Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.01.2012, Page 8

Víkurfréttir - 26.01.2012, Page 8
8 FIMMTUdagUrInn 26. janúar 2012 • VÍKURFRÉTTIR Fimm ár eru liðin frá því að þær systur fóru af stað með Mýr design ævintýrið en allt saman byrjaði þetta í Austurríki þar sem þær systur voru búsettar. Linda býr þar enn og hefur gert um árabil en Helga er á stöð- ugu flakki á milli landanna tveggja. Helga segist nú vera komin með smávegis reynslu af þessum bransa og hefur þróað fyrirtækið hægt og bítandi á þessum tíma. Hún telur að nú sé hún klár í að fara á fullt með fram- leiðslu. „Ég ákvað bara að gera þetta hægt og rólega og fyrir mitt leyti þá er þetta bara þessi tími sem þarf til að koma fótum undir fyrirtækið. Ég geri t.d. ekkert nema ég eigi pening fyrir því,“ segir Helga en hún hannar og framleiðir tískuvörur mestmegnis úr ís- lensku hráefni eins og leðri, fiskroði, skinni og íslenskri ull, meðal annars skartgripi, töskur, belti, háls- kraga og fatnað úr ull. Helga hefur nóg á sinni könnu en auk þess að hanna og sauma föt þá reka þau hjónin gistiheim- ili og halda úti öryggis- fræðslufyrirtæki og reka tölvuskóla Suðurnesja. „Ég get ekki sagt að ég lifi beint á Mýr design í dag en þetta er bara eitthvað sem ég er að skapa. Ég er ekki að steypa mér í skuldir með þessu en oft hefur það kitlað að gera meira og leggja allt í s ö l u r n a r. Sérstaklega núna þegar e f t i r - spurnin er að aukast en ég hef það f yr ir mottó að gera hlutina hægt og vel og ekki gera neitt án þess að hafa efni á því.“ Allur fatnaður Mýr design er unninn á Íslandi eftir hönnun Helgu en hún er menntuð í fata- saum. Eftir að frumútgáfa af flík fæðist á teikniborðinu þá lætur hún hana í hendur klæðskera í Reykjavík sem er jafnframt kjólameistari. Hún gerir svo sniðin sem sauma- konur nýta svo til þess að sauma fötin. Helga lýsir fatnaði sínum sem nútímalegum og þægilegum. „Þetta er sérstakur stíll, en þetta er algerlega minn eiginn stíll,“ segir hún. Fötin segir hún vera frekar tímalaus og hún telur að með því sé ekki hætta á því að fötin verði úrelt á skömmum tíma. Efnin kaupir Helga í Vínarborg en þar fær hún afar vönduð efni á góðu verði. Öll framleiðsla fer svo fram hér á Íslandi eins og áður segir. „Á meðan það gengur vel að flakka svona á milli þá er það í góðu lagi mín vegna. Maður fær það besta frá báðum löndum. Það er alltaf gaman að koma út og hitta fólkið og vinina þar. Svo þarf maður alltaf að taka til hendinni þegar heim er komið, enda hrannast verkefnin oft upp“ segir Helga sem vanalega dvelur um 10 daga í senn í Austur- ríki. Stefna á Austurríkismarkað Fatnaður frá Mýr design er kominn í sölu í Duty free versluninni í Flug- stöð Leifs Eiríkssonar og einnig í Kraum við Aðalstræti í Reykjavík þar sem ýmsir hönnuðir selja vörur sínar. „Við höfum verið í Duty free síðan í haust og það hefur gengið mjög vel. Viðbrögðin við hönnun minni hafa alls staðar verið mjög góð en ég hef farið víða til þess að koma mér á fram- færi.“ Helga fer m.a. nokkrum sinnum á ári til Lúxemborgar þar sem hún tekur þátt í sýningum og þær systur voru s v o d u g l e g a r að sýna víða í Austurríki. Þar hafa þær fengið mikla athygli undanfarið. „ Þ a ð h ó f s t þannig að það var bir t við- tal við okkur í tímariti um l i s t a m e n n í Austurríki. Upp frá því hafði ríkis- sjónvarpið sam- band við okkur og tók við okkur viðtal sem vakti ágætis athygli á okkur. Umfjöll- unin um okkur er svo alltaf að aukast í Austur- Mýr design BLÓMsTrAr Í HÖnnUn Lista og handverksteymið Mýr design, eru þær systur Helga Björg og Linda steinþórsdætur. Helga hefur mikinn áhuga á hönnun og hand- verki og hefur sérhæft sig á því sviði. Linda fæst hins vegar við málverk. Þær hafa verið að gera það gott að undanförnu og sérstaklega hefur fatn- aður Helgu verið að vekja athygli. Helga er með opna vinnustofu í glæsi- legu rými í eldey uppi á Ásbrú. Þar hefur hún komið sér upp myndarlegri aðstöðu en hún var ein af þeim fyrstu sem byrjaði með starfsemi í hús- inu sem Keilir hefur að mestu nýtt undir kennslu. Blaðamaður tók hús á hönnuðinum efnilega á dögunum. Fyrirsæta: Rúna Björg • Förðun: Ásdís Sverrisdóttir • Stílisti: Ína Hrund Ísdal Ljósmyndari: Óli Haukur Mýrdal • OZZO Photography & atvinnulíf Umsjón: Eyþór Sæmundsson / eythor@vf.is

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.