Víkurfréttir - 09.02.2012, Blaðsíða 2
2 FIMMTUdagUrInn 9. FEBrúar 2012 • VÍKURFRÉTTIR
Fisktækniskóli Ís-
lands verði til jafns
við aðra skóla
Bæjarráð Grinda-
víkur hvetur
Alþingi og
menntamála-
ráðherra til að
veita Fisktækni-
skóla Íslands
viðeigandi stöðu sem sérskóli á
framhaldsskólastigi. Jafnramt
að framlög til skólans verði eins
og til annarra sambærilegra
skóla á framhaldsskólastigi.
Þetta kemur fram í bókun bæjar-
ráðs Grindavíkur nú í vikunni þar
sem ársskýrsla og ársreikningur
2010 frá aðalfundi Fisktækniskóla
Íslands 2011 voru til umfjöllunar.
8.500 króna lík-
amsræktarstyrkur
í Grindavík
Bæjarstjóri Grinda-
víkur hefur lagt
fram tillögu
að styrk til
íþróttafélaga
í Grindavík á
móti kostnaði
við líkamsrækt í heilsurækt Actic
ehf. í sundmiðstöð Grindavíkur.
Actic býðst til að selja íþrótta-
félögum árskortið á 19.900 kr.
Bæjarráð Grindavíkur samþykkir
að Grindavíkurbær veiti styrk sem
samsvarar því gjaldi sem iðkendur
greiða í sund, þ.e. 8.500 kr.
Þá verður árgjaldið á hvern
íþróttamann 11.400. Styrkurinn
standi leikmönnum meistara-
flokka til boða, auk afreksfólks
í einstaklingsíþróttunum.
Piteå vill aukin
samskipti við
Grindavík
Piteå, vinabær
Grindavíkur-
bæjar í Svíþjóð,
hefur sent
beiðni um
aukin samskipti
bæjanna. Full-
trúar Piteå komu í heimsókn
til Grindavíkur árið 2006.
Grindavíkurbær á 5 vinabæi
í Svíþjóð, Frakklandi, Eng-
landi, Finnlandi og Portúgal.
Bæjarráð Grindavíkur tekur
jákvætt í beiðnina og felur bæjar-
stjóra að hafa samband við
aðra vinabæi Grindavíkur og
kanna áhuga þeirra á því að við-
halda vinabæjarsamstarfinu.
›› FRÉTTIR ‹‹
Þegar Sigurður Þorleifsson í Sandgerði fékk að vita að nýtt
mælaborð í bílinn hans, sem er af
gerðinni Renault Scenic, myndi
kosta 203.000 krónur í umboðinu
á Íslandi voru góð ráð dýr. Sigurði
þótti verðlagningin á varahlut-
num stjarnfræðileg og ákvað því
að leita að samskonar varahlut á
netinu.
Leitin bar fljótt árangur en vara-
hlutinn fann Sigurður á eBay.com
og þar kostaði hann 105 pund
eða um 20.000 krónur. Með því að
láta senda hlutinn heim til Íslands
lögðust aukalega rúmar 11.000
krónur við kostnaðinn. Sigurður
er núna kominn með varahlutinn
í hendurnar og útlagður kostnaður
er 29.500 krónur. Hann hefði því
getað fengið sjö mælaborð á eBay.
com fyrir sama verð og eitt hér
heima á Íslandi.
Sigurður segist ekki hafa neinar
skýringar á því hvers vegna mæla-
borðið sé boðið til sölu á 203.000
krónur hér á Íslandi. Þá hafi honum
verið boðið að láta senda bilaða
mælaborðið utan til viðgerðar og
átti það að kosta 60.000 krónur.
Fyrir þá upphæð hefði hann fengið
tvö mælaborð á netinu. Sigurður
hvatti fólk til að kanna verð á vara-
hlutum á netinu áður en það sam-
þykkti uppsett verð umboðanna á
Íslandi.
