Víkurfréttir - 09.02.2012, Side 6
6 FIMMTUdagUrInn 9. FEBrúar 2012 • VÍKURFRÉTTIR
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið gunnar@vf.is. Auglýsingar
berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á
fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is.
Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur
frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur
auglýsinga fram um einn sólarhring.
Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar
birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu
greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent
efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum
Víkurfrétta.
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, sími 421 0000
Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is
Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is
Gunnar Einarsson, sími 421 0001, gunnar@vf.is
Víkurfréttir ehf.
Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0011, thorgunnur@vf.is
Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0011
Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0009, rut@vf.is
og Aldís Jónsdóttir, sími 421 0010, aldis@vf.is
Landsprent
9000 eintök.
Íslandspóstur
www.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is
Útgefandi:
Afgreiðsla og ritstjórn:
Ritstjóri og ábm.:
Fréttastjóri:
Blaðamaður:
Auglýsingadeild:
Umbrot og hönnun:
Auglýsingagerð:
Afgreiðsla:
Prentvinnsla:
Upplag:
Dreifing:
Dagleg stafræn útgáfa:
Leiðari Víkurfrétta
PÁLL KETILSSON, RITSTJÓRI
No k k u r h u n d r u ð grunnskólanem-
endur mættu í Stapann
í vikunni til að kynna sér
hin ýmsu störf sem eru í boði
hér á Suðurnesjum og reyndar
víðar líka. Verkefnastjórar úr
stýrihópi um eflingu menntunar
stóðu fyrir kynningunni og yfir 80 einstaklingar úr
hinum ýmsu starfsgreinum kynntu störf sín. Þarna var
hægt að kynna sér t.d. störf þyrluflugmanna, flugfreyja,
blikksmiða, viðskiptafræðinga, fisktæknifræðinga og
ökukennara, svo fátt eitt sé nefnt. Krakkarnir gengu á
milli borða og spurðust fyrir og fengu upplýsingar um
hin margvíslegu störf í samfélaginu. Það var ótrúlega
skemmtilegt að fylgjast með áhuga unga fólksins og
verkefnastjórarnir voru í skýjunum með viðbrögðin
og mætingu nemendanna sem og frábæra þátttöku
fulltrúa atvinnulífsins. Þeir voru sammála um það
að það vantaði meiri starfskynningu í hinar ýmsu
kennslugreinar, þ.e. að nemendur færu meira og ynnu
í einhvern tíma við þá grein sem þeir væru að læra, á
námstímanum. Miðað við hve vel þetta framtak gekk í
fyrsta skipti hlýtur að vera mark-
miðið að hafa þetta að minnsta
kosti árlegan viðburð.
Það er skemmtileg tilviljun að
þessi starfskynningardagur hafi
verið á sama degi og nýtt gagnaver
var formlega gangsett á Ásbrú.
Gagnaverið er fyrsta stóra atvinnuverkefnið sem fer í
gang hér á Suðurnesjum eftir kreppu, eitt af mörgum
á löngum lista yfir áhugaverð verkefni sem bíða eftir
að komast í gang hér á svæðinu. Þetta gagnaver er
einnig fyrsti áfangi í uppbyggingu á alþjóðlegri mið-
stöð gagnavera á Ásbrú sem verða knúin af endur-
nýjanlegum orkugjafa. Það er gaman til þess að vita að
loksins var rokið, vindkæling okkar Suðurnesjamanna
að arði því hún sparar mikið magn af orku í starfsemi
gagnaversins.
Vonandi er dagurinn í gær, öflug starfskynning og
formleg opnun græns gagnavers aðeins upphafið að
nýjum og betri tíma fyrir okkur Suðurnesjamenn í
atvinnumálum.
