Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.02.2012, Blaðsíða 12

Víkurfréttir - 09.02.2012, Blaðsíða 12
12 FIMMTUdagUrInn 9. FEBrúar 2012 • VÍKURFRÉTTIR Dína María er 23ja ára Grind-víkingur sem er að gera það gott á vesturströnd Banda- ríkjanna um þessar mundir. Ekki nóg með að vera í fullri vinnu sem innkaupastjóri fyrir framleiðslu- fyrirtæki, heldur stundar hún einnig fullt mastersnám. Dína flutti til Bandaríkjanna í ágúst 2010 þar sem hún hafði fengið at- vinnutilboð frá fyrirtækinu sem hún vinnur fyrir í dag, RJR Poly- mers Inc. „Ég hafði farið í skipt- inám til Spánar þegar ég stundaði nám við Háskólann í Reykjavík og myndað tengsl þar. Eftir út- skrift úr HR vorið 2010 sendi ég ferilskrána til aðilans í Banda- ríkjunum sem ég hafði myndað tengsl við, fékk símaviðtal við fyrirtækið og í kjölfarið atvinnu- tilboð,“ segir Dína María um upphafið að Ameríkuævintýrinu. Dína byrjaði sem greiningaraðili í fjármáladeild fyrirtækisins en fékk svo stöðuhækkun upp í stöð- una sem hún gegnir í dag. Í mastersnámi samhliða fullri vinnu Meðfram vinnunni stundar Dína fullt nám við San Jose State Univer- sity þar sem hún stefnir á að klára mastersgráðu í iðnaðar- og kerfis- verkfræði. Námið finnst henni skemmtilegt en krefjandi og hún hefur nóg að gera þar sem vinnu- vikan er 40 tímar og hún er í fimm tímum í skólanum. „Þetta þýðir að ég er að frá sex á morgnana til tíu á kvöldin. Næsta önn verður vonandi aðeins rólegri þar sem ég ætla að taka færri áfanga en taka þá frekar einn áfanga um sumarið. Þá verður bóklega náminu lokið og aðeins meistaraverkefnið eftir sem ég ætla að vinna í samvinnu við fyrirtækið mitt.“ Stundar einnig hollt líferni og hreyfingu En að stunda nám og vinna fulla vinnu er ekki nóg fyrir þennan grindvíska dugnaðarfork en hún stundar líkamsrækt allt að fimm sinnum í viku. Í samfélaginu þar sem Dína býr er mikil menning fyrir því að stunda hollt líferni og hreyfir fólk sig almennt mikið. Dína hefur tekið þátt í þríþraut og hefur hlaupið tvö hálfmaraþon síðan hún flutti til lands skyndi- bitastaðanna. „Auðvitað sér maður mikið af skyndibitastöðum en þetta er þó einn af þeim stöðum þar sem hlutfall feitra er lægra en vanalega gengur og gerist í Banda- ríkjunum.“ Afslappað fólk, góður matur og milt veður Dína kann vel við fólkið á vestur- ströndinni sem hún segir afslapp- aðra en á austurströndinni sem hún hefur heimsótt. Einnig hefur hún ferðast um Suður-Kaliforníu og heimsótt borgir eins og Arizona og Seattle. Að auki líkar Dínu vel Grindavíkurmærin Dína María gerir það gott í USA Stundar mastersnám samhliða fullri vinnu Við þurfum að minna okkur á það að þeir sem eru með gott sjálfstraust eru ekki góðir í öllu - heldur nýta þeir sér styrkleika sína, sætta sig við það sem þeir geta ekki breytt en stefna ótrauðir að því að bæta það sem þeir geta bætt. Sjálfstraust er alltaf í nútíð og því getur verið kippt undan manni við ólíklegustu aðstæður og því skiptir máli að æfa sig aftur og aftur í því hvernig maður nær í öryggið sitt, hvernig maður bregst við þegar aðstæður breytast snögglega og maður upplifir sig berskjaldaðan gagn- vart umhverfinu. Við könnumst líklega flest við það að stundum viljum við bara falla inn í umhverfið og ekki láta bera á okkur - láta eins og við séum ósýni- leg. Þá grípa örlögin stundum í taumana - þröngva manni í sviðsljósið óundirbúnum og þá reynir á, að bogna eða brosa! Þetta gerðist fyrir u.þ.b. fimm árum en þá var yngri sonur minn 15 ára og við fórum saman í verslun í Kringlunni til að finna handa honum buxur. Áður en við förum þangað inn segir þessi elska ,,æ, mamma, ekki fara að spjalla geðveikt við alla í búðinni, eins og þú gerir stundum“.......