Frjáls verslun - 01.09.2012, Blaðsíða 12
12 FRJÁLS VERSLUN 10. 2012
Í stuttu máli
Þ
að fer ekki hjá því að
olíuleki kemur víða
fram í fyrirtækjum
frænda vorra. Mjög
margir mjög ríkir
Norð menn koma með einum eða
öðrum hætti við sögu olíuvinnslu.
Þó á enginn þeirra olíulind. Það
er ekki sjálf olían sem gerir ein
staklingana ríka: Það er þjónusta
við olíuvinnslu sem skilar pening-
um í kassann.
Svo er komið að hagfræðingar
eru farnir að óttast vöxt þjón
ustunnar við olíuna. Yfir 70
þús und störf eru í greinum sem
eru háðar olíuverði. Verulegt fall
á heimsmarkaði – t.d. niður í 50
Bandaríkjadali á fatið – kæmi
fyrst og fremst niður á þjónustu-
greinunum.
En ríkasti maður Noregs í ár em
fyrr er John Fredriksen útgerðar-
maður. Hann jók eign sína á liðnu
ári um jafnvirði 200 milljarða
ís lenkra króna að mati tímaritsins
Kapital. Enginn Norðmaður er nú
nærri því að vera hálfdrættingur
á við John. Og hann græðir mest
á útgerð olíuskipa og leigu á olíu
borpöllum. Undirstaðan er fyrri
útgerð kaupskipa.
GAMLiR peNiNGAR
Það er raunar merkilegt, þegar
farið er niður eftir listanum um
ríkasta fólkið í Noregi, hvað
út gerð kaupskipa kemur oft við
sögu. Flestir hafa erft skip og
byggt svo ofan á arfinn. Aðrir
hafa komið sér sjálfir upp skipa
stól og þar á meðal er John
Fred riksen.
Mikið af velsæld Norðmanna
í dag má rekja til vinnunnar við
að koma olíunni á land og til
kaup enda. Þar er mörg matarhol
an en sjálft andvirði olíunnar
skiptir minna máli. Og undirstaða
þess arar þjónustu er fyrri útgerð
kaupskipa og rekstur skipasmiðja.
Það er áberandi að niður eftir
öllum lista koma upp ættarnöfn
gamalla útgerðarmanna.
Þarna eru Olsen, Wilhelmsen,
Smedvik, Mohn, StoltNielsen,
Astrup Fearnley, Odfjell og Grieg.
Mörg þessara nafna má lesa á
alda gömlum listum yfir ríkustu fjöl
skyldur Noregs.
Þetta eru gamlir peningar og
allt upphaflega komið úr út gerð
kaupskipa. Þjónustu við olíu
vinnsl una hefur síðan verið bætt
við enda náskyldar greinar.
Olíuævin týri Norðmanna byggist
í miklum mæli á þessum grunni
sem varð til áður en nokkur olíu
dropi fannst.
RöKKe á NiðuRLeið
Sægreifinn Kjell Inge Rökke er
núna í sjötta sæti á listanum en
hann hefur einnig komið sér fyrir
í þjónustugreinunum. Togaraút-
gerð hans stendur í stað en hann
á nú borpalla, sem leigðir eru
öðrum, og skipasmiðjur þar sem
búnaður til olíuvinnslu er fram
leiddur.
Það er þó ekki einhlítt að allir
græði á olíu: Númer tvö á listan
um er enn sem fyrr öldungurinn
Olav Thon, sveitastákur sem
skaut tvær mórauðar tófur fyrr
átta tíu árum og hefur síðan ávaxt
að sitt pund í fasteignum. Hann
á nú jafnvirði um 500 milljarða
íslenskra króna að mati Kapital.
Síðan eru þarna kaupmenn
ofar lega á lista og þeir hafa ýmist
erft undirstöður fyrirtækja sinna
eða smíðað þær sjálfir. Jafnframt
vekur athygli að ríkustu mennirnir
eiga ekki stærstu fyrirtækin. Þau
eru flest í ríkiseigu.
enginn á
10 ríKustu menn Noregs eru í útgerð og KaupmennsKu
Norðmenn eru ógeðslega ríkir. peningarnir hrúgast upp bæði í ríkissjóði
og buddum auðmanna. en hvað hefur gert ríka Norðmenn ríka?
TexTi: Gísli KrisTjánsson
Listinn yfir tíu ríkustu menn
Noregs er svona:
John Fredriksen útgerðarmaður.
Olav Thon húseigandi.
Johann Johannsson, kaupmaður í
smásölu og heildsölu.
Odd Reitan, kaupmaður í Rema 1000.
Johann Henrik Andreasen fjárfestir,
áður verksmiðjueigandi.
Kjell Inge Rökke útgerðarmaður.
Stein Erik Hagen fjárfestir, áður
kaupmaður.
Trond Mohn, framleiðandi búnaðar
til olíuvinnslu.
Petter Anker Stordalen hóteleigandi.
Petter T. Smedvik fjárfestir, áður í
útgerð.
olÍulinD
Ostabúðin Delicatessen - Skólavörðustíg 8 - Sími. 562 - 2772 - ostabudin@ostabudin.is
Opnunartími - Mánudaga - Föstudaga 11 - 18 - Laugardaga 11 - 16