Víkurfréttir - 14.05.2009, Blaðsíða 14
14 AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 20. TÖLUBLAÐ I 30. ÁRGANGUR
WWW.N1.ISN1 er leiðandi verslunar- og þjónustufyrirtæki á sviði bílatengdrar starfsemi fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Liðsmaður óskast
Nánari upplýsingar veitir Dagur Benónýsson í síma 440-1030
eða dagur@n1.is
Áhugasamir geta sótt um starfið á www.n1.is fyrir 24. maí 2009
N1 óskar eftir að ráða starfsmann á hjólbarðaverkstæði sitt í Reykjanesbæ.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem allra fyrst.
Hæfniskröfur:
� Reynsla og þekking af smur- og hjólbarðaþjónustu
� Rík þjónustulund
� Öguð vinnubrögð
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
Hjólbaraðverkstæði Reykjanesbæ 1_4.pdf 11.5.2009 14:19:32
Við sameiningu sveitarfélag-
anna og stofnun Reykjanes-
bæjar var ákveðið að fara í stór-
framkvæmdir í Helguvík fyrir
iðnaðarsvæði.
Í l o k á r s i n s
1994 var fyrsta
skipið tekið upp
að nýjum 150
metra viðlegu-
kanti í Helgu-
vík.
V i ð h ö f u m
tekið á móti 30-40 erlendum fjár-
festum á þessum tíma með að-
stoð Fjárfestingarstofu Íslands,
Hitaveitu Suðurnesja, Kadeco
og fleiri innlendum aðilum.
Aðeins eitt erlent fyrirtæki Aal-
borg Portland með sementsinn-
flutning hefur fest rætur sínar í
Helguvík.
Undirritaður var samningur við
Norðurál (Century Aluminium)
26.4. 2006 um byggingu álvers,
og framkvæmdir hafnar 13.05.
2008.
Loksins var samþykktur fjárfest-
ingarsamningur af ríkisstjórn-
inni fyrir 360 þúsund tonna ál-
ver, en framkvæmdir við álverið
hafa tafist um 7 mánuði m.a.
vegna þessa.
Áætlað er að byggingarfram-
kvæmdir verði komnar á fulla
ferð í haust, en heildar fjárfest-
ingarkostnaður álversins eru
225 milljarðar króna.
Fyrsti áfangi er áætlaður að fara
í notkun á árinu 2011.
Unnið er að fjárfestingarsamn-
ingi við ríkið fyrir Kísilflöguverk-
smiðju (Icelandic Silicon Cor-
poration), sem hefur fengið sam-
þykkt umhverfismat í Helguvík.
Vonandi gengur það eftir, og þá
verður hægt að hefja þær fram-
kvæmdir á árinu 2010.
Rekstur hafnarinnar hefur alltaf
skilað hagnaði fyrir afskriftir og
fjármagnsliði frá stofnun Reykja-
neshafnar 1.1.1990. Einnig eftir
hvarf Varnarliðsins, sem var
töluverður samdráttur í tekjum
af vörugjöldum, en í staðinn
komu tekjur af vörugjöldum af
olíuinnflutningi í Helguvík sem
eru enn að aukast.
Reykjaneshöfn hefur þurft að
fjármagna framkvæmdir við
væntanlega álvershöfn og iðn-
aðarsvæðið í Helguvík með
lántökum. Reiknað er með ríkis-
styrki í þær hafnarframkvæmdir
eins og með sambærilegar hafn-
arframkvæmdir á Reyðarfirði
og Húsavík.
Þegar álverið verður komið í
fulla stærð, kísilflöguverksmiðja
og önnur hafnsækinn starfsemi
kominn til Helguvíkur munu
tekjur hafnarinnar og fasteigna-
gjöld greiða upp fjárfestingu
hafnarframkvæmda á 12-15
árum.
Það er ekki nóg að samþykkja
að fá álver eða önnur stóriðjufyr-
irtæki til Reykjanesbæjar. Það
þarf að framkvæma hafnargerð
o.fl. til að svo megi verða, og
það kostar tímabundna skuld-
setningu. Sumir bæjarfulltrúar
minnihlutans eru með álveri
þegar það hentar þeim, en móti
hafnargerð og skuldum sem því
fylgja.
Uppbygging Reykjaneshafnar
í Helguvík mun skila fjölda
nýrra starfa strax á þessu ári
þegar framkvæmdir fara á fulla
ferð í uppbyggingu álversins.
Jafnframt munu tekjurnar af ál-
verinu renna bæði í hafnarsjóð
og sem útsvarstekjur af starfs-
mönnum við uppbyggingu og
rekstur álversins.
Nú eru 1900 manns á atvinnu-
leysisskrá á Suðurnesjum og eru
bæjarbúar orðnir mjög óþreyju-
fullir og vilja drífa áfram þessa
stærstu stóriðjuframkvæmd sem
við höfum staðið fyrir og koma
því á fulla ferð. Því ekki veitir af
í þeirri mjög erfiðu stöðu sem
Suðurnesin og íslenskt þjóðfélag
stendur frammi fyrir.
Síðastliðin 5 ár höfum við unnið
ötullega að uppbyggingu álvers
í Helguvík og verið óhræddir
við að taka afstöðu með álverinu
í bæjarstjórn og opinberri um-
ræðu. Því þó nokkrir eru á móti
þessari atvinnustarfsemi, en við
trúum að hún muni stuðla að
fjölbreyttu atvinnulífi og stöðu-
gri vinnu. Þar sem reglubundnar
siglingar til Helguvíkur munu
laða að fyrirtæki, sem jafnt eru
úrvinnslufyrirtæki áls eða með
léttari iðnað. Einstakt er að hafa
stórskipahöfn og alþjóðaflugvöll
í 10 km fjarlægð.
Þorsteinn Erlingsson
skipstjóri, form. Atvinnu-
og hafnaráðs RNB.
Klaas Kloosterboer í Suðsuðvestur:
„Pulp Machineries“
Næstkomandi laugardag 16. maí kl.16:00 opnar Suðsuð-
vestur í samvinnu við Galerie van Gelder (Amsterdam)
einkasýningu á verkum hollenska listamannsins Klaas
Kloosterboer. Sýningin tilheyrir Listahátíð í Reykjavík 2009
og ber yfirskriftina „Pulp Machineries“.
Sýningin stendur til 14. júní. Ókeypis aðgangur og allir eru
velkomnir. Suðsuðvestur er til húsa á Hafnargötu 22 í Kefla-
vík, þar er opið um helgar frá kl. 14-17 og eftir samkomu-
lagi. – sjá nánar á vf.is
Þorsteinn Erlingsson skrifar:
Rekstur Reykjaneshafnar
ÚTKALLSSÍMI
VÍKURFRÉTTA
LJÓSMYNDARI OG KVIKMYNDATÖKUMAÐUR
Á BAKVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN
EF ÞÚ VERÐUR VITNI AÐ FRÉTT!