Frjáls verslun - 01.09.2012, Page 94
94 FRJÁLS VERSLUN 10. 2012
A
nthony Hopkins fer
með hlutverk Al-
freds Hitchcocks í
kvik mynd inni Hitch
cock sem gerist
þegar verið er að kvik mynda
Psycho og er m.a. einblínt á ná
ið samband hans og eigin konu
hans, Ölmu, sem Helen Mirren
leikur. Kemur Hitchcock í kjölfar
sjónvarpsmyndarinnar The
Girl, þar sem Toby Jones leikur
Hitch cock og Sienna Mill er
fyrir sætuna Tippi Hedren, sem
Hitchcock vildi gera að fullkom
inni Hitchcockkvikmynda stjörnu
en lagði stein í götu hennar
þeg ar hún vildi ekki þýðast
hann kyn ferðislega og eyðilagði
kvik myndaferil hennar.
Hitchcock er gerð eftir bók
inni: Alfred Hitchcock and
the Making of the Psycho
eftir Stephen Rebello. Í henni
kem ur í ljós að Hitchcock
var í vandræðum með að fá
fjár magn til að kosta Psycho
og var sjálfur í vafa um hvort
Psycho væri góð hugmynd
að kvikmynd en hún er byggð
á sam nefndri skáldsögu eftir
Robert Bloch, þar sem fyrir
mynd in er raðmorðinginn Ed
Gein. Efasemdir Hitchcocks
gagnvart Psycho komu meðal
annars fram í þeirri ákvörðun
hans að drepa persónuna
sem Janet Leight lék snemma
í myndinni, sem síðar reyndist
mesta snilldin; sjálft sturtuatriðið
með öllum sínum áhrifamiklu
hughrifum. Janet Leigh var þá
einhver vinsælasta leikkonan
í Hollywood og að láta hana
hverfa snemma af sjónarsviðinu
þótti framleiðendum ekki góður
kostur, en Hitchcock, eins og
alltaf, hélt sínu striki og lét eng
an segja sér fyrir verkum.
Í kapphlaupinu um
óskarinn
Það sem flestir bíða spenntir
eftir er að sjá hvernig stórleik
aranum Anthony Hopkins tekst
upp í hlutverki Alfreds Hitch-
cocks. Samkvæmt ljósmyndum
er hann kominn með líkams-
bygginguna en eins og við var
að búast er erfitt að ná réttu
andlitsfallinu í stórskornu og
ófríðu andliti meistarans. En ef
túlkunin er góð efast ég ekki um
að Hopkins verður tilnefndur til
óskarsverðlauna. Tilgangurinn
með því að frumsýna Hitchcock
í lok nóvember er einmitt að
koma myndinni í kapphlaupið
um óskarinn, en tökum á henni
lauk ekki fyrr en í lok maí á
þessu ári.
Helen Mirren, sem leikur
eig in konuna Ölmu Reville, er
ekki síður en Hopkins virt af
öllum og ætti samleikur þeirra
að vera eftirminnilegur. Með
hlut verk Janet Leigh fer Scarlett
Johans son, James D’Arcy leikur
Anthony Perkins og Jessica
Biel leikur Veru Miles, en þau
þrjú voru aðalleikarar í Psycho.
Aðrir leikarar eru Toni Collette,
sem leikur persónulegan að
stoðarmann Hitchcocks, Danny
Huston sem handritshöfundurinn
og leikritaskáldið Whitfield Cook,
Ralph Macchio sem handritshöf
undurinn Joseph Stefano og
Michael Wincott í hlutverki morð
ingjans Eds Geins, sem bregður
fyrir í myndinni. Leikstjórinn
Sacha Gervasi er tiltölulega
óþekktur og er Hitchcock
hans fyrsta leikna kvikmynd í
fullri lengd. Gervasi vakti fyrst
athygli með margverðlaunaðri
heim ilda mynd, Anvil: the Story
of Anvil, sem fjallar um þung a
rokks sveituna Anvil, sem eng inn
þekkir, en heldur ótrauð áfram
og hefur gefið út þrettán plötur.
Þess má svo geta að tónlistina
við Hitchcock semur Danny
Elf man en hann endurflutti hina
frægu tónlist Bernhards Herr-
manns við Psycho þegar Gus
Van Sant endurgerði Psycho,
atriði fyrir atriði, árið 1998.
The Girl
Það er ekki margt sem Hitch
cock og The Girl eiga sameigin-
legt nema það að fjalla um
Hitchcock og The girl sýna tvær hliðar á alfred hitchcock,
einum mesta snillingi kvikmyndasögunnar
TexTi: HilMar Karlsson
„Helen Mirren, sem
leikur eig in kon una
Ölmu Reville, er
ekki síður en Hop
kins virt af öllum
og ætti sam leikur
þeirra að vera eftir
minnilegur.“
The Girl. Toby Jones og Sienna Miller í hlutverkum Alfreds Hitchcocks og Tippi Hedren.
kvikmyndir
Það sem gerðist
bak við tjöldin