Frjáls verslun - 01.09.2012, Page 30
30 FRJÁLS VERSLUN 10. 2012
www.ms.is
Körfurnar eru afhentar í sellófani með fallegri slaufu. Einnig bjóðum við fallega
ostakassa til að senda til viðskiptavina og starfsfólks innanlands.
Pantaðu ostakörfu á www.ms.is. Einfalt, fljótlegt og þægilegt.
Íslensk gjöf
fyrir sælkera
Falleg gjafakarfa með úrvali af bragðgóðum
íslenskum ostum er tilvalin jólagjöf handa
starfsfólki og viðskiptavinum.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
54
40
5
skoðun
Högni Óskarsson segir að mikilvægt sé að hver og einn sé í vinnu sem hann hefur
áhuga á og hentar honum.
„Skipulagið í vinnunni skiptir
líka máli og að hlutverk hvers og
eins sé mótað eftir verkefninu og
þörfum og getu einstaklingsins.
Kröfurnar þurfa að vera þannig
að hægt sé að uppfylla þær.
Sjálfstæði í vinnu er mikilvægt í
tengslum við vellíðan. Það er í
hlutverki stjórnandans að móta
þetta með starfsmanninum.“
Ef hlutverkið er illa skilgreint
er hætta á að þeir sem eru
kappsamir í eðli sínu fari fram úr
sjálfum sér, sem getur virst gott
en er það ekki. Þetta er fólkið
sem getur ofkeyrt sig. Högni
segir að varðandi vellíðan í starfi
skipti líka máli að starfsmaðurinn
stjórni sjálfur forgangsröðun
verkefna. „Starfsmaðurinn þarf
að vera upptekinn af því sem
þarf að vinna að og vinsa rösk-
lega það frá sem má bíða eða
setja beint í ruslið. Stutt hlé í og
á milli tarna eru nauðsynleg og
endurnærandi.“
Högni nefnir líka nauðsyn þess
að sinna þróun í starfi og tryggja
sér stuðning t.d. með leiðbeinan-
da sem hægt er að ráðfæra sig
við og þá á hann við einstakling
sem vinnur ekki á sama stað.
Slíkt eykur sjálfstraust og vellíðan
á vinnustað.
„Allt þetta er „bottomline“mál
allra fyrirtækja.“
Sjálfstæði í vinnu skiptir máli
Högni ósKaRsson
– geðlæknir og stjórnendaþjálfari
SKIpULAGIÐ Í
VINNUNNI
„Skipulagið í
vinn unni skiptir
líka máli og að
hlutverk hvers
og eins sé mótað
eftir verkefninu
og þörfum og getu
einstaklingsins.
Kröfurnar þurfa
að vera þannig
að hægt sé að
uppfylla þær.“
Hinn þýskættaði Allan Zeman flutti barnungur með fjölskyldu sinni til Kanada. Hann var
tíu ára þegar hann byrjaði að vinna
til að leggja sitt af mörkum til
heimilisins eftir að faðir hans lést.
Bar út blöð á morgnana og þreif
og aðstoðaði á veitingastöðum á
kvöldin. Á milli verka var hann í
skóla en skólagangan varð ekki
löng. Með því að vera duglegur
við að selja nærföt var hann bú
inn að safna nokkru fé um það
leyti sem hann varð tvítugur. Árið
1975 flutti Allan til Hong Kong
en þar hafði hann tíðum verið í
viðskiptaerindum. En Allan hefur
ekki einungis verið í fötunum
held ur hefur hann haslað sér
völl á öðrum sviðum. Hann
festi fé í fasteignum í niðurníddu
hverfi í Hong Kong og breytti
því í hring iðu veitingahúsa og
skemm tana lífs, sem kallað er Lan
Kwai Fong. Og Allan hefur farið
með hverfishugmyndina í útrás
til Kína. Þegar hefur verið byggt
eitt hverfi í kínverskri stórborg
og fleiri borgir eru í sigtinu. Allan
er iðjusamur og vill helst ekki
leggjast til svefns. Segist jafnvel
hugsa eins og ekkert hafi ískorist
í svefni. Hann kveðst jafnframt
hafa mjög stutta athyglisspönn,
geti varla horft á kvikmynd frá
upphafi til enda þó að hann komi
að framleiðslu kvikmynda. Þeir
sem til hans þekki viti að hann
hafi aldrei lesið heila bók. Og
ekki er vitað til að áhugi hans
hafi kviknað á að lesa þó ekki
væri nema lítið kver, í kjölfar þess
að hann afsalaði sér kanadísku
ríkisfangi fyrir nokkrum árum og
varð ríkisborgari í HongKong og
Kína.
Frá Regensborg til Hong Kong, með
langri millilendingu í Montreal
loFTuR ólaFsson
– sérfræðingur hjá Íslandssjóðum
ERLENDI
FORSTJÓRINN