Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.06.2009, Blaðsíða 18

Víkurfréttir - 04.06.2009, Blaðsíða 18
18 AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 23. TÖLUBLAÐ I 30. ÁRGANGUR TILLAGA AÐ NIÐURFELLINGU SVÆÐISSKIPULAGS Reykjanesbær, Sandgerðisbær, Gerðahreppur, Keflavíkurflugvöllur 1995-2015 Samvinnunefnd um svæðisskipulag Suðurnesja auglýsir hér með t i l lögu að niðurfel l ingu Svæðisskipulags – Reykjanesbær, Sandgerðisbær, Gerðahreppur, Keflavíkurflugvöllur 1995 – 2015, skv.13. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Tillagan verður til sýnis á Bæjarskrifstofunum Grindavíkurbæ Víkurbraut 62, Sandgerðisbæ Vörðunni Miðnestorgi 3, Reykjanesbæ Tjarnargötu 12, Sveitarfélaginu Garði Sunnubraut 4 og Sveitar- félaginu Vogum Iðndal 2. Tillagan er einnig til sýnis hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík frá og með 3. júní 2009 til og með 1. júlí 2009. Tillöguna má jafnframt skoða á heimasíðum sveitar- félaganna, www.sandgerdi.is, www,reykjanesbaer.is www.svgardur.is, og á heimasíðum Keflavíkur- flugvallar, www.kefairport.is, Kanon arkitekta, www.kanon.is og VSÓ Ráðgjafar, www.vso.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til þess að skila inn athuga- semdum er til og með 15. júlí 2009. Skila skal athugasemdum á Bæjarskrifstofu Sandgerðisbæjar, Vörðunni, Miðnestorgi 3, 245 Sandgerði. Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests telst samþykkur henni. Samvinnunefnd um svæðisskipulag Suðurnesja Okkur Mánafélaga langar til að minnast Kristjáns Fals Hlynssonar er lést þann 20. maí langt fyrir aldur fram, aðeins 18 ára gamall. Kristján var mjög ötull og virkur fé- lagsmaður ásamt foreldrum sínum, bróður og föðurafa í Hestamanna- félaginu Mána í Keflavík þrátt fyrir ungan aldur. Kraftur, gleði, fallegt bros og skemmtilegur hlátur ein- kenndi þennan einstaka dreng. Krist- ján tók virkan þátt í uppákomum félagsins og núna nýlega er vígslan var á nýju reiðhöllinni á Mánagrund þann 9. maí sl. var Kristján ásamt Ragnari yngri bróður sínum og fleiri unglingum, þátttakandi þar í glæsilegu opnunaratriði. Þær voru ófáar vinnustundirnar sem hann átti við uppbyggingu á Reiðhöllinni ásamt föður sínum og bróður. Allt frá því að byrjað var á sökklinum og fram á síð- asta dag, var hann yfirleitt á hlaupum og tína saman spýtur og laga til á vinnusvæðinu, enda var hann að læra smíðar í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Aldrei gaf hann eftir í vinnu eða í leik, alltaf tilbúinn að leggja eitthvað af mörkum. Kristján Falur var fyrirmyndarfélagi í Mána og vel liðinn af öllum sem umgengust hann. Hans verður sárt saknað. Við Mánafélagar vottum fjölskyldu og aðstandendum Kristjáns Fals innilega samúð og megi guð styrkja ykkur á þessum erfiðu tímum. Lárus B. Þórhallsson Kveðja frá Hestamanna- félaginu Mána, Keflavík ✝ Kristján Falur Hlynsson, lést af slysförum miðvikudaginn 20. maí. Útför hans fer fr m f á Keflavíkurkirkju föstudaginn 29. maí kl. 13:00 Hlynur Steinn Kristjánsson, Helga Sigríður Halldórsdóttir, Ragnar Hlynsson, Kristján Sigurðsson, Ingunn Guðbjartsdóttir, Halldór A. Brynjólfsson, Elísabet Ólafsdóttir. Ástkær sonur okkar, bróðir og barnabarn, Auglýsingasíminn er 421 0000 - hver sér um markaðsmálin í þínu fyrirtæki? Maðurinn sem lést í umferð- arslysi á Grinda- víkurvegi í síðustu viku hét Sigur- finnur Jónsson, til heimilis í Grindavík. Hann var 48 ára. Sigurfinnur lætur eftir sig eiginkonu og þrjú börn. Ellefu útskrifast Í lok maí útskrifuðust 11 einstaklingar frá Miðstöð sí- menntunar á Suðurnesjum sem stundað hafa ferðaþjón- ustunám sem nefnist Færni í ferðaþjónustu. Námið er hannað af Fræðslumiðstöð at- vinnulífsins að beiðni Starfs- greinasambands Íslands (SGS) og Samtaka atvinnurek- enda í ferðaþjónustu (SAF) en framkvæmd og kennsla var í höndum Miðstöðvar sí- menntunar á Suðurnesjum. Námið er 160 kennslustundir og þar er farið yfir öll helstu viðfangsefni aðila sem starfa í ferðaþjónustu og áhersla lögð á færni þátttakenda til að veita gæðaþjónustu. Í haust verður aftur farið af stað með Færni í ferðaþjón- ustu hjá MSS. Lést í umferð- arslysi Rannsóknardeild lögregl- unnar á Suðurnesjum óskar eftir vitnum vegna innbrots í heimahús í Holtahverfi Reykja- nesbæjar, sl. laugardag. Þá hvort vitni hafi séð einhvern á ferð um hverfið, eða á útivistar- svæði ofan við Baugholt, með haldapoka eins og sést á þess- ari ljósmynd. Hlutaðeigandi eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 420 1800. Leitað að vitnum vegna innbrots

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.