Frjáls verslun - 01.09.2012, Side 68
68 FRJÁLS VERSLUN 10. 2012
iPhone 5
Snjallsími (verð frá 179.900 kr., t.d. hjá helstu símafyrirtækjum). Loksins
kom fimman eftir langa bið Appleaðdáenda. Hún sýndi að Apple er
enn í fararbroddi snjallsímavæðingarinnar, þótt margir haldi því fram að
Androidsímarnir saxi ískyggilega hratt á forskotið. iPhone 5 er öflugri,
hraðvirkari, með betri skjá og almennt flottari en fyrirrennarinn og voru
gagnrýnendur almennt sammála um að þetta væri besti iPhonesíminn
til þessa. Stærsti gallinn er þó verðið – iPhone kostar á bilinu 50.000
70.000 krónum meira en bestu símar keppinautanna og spurningin er
hvort gæðamunurinn sé svo mikill.
google nexus 7
Spjaldtölva (verð 59.900 kr., t.d. hjá www.hataekni.is). Google hellti sér
af fullum krafti út í spjaldtölvuframleiðsluna á þessu ári. Fyrsta spjald
tölva fyrirtækisins var Nexus 7, sem var framleidd í samstarfi við Asus.
Margir gagnrýnendur sögðu að með Nexus 7 væri loksins kominn
verð ugur keppinautur iPadsins – flott og öflug spjaldtölva sem skartaði
hinni nýju Jelly Beanútgáfu Androidstýrikerfisins. Þó þótti Nexus 7
ekki ná að slá flaggskipi Apple alveg við – nema ef vera skyldi í verði.
sony Cyber-shot DsC-rX100
Smærri myndavél (verð 129.990 kr. í www.netverslun.is). Þetta er
mögu lega besta vasamyndavél allra tíma að mati blaðamanna PC
World – titill sem Canon Power Shot S100 skartaði áður. Þetta má
þakka myndflögu sem er umtalsvert stærri en áður hefur þekkst í
svo smáum myndavélum. Hún hefur einnig mjög vítt ljósop (F1,8),
sem m.a. bætir myndir sem teknar eru í litlu ljósi. Vídeótakan er jafnframt
framúrskarandi – vélin getur tekið 1080p háskerpuvídeó með 60 römmum
á sekúndu. RX100 hefur verið kölluð vasaljósmyndavél atvinnu mannsins
– og ekki að ástæðulausu. Gæðin skila sér líka í verðið, sem er umtalsvert
hærra en fyrir hefðbundnar myndavélar í þessum stærðarflokki.
Microsoft surface
Spjaldtölva (verð 124.900 kr., t.d. hjá helstu símafyrirtækjum). Surface
markar risaskref fyrir Microsoft inn á tölvumarkaðinn, en með útgáfu
Surface þróar fyrirtækið og framleiðir sjálfa tölvuna í stað þess að
einbeita sér bara að hugbúnaðinum. Með Surface reynir Microsoft að
brúa bilið milli spjaldtölvu og fartölvu, því tölvunni fylgir skjáhlíf sem
hægt er að nota sem lyklaborð með því að smella henni á með einu
handtaki. Surface notar að sjálfsögðu hið nýja Windows 8stýrikerfi,
sem hefur fengið góða dóma og getur keyrt Officeskrifstofuhugbún
aðinn, sem gerir græjuna mjög álitlega fyrir vinnuna. Enn á þó eftir að
koma í ljós hversu vel neytendur taka Surface, en fyrstu vikurnar eftir
að græjan kom á markað benda til þess að almenningur stígi
varlega til jarðar fyrst um sinn.
apple iPad (fjórða kynslóð)
Spjaldtölva (verð frá 89.990 kr., t.d. hjá www.epli.is og omnis.is). iPad
frá Apple var fyrsta spjaldtölvan sem virkilega sló í gegn og hefur
verið í fararbroddi síðan þá. Nýjasta útgáfan, iPad 4, kom á markað í
nóvember og var í sjálfu sér ekki mjög frábrugðin þriðju útgáfunni, sem
var kynnt í mars á þessu ári. Sú var hins vegar stórt stökk fyrir iPad, en
þá var Retinaskjátæknin notuð í fyrsta sinn í spjaldtölvunni. Hún skilar
miklu skarpari mynd en áður (2.048 x 1.536 dílar á 9,7 tommu skjá) og
setur iPadinn skör hærra en keppinautana á þeim vettvangi. Eins og
með svo margar Applevörur er verðið svo til það eina sem er Apple í
óhag. Neyt endur virðast ekki láta það á sig fá, því iPad var áfram
vinsælasta spjaldtölvan á heimsvísu á þessu ári.
HtC One s
Snjallsími (verð frá 84.990 hjá helstu símafyrirtækjum). HTC One S er
einn þeirra síma sem falla svolítið í skugga flaggskipanna frá Apple og
Samsung, en er engu að síður mjög góður kostur fyrir þá sem leita að
toppgræju á góðu verði. One S er einstaklega þunnur en skartar engu
að síður átta megapixla myndavél sem getur auðveldlega fyllt í skarðið
fyrir ódýrari vasamyndavélar. Innbyggð Beats audiohljóðtækni gerir
hljóminn einstaklega góðan, þannig að One S hentar vel fyrir
tónlistar áhugafólk.
Nexus 7 markaði innreið
Google á spjaldtölvu
markaðinn.
DSCRX100 frá Sony er
ein besta smámyndavél
sem gerð hefur verið.
Surface er fyrsta sp
jaldtölvan sem Microsoft
framleiðir.
Nýjasta útgáfan af iPad
kom út í byrjun vetrar.
HTC One S er góður
miðað við verð.
græjur
iPhone 5 er öflugasti
iphonesíminn til þessa.