Víkurfréttir


Víkurfréttir - 01.09.2011, Blaðsíða 20

Víkurfréttir - 01.09.2011, Blaðsíða 20
20 FIMMTudagurInn 1. sepTeMber 2011 • VÍKURFRÉTTIR Ungir vegfarendur Á Suðurnesjum hafa nú allir grunn- og framhaldsskólar hafið sitt skóla- ár og vill lögreglan á Suðurnesjum koma því á framfæri til íbúa, að hafa það hugfast að umferð gang- andi vegfarenda hefur aukist til muna. Hluti nemenda er að hefja sína grunnskólagöngu ásamt því að stíga sín fyrstu skref í umferðinni á eigin vegum. Mikilvægt er að for- eldrar leiðbeini börnum sínum um öruggustu leiðina til skóla og jafn- vel fylgja barninu fyrstu skiptin. Ef barni er ekið í skólann er einnig mikilvægt að gæta fyllsta öryggis og nota þau stæði og útskot sem í boði eru við sumar skólastofnanir. Endurskinsmerki auka öryggi í umferðinni Endurskinsmerki eru eitt af þeim öryggistækjum sem hvert barn ætti að bera sem og fullorðnir er skammdegið gengur í garð. Endur- skinsmerki þurfa að vera vel sýni- leg, rétt staðsett í hæð ökuljósa og fjöldi þeirra er í raun aldrei of mik- ill. Í myrkri sér ökumaður bifreiðar barn með endurskinsmerki fimm sinnum fyrr en barn sem ekki ber endurskinsmerki. Lögregla vill því brýna fyrir fólki mikilvægi þess að bera slíkt öryggistæki og sjá til þess að börn þeirra beri þau einnig. Útivistartími barna og ungmenna Þann 1. september breytist útvist- artími barna og ungmenna. 12 ára börn og yngri mega vera úti til 20:00 og 13 til 16 ára börn mega vera úti til 22:00. Útivistarreglur eru samkvæmt barnaverndarlög- um og mega börn ekki vera á al- mannafæri utan ofangreinds tíma nema í fylgd með fullorðnum. Út af þessum reglum má bregða ef börn 13 til 16 ára eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Aldursmörk miðast við fæðingarár. Lögreglan á Suðurnesjum. Öryggisnefnd Ljósanætur Senn líður að Ljósa- nótt, þeirri 12. í röð- inni en undanfarnar vikur hefur öryggis- nefnd hátíðarinnar verið að funda og skipuleggja starf sitt vegna hátíðarinnar. Öryggisnefndina skipa fulltrúar frá lögreglunni á Suðurnesjum, Brunavörnum Suðurnesja, ýmsum stofnunum bæjarins svo sem um- hverfis- og skipulagssviði, þjónustu- miðstöð, útideild og fjölskyldu- og félagsþjónustu, Björgunarsveitinni Suðurnes og Kvennasveitinni Dag- björgu. Öryggisnefndin vinnur náið með Ljósanæturnefndinni. Megin markmið öryggisnefndar- innar er að tryggja öryggi gesta. Farið er yfir umferðarskipulag, lokun gatna, bílastæðamál, lög- gæslu, sjúkraflutninga og slökkvi- lið, verkefni björgunarsveitarinnar, eftirlit á sjó, uppsetning athvarfs, umsjón með börnum sem hafa orðið viðskila við forráðamenn sína og fleira. Öryggismiðstöð Hafnargötu 8 Lögregla, sjúkralið, björgunarsveit, athvarf og kvennasveitin hafa sína miðstöð á Hafnargötu 8 þar sem leigubílastöðin er til húsa. Lög- regla er með sína stjórnstöð þar í nýrri vettvangsstjórabifreið Lands- bjargar. Björgunarsveitin er einnig með sinn fulltrúa í bifreiðinni til að samhæfa störf björgunarsveit- armanna. Við vettvangsstjórabif- reiðina verður staðsett sjúkrabif- reið frá Brunavörnum Suðurnesja ásamt því að björgunarsveitin verð- ur með sjúkraskýli við miðstöðina. Kvennasveitin Dagbjörg mun sjá um týnd börn og fleira. Athvarf Hafnargata 8 verður síðan vett- vangur athvarfs á kvöldin þar sem lögreglumenn munu, ef til þess kemur, fara með ungmenni sem