Frjáls verslun - 01.09.2012, Síða 69
FRJÁLS VERSLUN 10. 2012 69
android jelly Bean
Snjallsímastýrikerfi (fylgir Androidsnjallsímum). Google hélt áfram
að endurnýja Android á árinu með tveimur útgáfum, Jelly Bean 4.1 og
Jelly Bean 4.2. Helstu nýjungarnar í Jelly Bean eru betri raddstýring
og leit, endurbætt myndavélastýring og öflugri vinnsla. Að auki kynnti
Google til leiks GoogleNow; tilkynningatól sem lærir á hegðun notand
ans og birtir sjálfkrafa ýmsar tilkynningar sem geta nýst í daglega lífi nu.
Þar á meðal eru íþróttaúrslit, áætlaður ferðatími og ýmislegt annað.
Gagnrýnendur voru sammála um að Jelly Bean væri talsverð framför
frá Ice Cream Sandwich – en svo er spurningin hvaða eldri símar fá
Jelly Beanuppfærsluna og hverjir eru fastir með Ice Cream Sandwich.
samsung galaxy note ii
Snjallsími (verð 124.900 hjá helstu símafyrirtækjum). Hvort er Samsung
Galaxy Note snjallsími eða spjaldtölva? Svarið liggur ekki í augum uppi,
enda er þessi snjalla græja eins konar millistig og hentar því vel fyrir þá
sem þarfnast stórs skjás en vilja ekki þurfa að burðast stöðugt með
bæði spjaldtölvu og síma. Fyrsta útgáfan af Note vakti athygli undir
lok síðasta árs og naut nokkurra vinsælda þótt ýmislegt mætti finna
að gripnum. Með Note II sem kom út í sumar var búið að sníða helstu
vankantana af og græjan farin að standast öflugustu snjallsím unum
snúning. 5,5 tommu skjárinn er nægilega stór til að Note II sé fyrirtaks
smáspjaldtölva og penninn sem fylgir gerir græjuna frábæra fyrir þá
sem vilja reglulega skrifa minnispunkta á gamla mátann
og teikna skissur.
apple MacBook Pro með retina-skjá
Fartölva (verð frá 349.900 kr., t.d. hjá www.epli.is). MacBook Profar
tölv an skrapp ansi hressilega saman á þessu ári. Í sumar var kynnt ný
15 tommu útgáfa af fartölvunni með einstaklega skörpum og flottum
skjá, þökk sé Retinaskjátækninni. Tölvan var 25% þynnri en fyrirrenn
ararnir og öflugri, þökk sé vélbúnaðaruppfærslum. Nú í vetur kom svo
út enn minni 13 tommu útgáfa fyrir þá sem þurfa ekki fullar 15 tommur.
Einstaklega flott og öflug fartölva, en verðið er líka eftir því og makka
unnendur þurfa hér sem annars staðar að vera tilbúnir til að
borga talsvert meira fyrir sín tæki en PCnotendur.
HtC 8X
Snjallsími (verð 109.900 kr. hjá helstu símafyrirtækjum). HTC 8X er einn
öflugasti snjallsíminn með Windows Phone 8 sem kom út á árinu. Hann
er einstaklega litríkur og flottur og veitir öflugustu Android og iPhone
símunum harða samkeppni hvað vinnslugetu varðar. HTC 8X sýnir vel
helstu kosti Windows Phone 8stýrikerfisins, á borð við góða framsetn
ingu mikilvægustu upplýsinga strax á heimaskjánum. Hann nýtir einnig
vel sérkenni HTCsímanna á borð við Beats Audio sem skerpir á
hljóm num þegar tónlist er spiluð í símunum.
adobe Creative suite 6
Myndvinnsluforrit (verð frá ca. 250.000 kr., www.adobe.com).
Creative Suite 6 frá Adobe var ein stærsta uppfærsla á þessu safni
mynd og vefvinnsluforrita sem komið hefur út. Creative Suite hefur
fyrir löngu fest sig í sessi sem aðalverkfæri atvinnumanna í stafrænni
myndvinnslu. Sexan er troðfull af nýjungum og er léttari í vinnslu, þökk
sé betri nýtingu á skjákortum tölvanna. Að auki hefur Adobe fylgt kalli
markaðarins eftir betri tólum fyrir þróun snjallsímaforrita með því að
bæta við ýmsum nýjungum sem nýtast vel hönnuðum snjallsímaforrita.
samsung es8000 LCD HDtv
Flatskjár (verð frá 449.900 hjá www.samsungsetrid.is). Samsung hefur
tekið stórt skref fram á við í þróun sjónvarpa með 8seríunni. Þessi
sjónvörp eru ekki bara einstaklega flott með skarpri og bjartri mynd,
heldur er hægt að nettengja þau til að sækja ýmiss konar afþreyingar
efni á netið. Þeim má bæði stjórna með raddskipunum og handa
hreyfingum og ljóst að þarna sjáum við forsmekkinn að því hvernig
sjónvörp framtíðarinnar munu verða. Verðið er þó talsverð hindrun enn
sem komið er, enda ekki á allra færi að greiða hátt í hálfa milljón
króna fyrir flatskjá, þótt flottur sé.
Með pennanum má
auðveldlega rissa upp
teikningar á Samsung
Galaxy Note II.
MacBook pro Retina er með frábæran skjá.
HTC 8Xsímarnir
eru litríkir og flottir.
Samsung eS8000 er ekki bara sjónvarp
heldur líka afþreyingarmiðstöð.