Það kom mér gjör- samlega í opna skjöldu að sonur minn upplifði mig sem svona ,,svaka“ spjallara og ég hugsaði með mér að það væri eins gott að hann fór ekki með ömmu minni í búðir í gamla daga því hún spjallaði ekki bara heldur tók stjórnina. Ef henni fannst að eitthvað mætti betur fara þá benti hún ákveðin á það og af- greiðslufólkið fékk tiltal ,,heyrðu ungi maður.......unga kona........ég get nú bara látið þig vita að svona framkoma er hvorki þér né versluninni til sóma“. Hún stoppaði strætó á ferð, lét hleypa sér inn eða út eftir hentugleika og skammaði bílstjórana ef þeir keyrðu óvarlega. amma mín var stórkostleg kona en þegar ég var unglingur fannst mér hún hafa full miklar skoðanir á allt og öllu og þar sem sonur minn var á viðkvæmum aldri ákvað ég að halda mig óvenju mikið til hlés í þessari búðarferð. Þannig breytti ég mér umsvifalaust í innhverfu týpuna sem læddist um búðina og lét soninn stjórna ferðinni. Síðan ákvað hann að fara að máta og við höfðum þann háttinn á að hann fór inn í búningsklefann og ég fór og náði í föt fyrir hann......sótti, skilaði, sótti, skilaði...allt í innhverfa gírnum. En svo dró til tíðinda - sonur minn er inni í klefanum að máta buxur. Klefinn lítill – sonur minn tæplega 190 cm og plássið til að athafna sig ekki mikið. Ég ákvað því að vera tilbúin með buxurnar fyrir utan klefann því hitinn þar inni var í stíl við stærðina og minn maður orðinn pirraður að finna ekki það sem hann leitaði að. En þar sem ég stend og ætla að rykkja einum buxunum af herðatrénu fæ ég þetta svakalega högg í gagnaugað, svo mikið að ég öskraði hátt upp yfir mig svo fólki var brugðið og allir í búðinni frusu og horfðu á mig. Buxnatréið var á gormi og hafði verið þröngvað inn í buxnastrenginn og skaust svona út og í andlitið á mér þegar ég losaði það. afgreiðslufólkið kom hlaupandi og ég stóð þarna með æðaslátt í eldrauðu gagnauganu sem bólgnaði eins og í teiknimyndunum. Frá þessari stundu snerist allt í búðinni um mig, leitað var að klökum til að kæla, eða átti kannski að setja kaldan hníf á kúluna til að hún stækkaði ekki meira, þurfti ég að setjast, leggjast eða fara upp á slysó! Við leystum þetta með kaldri áldollu af Sprite þar sem enginn var klakinn og slysó var óþarfi. Skaðinn var minni en óttast var um í fyrstu – konan var í lagi! Sonur minn hafði auðvitað áhyggjur af móður sinni en óþægindin og athyglin sem þetta vakti, náði alveg nýjum hæðum og tók yfir allt annað. Hann flýtti sér að velja einar buxur og sagði ,,mamma, við skulum bara drífa okkur heim“. Þegar uppi var staðið var roði hans meiri en minn en þegar ég var búin að jafna mig fékk ég nett hláturskast í framsætinu á bílnum - sonur minn starði fram fyrir sig og hristi hausinn. Sonur minn getur hlegið af þessu atviki með mér í dag enda hefur hann full- orðnast mikið á þessum árum og ekki eins viðkvæmur fyrir því sem öðrum finnst. Með aldrinum áttum við okkur flest á því að það borgar sig ekki að taka lífið of alvarlega og mikilvægt að hafa húmor fyrir sjálfum sér og aðstæðum. Við komum öll til með að gera okkur að fíflum eða opinbera ófullkomleika okkar á einn eða annan hátt einhvern tímann á ævinni og í mínu tilviki þá gerist það bara ansi oft. En það er bara allt í lagi því sá sem leitar eftir fullkomnun bíður sífellt ósigur og þroskar síður með sér gott sjálfstraust og jákvæða sjálfsmynd. Lífið er stutt - njótum þess alls, reynum að sjá spaugilegu hliðarnar á erfiðum og neyðarlegum aðstæðum - en ég bið ykkur samt að fara varlega næst þegar þið farið að versla buxur. Lífið er ljúft, ég kann það að meta því þrátt fyrir allt er svo gott að geta notið þess alls er guð okkur gaf jafnt sólskin í heiði sem ólgandi haf lærum lífsins veginn að feta! Þangað til næst - gangi þér vel Anna Lóa Barin af buxnaherðatré! vf.is Auglýsingasíminn er 421 0001 Dína ásamt Suhani vinkonu sinni á góðri stundu. Hið fræga fangelsi, Alcatraz, er í næsta nágrenni sem og Golden Gate-brúin sem er á myndinni að ofan.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.