eru undir áhrifum áfengis eða eru úti eftir að útivistartíma lýkur. Athvarfið er starfrækt í samvinnu við fjölskyldu- og félagsþjónustu Reykjanesbæjar, útideildina og FFGír. Sýnileg löggæsla Hátt í 40 lögreglumenn verða á vakt á laugardagskvöldinu þegar hæst lætur. Lögreglumenn verða í fjölmennum gönguhópum á Hafn- argötu, vel sýnilegir í gulum vest- um. Lögreglumenn munu stuðla að því að tryggja öryggi borgarana með því að taka á þeim sem eru til vandræða. Lögreglumenn munu hafa afskipti, ef til þess kemur af ungmennum sem eru ölvuð eða með áfengi og þau færð í athvarf- ið. Lagt verður hald á áfengið og því eytt. Lögreglan á Suðurnesj- um mun njóta aðstoðar sérsveit- ar Ríkislögreglustjóra ásamt því að umferðardeild lögreglunnar á höfðuborgarsvæðinu mun leggja til tvo bifhjólamenn til aðstoðar við umferðarstjórnun. Lögreglan mun njóta aðstoðar fjölda björgunar- sveitarmanna við ýmis gæslustöf í tengslum við hátíðina. Fjölskyldan saman á Ljósanótt Lögreglan hvetur foreldra til að fylgja börnum sínum og ungling- um á Ljósanótt og njóta dagskrár- innar saman. Það er mikilvægt að foreldrar hugi að því að börn og unglingar séu ekki eftirlitslaus í bænum. Þakkir. Lögreglan á Suðurnesjum vill koma á framfæri þökkum til fulltrúa ör- yggisnefndarnnar fyrir gott sam- starf í aðdraganda þessarar hátíðar. Öryggisnefnd hefur verið starfrækt frá fyrstu hátíð og er mikilvægur þáttur í því að tryggja öryggi borg- arana. Virðingarfyllst, Skúli Jónsson, aðstoðaryfirlög- regluþjónn í almennri deild. ZEDRA Föt fyrir allar konur Verslunarkjarnanum Fitjum Reykjanesbæ Ljósanótt 20% afsláttur 1-3 september Verið velkomin Sími 568-8585 RAGNAR GUÐLEIFSSON MEINDÝRAEYÐIR Sími: 820 7873 Netfang: ragnargu@internet.is Komdu í skátana Skátastarð er að heast. Skráningar í fullum gangi ásamt upplýsingum um fundartíma á heima- síðu félgasins. www. skatafelag.is Skemmtilegt starf fyrir alla krakka.   Skátafélagið Heiðabúar HÚSMÆÐRAORLOF GULLBRINGU- OG KJÓSARSÝSLU Við viljum vekja athygli á að það eru nokkur sæti laus í aðventuferð til Nürnberg í Þýskalandi 2.-5. des. 2011. Upplýsingar gefa Guðrún í síma 422 7174 og Ína Jónsdóttir í síma 421 2876 eftir kl. 17:00. Vertu í góðu sambandi! Auglýsingadeild í síma 421 0001 (gunnar@vf.is) Fréttadeild í síma 421 0002 (hilmar@vf.is) Ritstjórn og afgreiðsla í síma 421 0000 vf.is • m.vf.is • kylfingur.is Öryggi á Ljósanótt ›› Skúli Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, skrifar: Í upphafi skólaárs ›› FRÉTTIR ‹‹ Gengu fram á jólasvein á Sveifluhálsi Gönguhópur sem var á ferð um Sveifluháls um helgina sá sér til mikillar undr- unar jólasvein sitja uppi á einni hæðinni. „Hann horfði á okkur um stund, tók smá hopp, veifaði og lét sig svo hverfa á bak við hæðina. Hvað hann var að gera þarna á þessum árstíma höfum við ekki hugmynd um en óneitanlega var þetta furðuleg sjón. Við urðum ekki vör við hann eftir þetta,“ sagði einn göngufélaginn í sam- tali við Víkurfréttir. Meðal annarra í hópnum var Helma Gunnarsdóttir sem náði þessari mynd af sveinka þar sem hann sat á hæðinni. Sagt hefur verið að jólasveinarnir búi í Esjunni en þar hefur aldrei neinn orðið var við þá. Ástæðan er einfaldlega sú að þeir eiga ekki heima þar heldur á Sveifluhálsi eins og þessi mynd sannar.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.