Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.02.2012, Blaðsíða 6

Víkurfréttir - 09.02.2012, Blaðsíða 6
6 FIMMTUdagUrInn 9. FEBrúar 2012 • VÍKURFRÉTTIR Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið gunnar@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta. Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, sími 421 0000 Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is Gunnar Einarsson, sími 421 0001, gunnar@vf.is Víkurfréttir ehf. Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0011, thorgunnur@vf.is Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0011 Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0009, rut@vf.is og Aldís Jónsdóttir, sími 421 0010, aldis@vf.is Landsprent 9000 eintök. Íslandspóstur www.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is Útgefandi: Afgreiðsla og ritstjórn: Ritstjóri og ábm.: Fréttastjóri: Blaðamaður: Auglýsingadeild: Umbrot og hönnun: Auglýsingagerð: Afgreiðsla: Prentvinnsla: Upplag: Dreifing: Dagleg stafræn útgáfa: Leiðari Víkurfrétta PÁLL KETILSSON, RITSTJÓRI No k k u r h u n d r u ð grunnskólanem- endur mættu í Stapann í vikunni til að kynna sér hin ýmsu störf sem eru í boði hér á Suðurnesjum og reyndar víðar líka. Verkefnastjórar úr stýrihópi um eflingu menntunar stóðu fyrir kynningunni og yfir 80 einstaklingar úr hinum ýmsu starfsgreinum kynntu störf sín. Þarna var hægt að kynna sér t.d. störf þyrluflugmanna, flugfreyja, blikksmiða, viðskiptafræðinga, fisktæknifræðinga og ökukennara, svo fátt eitt sé nefnt. Krakkarnir gengu á milli borða og spurðust fyrir og fengu upplýsingar um hin margvíslegu störf í samfélaginu. Það var ótrúlega skemmtilegt að fylgjast með áhuga unga fólksins og verkefnastjórarnir voru í skýjunum með viðbrögðin og mætingu nemendanna sem og frábæra þátttöku fulltrúa atvinnulífsins. Þeir voru sammála um það að það vantaði meiri starfskynningu í hinar ýmsu kennslugreinar, þ.e. að nemendur færu meira og ynnu í einhvern tíma við þá grein sem þeir væru að læra, á námstímanum. Miðað við hve vel þetta framtak gekk í fyrsta skipti hlýtur að vera mark- miðið að hafa þetta að minnsta kosti árlegan viðburð. Það er skemmtileg tilviljun að þessi starfskynningardagur hafi verið á sama degi og nýtt gagnaver var formlega gangsett á Ásbrú. Gagnaverið er fyrsta stóra atvinnuverkefnið sem fer í gang hér á Suðurnesjum eftir kreppu, eitt af mörgum á löngum lista yfir áhugaverð verkefni sem bíða eftir að komast í gang hér á svæðinu. Þetta gagnaver er einnig fyrsti áfangi í uppbyggingu á alþjóðlegri mið- stöð gagnavera á Ásbrú sem verða knúin af endur- nýjanlegum orkugjafa. Það er gaman til þess að vita að loksins var rokið, vindkæling okkar Suðurnesjamanna að arði því hún sparar mikið magn af orku í starfsemi gagnaversins. Vonandi er dagurinn í gær, öflug starfskynning og formleg opnun græns gagnavers aðeins upphafið að nýjum og betri tíma fyrir okkur Suðurnesjamenn í atvinnumálum. vf.is Ekki er vika án Víkurfrétta - sem koma næst út fimmtudaginn 16. febrúar 2012. Bókið auglýsingar í síma 421 0001 eða gunnar@vf.is Upphaf nýrri og betri tíma Nám í skóla – nám á vinnustað Fisktækniskóli Suðurnesja býður upp á fjölbreytt nám á sviði veiða (hásetanám), fiskvinnslu og fisk- eldis á framhaldsskólastigi. Skól- inn er í eigu aðila vinnumarkaðar, fræðsluaðila og sveitarfélaga á Suðurnesjum og starfar samkvæmt sérstökum samningi við Mennta- málaráðuneytið. Námið er hagnýtt tveggja ára nám þar sem önnur hver önn er í skóla og hin fer fram í formi vinnustaðanáms þar sem nemendum er fylgt mjög vel eftir og þeir læra störfin af reynslu- miklu fólki sem er starfandi úti í greininni. Þessi blanda verklegs og bóklegs náms hentar mörgum vel og teljum við það mikilvægt að bjóða nemendum okkar upp á þann kost. Jafnframt fá þeir tæki- færi til að mynda góðar tengingar út í atvinnulífið á meðan á náminu stendur auk þess að búa sig undir frekara nám. Á fiskvinnslubraut læra nemendur um meðferð fisks, gæðakerfi, um vélar (t.d. Baader), tæki og búnað sem notaður er til að hámarka gæði og verðmæti fisks. Á sjómennsku- braut læra nemendur vélavörslu, aflameðferð, veiðitækni og sjó- vinnu ásamt ýmsu fleiru. Á fisk- eldisbraut sérhæfa nemendur sig til almennra starfa í fiskeldi og búa sig undir frekara nám hérlendis eða við samstarfsskóla okkar, m.a. í Noregi. Í undirbúningi er sérhæft nám fyrir gæðastörf (3ja ár) og áformað er að bjóða upp á sérstakt nám fyrir sjókokka. Framhaldsskólapróf - góður valkostur fyrir þá sem lokið hafa grunnskóla Framhaldsskólapróf er góður val- kostur fyrir þá sem hafa lokið grunnskóla og nýtist sem undir- búningur fyrir frekara nám, s.s. í skipstjórn og vélstjórn eða á bók- legum brautum. Allir nemendur taka smáskipapróf (>12m), læra vélstjórn (750kw) og eiga kosta á að taka kjarnafögin (íslensku, ensku, stærðfræði) hjá Fjölbrautaskóla Suðurnesja á því stigi sem hentar hverjum og einum. Nemendur Fisktækniskólans njóta þjónustu Fjölbrautaskóla Suðurnesja jafnt á við aðra nemendur og geta verið meðlimir í nemendafélaginu ef þeir óska svo, en njóta að auki þess nána samfélags og sterku félagsheildar sem Fisktækniskólinn leggur mikla áherslu á. Náminu lýkur með framhaldsskólaprófi, en faggreinar nýtast einnig þeim sem hyggja á langskólanám s.s. sjávarútvegsnám á háskólastigi. Skólinn er lítill og gefur starfs- mönnum og kennurum kost á að mynda góð tengsl við nemendur og aðstoða þá eins og kostur er við námið. Eftirfylgni er mikil og áhersla lögð á góðan félagsanda í skólanum. Kennslan er skipulögð með þeim hætti að mæta þörfum hvers og eins og lögð áhersla á þægilegt vinnuumhverfi þar sem hver og einn getur náð hámarks árangri. Góður undirbúningur fyrir þá sem vilja komast í góð störf í vaxandi atvinnugrein Þá er skólinn í afar góðum tengslum við atvinnulífið og stofn- anir innan sjávarútvegs og rann- sókna. Nemendur skólans fá strax á annarri önn vinnustaðaþjálfun í samræmi við áhuga og áherslusvið s.s. í vinnslu og á sjó, í fiskeldis- fyrirtækjum, rannsóknarstofum og fiskmörkuðum, á skipum Land- helgisgæslunnar og Hafrann- sóknarstofnunar svo eitthvað sé nefnt. Fjöldi nemenda okkar hefur fengið vel launaða vinnu í sinni grein að námi loknu og aðrir farið til frekara náms. Það eru mörg spennandi tæki- færi í sjávarútveginum um þessar mundir. Fiskur er orðinn lúxusvara og mikil áhersla er lögð á gæði og þekkingu starfsmanna til fram- leiðslunnar, hvort