Frjáls verslun - 01.09.2012, Blaðsíða 77
FRJÁLS VERSLUN 10. 2012 77
Heiðra minningu Diddu Nóa
Þá er ótalin verslunin Didda
Nóa, sérverslun með kvenfatn
að og er áherslan á konur sem
komnar eru á virðulegan aldur.
Með nafninu heiðra þau minn
ingu móður Guðrúnar og nöfnu,
Guð rúnar Helgadóttur. Hún og
eiginmaður hennar, Jóhann Ingi
marsson, sem gjarnan er kall að ur
Nói, ráku verslun í sama plássi
um langt skeið. „Það lá beint
við að nefna búð ina eftir henni,“
segir Aðalsteinn. Guðrún opnaði
fyrstu verslun sína á sama stað,
hún hét í fyrstu Gallerí en lengst
af bar hún nafnið Perfect, eða allt
þar til fyrir tveimur árum þeg ar
nafninu var breytt í Didda Nóa.
„Þetta er mjög skemmtilegt
starf, líflegt og gefandi,“ segir
Guðrún og Aðalsteinn tekur í
sama streng, þó svo hann hafi
á árum áður stefnt að starfs-
ferli á öðrum vettvangi. „Ég hef
mjög gaman af þessu, starfið
snýst um miklu fleira en að
standa við afgreiðsluborð, það
þarf að huga að svo mörgu
öðru sem gerir verslunarrektur
af þessu tagi svo fjölbreyttan,“
segir Aðalsteinn.
Stolt þegar við sjáum vel
klætt fólk í fatnaði frá okkur
Bæði eru þau fædd og uppalin
á Akureyri og vilja hvergi
ann ars staðar vera með sinn
rekstur, enda segja þau gott að
reka fyrirtæki í bænum. Því hafi
þau haslað sér þar völl og séu
ekki á förum. Vissulega segja
þau markaðinn syðra stærri og
eflaust gætu þau haft meira
upp úr því að vera með sinn
rekstur þar, „og hefðum kannski
gert það ef við værum bara að
horfa í krónur og aura, en við
erum bæði ánægð hér í bænum
og með þann árangur sem við
höfum náð í verslunarrekstri
hér“, segir Guðrún. „Við höfum
metnað til að bjóða bæjarbúum
og gestum vandaðan og góðan
fatnað og erum stolt þegar við
sjáum vel klætt fólk í fatnaði úr
okkar verslunum.“
Persónulegri þjónusta
Aðalsteinn nefnir að meiri
nánd skapist við viðskiptavini í
bæjar félagi af þeirri stærð sem
Akur eyri er og margir fastir við
skipta vinir haldi tryggð við þau.
„Það tala margir utanbæjar-
menn um það,“ segir Guðrún,
„að afgreiðslan norðan heiða
sé persónulegri, hér hafi fólk
meiri tíma til að sinna hverjum
og einum viðskiptavini og því sé
þjónustan heilt yfir betri. Hér er
færra fólk og því hægt að veita
hverjum og einum meiri og betri
þjónustu en oft tekst í asanum á
höfuðborgarsvæðinu.“
Auk persónulegrar þjónustu
er verð yfirleitt lægra á Akureyri
og það kunna t.d. íbúar af höf
uðborgarsvæðinu vel að meta.
„Álagningin er minni hér fyrir
norðan, þó svo að við þurfum
að greiða aukalega fyrir flutning
frá Reykjavík og til Akureyrar,“
segja þau.
Traustustu viðskiptavinirnir í
hópi heimamanna
Traustustu viðskiptavinir þeirra
eru í hópi heimamanna og þau
leggja sig fram um að sinna
hon um. Að auki leggja nágrann
ar leið sína í ríkum mæli til
Akur eyrar og koma víða að,
af öllu Norðurlandi og eins er
tölu vert um að íbúar af Austur-
landi bregði sér bæjarleið og
kaupi m.a. fatnað í höfuðstað
Norðurlands. Ferðafólk víðar að
kemur einnig í miklum mæli til
Akureyrar á öllum árstímum, en
Aðalsteinn segir að undanfarin
misseri hafi gríðarlegar álögur á
eldsneyti dregið úr lausaumferð
og það sé afar bagalegt. „Það
skiptir alla verslun og þjónustu
í bæ eins og Akureyri verulega
miklu máli, ég er sannfærður
um að ef stjórnvöld sæju sér
fært að draga úr álögum sínum
á eldsneyti myndi það hafa já
kvæð áhrif.“
Gott að vera í miðbænum
Þau Aðalsteinn og Guðrún eru
sammála um að gott sé að vera
með rekstur í miðbænum, oft
sé kvartað yfir að bæjarbúar
séu ekki nægilega sjáanlegir á
þeim slóðum, einkum auðvitað
yfir vetrar tímann. „Það er bara
eðlilegt, fólk er ekki að dóla neitt
í bænum yfir hávetur, en það
kemur eftir sem áður mikið í
bæ inn, sinnir sínum erindum og
hverfur svo á brott,“ segja þau.
Yfir sumarið sé hins vegar mikið
líf í miðbænum „og það er alveg
yndislegur tími“, segir Guðrún.
reka fimm verslanir á akureyri:
GALLERÍ STELpUR Á GLERÁRTORGI.
GALLERÍ FATAVERSLUN VIð STRANdGöTU.
GS AKUREyRI, RÁðHÚSTORGI.
OUTLET AKUREyRI, RÁðHÚSTORGI.
dIddA NÓA KVENFATAVERSLUN, RÁðHÚSTORGI.
Hjónin Guðrún Jóhannsdóttir og Aðalsteinn Árnason reka fimm
fataverslanir á Akureyri.
„Guðrún hefur staðið
í verslunarrekstri
um langa hríð, hún
fagnar þrjátíu ára
kaupmannsafmæli
sínu í vor en fyrstu
verslun sína opnaði
hún í miðbæ Akur
eyrar 2. maí 1983.“
Með nafninu Didda Nóa heiðra þau minningu móður Guðrúnar og nöfnu, Guðrúnar Helgadóttur. Hún og eigin
maður hennar, Jóhann Ingimarsson, sem gjarnan er kallaður Nói, ráku verslun í sama rými um langt skeið.