haldið fjölmargar sýningar
í gegnum árin, bæði einka- og
samsýningar. Ljósanótt hefur
löngum verið fastur liður í starfi
hennar og nú í ár sýnir hún verk
sem hún hefur unnið á þessu
ári. Þar hefur hún haft að leið-
arljósi regluna um að minna sé
meira (Less is more), og að ekki
sé nauðsynlegt að vera með fjölda
lita til að ná fram þeim hughrif-
um sem hún stefnir að.
Náttúruunnandinn Ellert Grét-
arsson hefur undanfarin ár ferðast
fótgangandi um fagra Ísland með
myndavélina um hálsinn. Margir
hafa hrifist af ljósmyndum hans af
íslensku landslagi og náttúrusýn-
ing hans í Duushúsum á síðustu
Ljósanótt vakti mikla athygli. Ell-
ert hefur haldið fjölda sýninga
hér heima og erlendis og unnið
til alþjóðlegra viðurkenninga.
Opnunartími:
Fimmtudagur 17:15 - 21:00
Föstudagur 10:00 - 21:00
Laugardagur 10:00 - 21:00
Sunnudagur 12:00 - 18:00
Körfuknattleikskonan Anna María Ævarsdóttir hef-
ur ákveðið að skipta út grænni
treyju Njarðvíkinga og klæðast
svart-hvítum búningi KR á næsta
tímabili.
Anna María sem að upplagi er
Keflvíkingur var fyrirliði Njarðvík-
urliðsins í fyrra sem öllum að óvör-
um fóru alla leið í úrslit í Iceland
Express-deild kvenna þar sem Kefl-
víkingar höfðu reyndar betur, 3-0.
Anna María sem er búsett í Reykja-
vík þessa dagana gekk til liðs við
Njarðvíkinga árið 2007 skrifaði
undir hjá KR í fyrradag. „Ég flutti
til Reykjavíkur í byrjun sumars
og fékk þar góða vinnu strax eftir
útskrift. Ég reiknaði bara dæmið
út og það hefði ekki gengið fyrir
mig að vinna og búa í Reykjavík og
keyra á milli til Njarðvíkur á æfing-
ar,“ sagði Anna eftir að Víkurfréttir
höfðu samband við hana.
Hún bætti því við að henni litist
vel á aðstæður hjá KR-ingum. „Ég
á góðar vinkonur í KR og þetta
er flottur og vel rekinn klúbbur
með góðan þjálfara,“ sagði Anna
María í samtali við Víkurfréttir en
hún leikur með KR-ingum á Ljós-
anæturmótinu sem fram fer um
helgina.
Lið Keflvíkinga fékk heldur bet-ur slæma útreið gegn Selfyss-
ingum í 1. deild kvenna í fótbolta
í vikunni. Eftir að Keflvíkingar
höfðu haft 3-2 sigur á heimavelli
sínum í umspili um það hvort
liðið léki í úrvalsdeild að ári þá
sýndu Selfyssingar hvers þær eru
megnugar á sínum heimavelli.
Lokatölur urðu 6-1 fyrir Selfossi
og sáu Keflavíkurstúlkur aldrei
til sólar. Þær leika því aftur í 1.
deild að ári.
Grindavíkurstúlkur gætu sömu-
leiðis leikið í 1. deild næsta sumar
en þær eru í næstneðsta sæti Pepsi-
deildar kvenna þegar tvær umferð-
ir eru eftir. Þær töpuðu síðasta leik
sínum 4-0 á heimavelli gegn ÍBV og
eiga að spila við nýkrýnda Íslands-
meistara Stjörnunnar næst.
Stór töp
í kvennaboltanum
Anna María til liðs við Kr
Keflavíkurstúlkur fögn-
uðu þegar þær tryggðu
sætið í undanúrslitum.
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0001