vf.is
Ekki er vika án Víkurfrétta - sem koma næst út fimmtudaginn 16. febrúar 2012. Bókið auglýsingar í síma 421 0001 eða gunnar@vf.is
Upphaf nýrri og betri tíma
Nám í skóla
– nám á vinnustað
Fisktækniskóli Suðurnesja býður
upp á fjölbreytt nám á sviði veiða
(hásetanám), fiskvinnslu og fisk-
eldis á framhaldsskólastigi. Skól-
inn er í eigu aðila vinnumarkaðar,
fræðsluaðila og sveitarfélaga á
Suðurnesjum og starfar samkvæmt
sérstökum samningi við Mennta-
málaráðuneytið. Námið er hagnýtt
tveggja ára nám þar sem önnur
hver önn er í skóla og hin fer fram
í formi vinnustaðanáms þar sem
nemendum er fylgt mjög vel eftir
og þeir læra störfin af reynslu-
miklu fólki sem er starfandi úti í
greininni. Þessi blanda verklegs
og bóklegs náms hentar mörgum
vel og teljum við það mikilvægt
að bjóða nemendum okkar upp á
þann kost. Jafnframt fá þeir tæki-
færi til að mynda góðar tengingar
út í atvinnulífið á meðan á náminu
stendur auk þess að búa sig undir
frekara nám.
Á fiskvinnslubraut læra nemendur
um meðferð fisks, gæðakerfi, um
vélar (t.d. Baader), tæki og búnað
sem notaður er til að hámarka gæði
og verðmæti fisks. Á sjómennsku-
braut læra nemendur vélavörslu,
aflameðferð, veiðitækni og sjó-
vinnu ásamt ýmsu fleiru. Á fisk-
eldisbraut sérhæfa nemendur sig
til almennra starfa í fiskeldi og búa
sig undir frekara nám hérlendis
eða við samstarfsskóla okkar, m.a.
í Noregi. Í undirbúningi er sérhæft
nám fyrir gæðastörf (3ja ár) og
áformað er að bjóða upp á sérstakt
nám fyrir sjókokka.
Framhaldsskólapróf - góður
valkostur fyrir þá sem lokið
hafa grunnskóla
Framhaldsskólapróf er góður val-
kostur fyrir þá sem hafa lokið
grunnskóla og nýtist sem undir-
búningur fyrir frekara nám, s.s. í
skipstjórn og vélstjórn eða á bók-
legum brautum. Allir nemendur
taka smáskipapróf (>12m), læra
vélstjórn (750kw) og eiga kosta á að
taka kjarnafögin (íslensku, ensku,
stærðfræði) hjá Fjölbrautaskóla
Suðurnesja á því stigi sem hentar
hverjum og einum. Nemendur
Fisktækniskólans njóta þjónustu
Fjölbrautaskóla Suðurnesja jafnt á
við aðra nemendur og geta verið
meðlimir í nemendafélaginu ef þeir
óska svo, en njóta að auki þess nána
samfélags og sterku félagsheildar
sem Fisktækniskólinn leggur mikla
áherslu á. Náminu lýkur með
framhaldsskólaprófi, en faggreinar
nýtast einnig þeim sem hyggja á
langskólanám s.s. sjávarútvegsnám
á háskólastigi.
Skólinn er lítill og gefur starfs-
mönnum og kennurum kost á að
mynda góð tengsl við nemendur
og aðstoða þá eins og kostur er
við námið. Eftirfylgni er mikil og
áhersla lögð á góðan félagsanda í
skólanum. Kennslan er skipulögð
með þeim hætti að mæta þörfum
hvers og eins og lögð áhersla á
þægilegt vinnuumhverfi þar sem
hver og einn getur náð hámarks
árangri.
Góður undirbúningur fyrir þá
sem vilja komast í góð störf í
vaxandi atvinnugrein
Þá er skólinn í afar góðum
tengslum við atvinnulífið og stofn-
anir innan sjávarútvegs og rann-
sókna. Nemendur skólans fá strax
á annarri önn vinnustaðaþjálfun í
samræmi við áhuga og áherslusvið
s.s. í vinnslu og á sjó, í fiskeldis-
fyrirtækjum, rannsóknarstofum og
fiskmörkuðum, á skipum Land-
helgisgæslunnar og Hafrann-
sóknarstofnunar svo eitthvað sé
nefnt. Fjöldi nemenda okkar hefur
fengið vel launaða vinnu í sinni
grein að námi loknu og aðrir farið
til frekara náms.