sem er á sjó eða landi. Menntun í þessu fagi gefur möguleika á störfum sem gefa vel af sér bæði í landi og á sjó. Fisktækniskólinn býður einnig upp á nám í netagerð sem er löggild iðngrein Skólinn er sá eini á landinu sem býður upp á nám í netagerð (veiða- færatækni). Námið er löggild iðn- grein og skólinn sér um kennslu í faggreinum og verklegum greinum, en nemendur fara síðan á samning hjá meistara. Almennar bóklegar greinar brautarinnar geta nem- endur tekið í Fjölbrautaskóla Suður- nesja (sem er samstarfsskólinn), öðrum framhaldsskólum, fjarnámi eða viðurkenndum símenntunar- miðstöðvum s.s. hjá MSS. Valkostur fyrir þá sem eldri eru og hafa reynslu af vinnu- markaði – mat á raunfærni Nemendur með mikla starfsreynslu geta stytt nám sitt umtalsvert og fengið reynslu sína metna til full- gildra eininga. Við leggjum áherslu á að mæta nemendum þar sem þeir eru og skipuleggjum námið við hæfi hvers og eins. Reynslu af sjó- mennsku og störfum í fiskvinnslu má meta sem allt að helmingi grunnnámsins, sem samsvarar einu ári í framhaldsskólanámi. Kennsla faggreina er skipulögð til að mæta þörfum fullorðinna. Spennandi valkostur í haust - Akstur til og frá skóla Menntamálaráðuneytið hefur heimilað að skólinn geti innritað nemendur sem ljúka grunnskóla nú í haust og gert er ráð fyrir því að allar bóklegar greinar, fyrir þá sem þess óska, fari fram í Fjölbrauta- skóla Suðurnesja fyrir hádegi á haustönninni. Nemendur utan Reykjanesbæjar fara þannig með skólabílnum með öðrum nem- endum FS og njóta þjónustu þar í samræmi við óskir og þarfir auk þess sem Fisktækniskólinn heldur sérstaklega utan um allan hópinn. Verklegar greinar og fagbóklegt nám fer síðan fram í Grindavík og verða nemendur keyrðir frá FS um hádegi. Nemendur sem hafa lokið grunnáföngum í íslensku, ensku og stærðfræði eða vilja frekar byrja á faggreinum og í verklegu námi og taka almennar bóklegar greinar síðar mæta til kennslu í Grindavík og geta setið með í skólabílnum. Kynning í grunnskólum Í undirbúningi er kynning á þessu nýja námsframboði í öllum grunn- skólum á Suðurnesjum og stefnir skólinn á að kynna námið fyrir bæði kennurum, nemendum og foreldrum. Fisktækniskólinn tekur þátt í kynningu á námi fyrir grunn- skóla á Suðurnesjum í mars nk., en starfsfólki skólans er ljúft að svara öllum spurningum varðandi alla þætti námsins og þarf þá einungis að hafa samband við skrifstofu skólans (sími 412 5965) eða senda póst á olijon@fss.is og nannab- ara@mss.is. Ýmsar upplýsingar má einnig finna á heimasíðu hans www.fiskt.is. Innritun í skólann í haust fer fram samhliða almennri innritun í framhaldsskóla nú á vordögum, en áhugasamir eru hvattir til að hafa einnig samband við skólann og skrá sig þar sem ekki er gert ráð fyrir því að hefja nám með fleiri en 12-14 nemendur á haustönn. Menntamálaráðuneytið hefur heimilað að skólinn geti innritað nemendur sem ljúka grunn- skóla nú í haust og gert er ráð fyrir því að allar bóklegar greinar, fyrir þá sem þess óska, fari fram í Fjölbrautaskóla Suðurnesja fyrir hádegi á haustönninni. FISKTÆKNINÁM – nýr kostur í framhaldsmenntun fyrir ungt fólk að loknum grunnskóla á Suðurnesjum

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.