Sandgerðisbær og Isavia ohf. undirrituðu samkomulag sl.
föstudag um skipan björgunar,
slökkviliðs- og eldvarnamála á
starfsvæði Isavia á Keflavíkur-
flugvelli. Samkvæmt samkomu-
laginu einskorðast starfsemi
Isavia á sviði björgunar- og
slökkviþjónustu frá 1. mars nk.
við verkefni sem falla undir loft-
ferðalög og reglur sem settar eru á
grundvelli þeirra. Sandgerðisbær
mun frá sama tíma sinna slökkvi-
liðsmálum og brunavörnum sam-
kvæmt lögum um brunavarnir nr.
75/2000 í öllu sveitarfélaginu sem
nær yfir stóran hluta af starfsvæði
Isavia.
Það er vilji beggja aðila að standa
vel að þeim breytingum sem fyrir-
hugaðar eru og verða í framhaldi af
þessu samkomulagi gerðar áætlanir
um gagnkvæma aðstoð í slökkvi-
liðsmálum.
Eftir undirskrift í flugstöðinni
hlustuðu bæjarstjóri og bæjar-
fulltrúar Sandgerðinga á kynn-
ingu um starfsemi Isavia. Björn Óli
Hauksson, forstjóri Isavia sýndi í
máli og myndum hversu viðamikil
starfsemin er orðin.
Flugstöðvarsvæðið er að mestu
leyti í landi Sandgerðis og njóta
heimamenn þess í árlegum tekjum
af landinu upp á um 300 millj. kr.
Sigurður Þorleifsson með mæla-
borðið sem hann keypti á eBay.com
fyrir brot af því sem varahluturinn
átti að kosta á Íslandi.
Margrét Sighvats-dóttir, s öng-
kona og húsmóðir
í Grindavík, lést á
hjúkrunarheimilinu
Víðihlíð í Grindavík
föstudaginn 3. febrúar
sl., áttatíu og eins árs
að aldri.
Margrét var fædd í Ár-
túnum á Rangárvöllum
23. maí 1930. Hún var
dóttir hjónanna Krist-
ínar Árnadóttur og
Sighvatar Andréssonar bónda á
Ragnheiðarstöðum í Flóa.
Margrét var stofnfélagi í Slysavarna-
félaginu Þórkötlu, sat í fyrstu stjórn
þess og var heiðursfélagi. Hún var
jafnframt í Kvenfélagi Grindavíkur,
sóknarnefnd Grindavíkurkirkju og
í kirkjukórnum. Hún æfði ýmsa
barnakóra í Grindavík og sá um
tónlistarkennslu í grunnskólanum
þar til tónlistarskólinn var stofn-
aður. Margrét var einnig heiðurs-
félagi í Ungmenna-
félaginu Samhygð í
Gaulverjabæjarhreppi.
Margrét hafði alla tíð
unun af tónlist og söng
og lærði m.a. hjá Maríu
Markan, Sigurði De-
metz Franzsyni, Guð-
rúnu Á. Símonardóttur
og John Speight. Vorið
2010 kom út hljóm-
d i s k u r i n n „ L ö g i n
hennar mömmu“, með
lögum og textum sem
Margrét hafði samið í Keflavík og
Grindavík.
Margrét lætur eftir sig eiginmann,
Pál H. Pálsson útgerðarmann, frá
Þingeyri við Dýrafjörð, og sex börn,
Margréti, Pál Jóhann, Pétur Haf-
stein, Kristínu Elísabetu, Svanhvíti
Daðeyju og Sólnýju Ingibjörgu.
Útförin verður gerð frá Grinda-
víkurkirkju föstudaginn 10.
febrúar 2012 klukkan tvö.
Margrét Sighvatsdóttir látin
Var boðið mælaborð á 203.000 kr.
á Íslandi - kostaði 31.000 á netinu
F.v. Ómar Sveinsson frá Isavia, Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia, Sigrún
Árnadóttir, bæjarstjóri og Ólafur Þór Ólafsson, forseti bæjarstjórnar Sand-
gerðis. VF-myndir/pket.
Samkomulag um slökkviliðs-
mál á Keflavíkurflugvelli
n Auglýsingadeild í síma 421 0001
n Fréttadeild í síma 421 0002
n Afgreiðsla í síma 421 0000