Það eru mörg spennandi tæki-
færi í sjávarútveginum um þessar
mundir. Fiskur er orðinn lúxusvara
og mikil áhersla er lögð á gæði og
þekkingu starfsmanna til fram-
leiðslunnar, hvort sem er á sjó eða
landi. Menntun í þessu fagi gefur
möguleika á störfum sem gefa vel
af sér bæði í landi og á sjó.
Fisktækniskólinn býður
einnig upp á nám í netagerð
sem er löggild iðngrein
Skólinn er sá eini á landinu sem
býður upp á nám í netagerð (veiða-
færatækni). Námið er löggild iðn-
grein og skólinn sér um kennslu í
faggreinum og verklegum greinum,
en nemendur fara síðan á samning
hjá meistara. Almennar bóklegar
greinar brautarinnar geta nem-
endur tekið í Fjölbrautaskóla Suður-
nesja (sem er samstarfsskólinn),
öðrum framhaldsskólum, fjarnámi
eða viðurkenndum símenntunar-
miðstöðvum s.s. hjá MSS.
Valkostur fyrir þá sem eldri
eru og hafa reynslu af vinnu-
markaði – mat á raunfærni
Nemendur með mikla starfsreynslu
geta stytt nám sitt umtalsvert og
fengið reynslu sína metna til full-
gildra eininga. Við leggjum áherslu
á að mæta nemendum þar sem þeir
eru og skipuleggjum námið við
hæfi hvers og eins. Reynslu af sjó-
mennsku og störfum í fiskvinnslu
má meta sem allt að helmingi
grunnnámsins, sem samsvarar einu
ári í framhaldsskólanámi. Kennsla
faggreina er skipulögð til að mæta
þörfum fullorðinna.
Spennandi valkostur í haust
- Akstur til og frá skóla
Menntamálaráðuneytið hefur
heimilað að skólinn geti innritað
nemendur sem ljúka grunnskóla
nú í haust og gert er ráð fyrir því að
allar bóklegar greinar, fyrir þá sem
þess óska, fari fram í Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja fyrir hádegi á
haustönninni. Nemendur utan
Reykjanesbæjar fara þannig með
skólabílnum með öðrum nem-
endum FS og njóta þjónustu þar
í samræmi við óskir og þarfir auk
þess sem Fisktækniskólinn heldur
sérstaklega utan um allan hópinn.
Verklegar greinar og fagbóklegt
nám fer síðan fram í Grindavík og
verða nemendur keyrðir frá FS um
hádegi. Nemendur sem hafa lokið
grunnáföngum í íslensku, ensku
og stærðfræði eða vilja frekar byrja
á faggreinum og í verklegu námi
og taka almennar bóklegar greinar
síðar mæta til kennslu í Grindavík
og geta setið með í skólabílnum.
Kynning í grunnskólum
Í undirbúningi er kynning á þessu
nýja námsframboði í öllum grunn-
skólum á Suðurnesjum og stefnir
skólinn á að kynna námið fyrir
bæði kennurum, nemendum og
foreldrum. Fisktækniskólinn tekur
þátt í kynningu á námi fyrir grunn-
skóla á Suðurnesjum í mars nk., en
starfsfólki skólans er ljúft að svara
öllum spurningum varðandi alla
þætti námsins og þarf þá einungis
að hafa samband við skrifstofu
skólans (sími 412 5965) eða senda
póst á olijon@fss.is og nannab-
ara@mss.is. Ýmsar upplýsingar
má einnig finna á heimasíðu hans
www.fiskt.is.
Innritun í skólann í haust fer fram
samhliða almennri innritun í
framhaldsskóla nú á vordögum,
en áhugasamir eru hvattir til að
hafa einnig samband við skólann
og skrá sig þar sem ekki er gert ráð
fyrir því að hefja nám með fleiri en
12-14 nemendur á haustönn.
Menntamálaráðuneytið hefur heimilað að skólinn geti innritað nemendur sem ljúka grunn-
skóla nú í haust og gert er ráð fyrir því að allar bóklegar greinar, fyrir þá sem þess
óska, fari fram í Fjölbrautaskóla Suðurnesja fyrir hádegi á haustönninni.
FISKTÆKNINÁM – nýr kostur í framhaldsmenntun
fyrir ungt fólk að loknum grunnskóla á Suðurnesjum