Víkurfréttir - 09.02.2012, Page 12
12 FIMMTUdagUrInn 9. FEBrúar 2012 • VÍKURFRÉTTIR
Dína María er 23ja ára Grind-víkingur sem er að gera
það gott á vesturströnd Banda-
ríkjanna um þessar mundir. Ekki
nóg með að vera í fullri vinnu sem
innkaupastjóri fyrir framleiðslu-
fyrirtæki, heldur stundar hún
einnig fullt mastersnám. Dína
flutti til Bandaríkjanna í ágúst
2010 þar sem hún hafði fengið at-
vinnutilboð frá fyrirtækinu sem
hún vinnur fyrir í dag, RJR Poly-
mers Inc. „Ég hafði farið í skipt-
inám til Spánar þegar ég stundaði
nám við Háskólann í Reykjavík
og myndað tengsl þar. Eftir út-
skrift úr HR vorið 2010 sendi ég
ferilskrána til aðilans í Banda-
ríkjunum sem ég hafði myndað
tengsl við, fékk símaviðtal við
fyrirtækið og í kjölfarið atvinnu-
tilboð,“ segir Dína María um
upphafið að Ameríkuævintýrinu.
Dína byrjaði sem greiningaraðili
í fjármáladeild fyrirtækisins en
fékk svo stöðuhækkun upp í stöð-
una sem hún gegnir í dag.
Í mastersnámi samhliða
fullri vinnu
Meðfram vinnunni stundar Dína
fullt nám við San Jose State Univer-
sity þar sem hún stefnir á að klára
mastersgráðu í iðnaðar- og kerfis-
verkfræði. Námið finnst henni
skemmtilegt en krefjandi og hún
hefur nóg að gera þar sem vinnu-
vikan er 40 tímar og hún er í fimm
tímum í skólanum. „Þetta þýðir
að ég er að frá sex á morgnana til
tíu á kvöldin. Næsta önn verður
vonandi aðeins rólegri þar sem ég
ætla að taka færri áfanga en taka
þá frekar einn áfanga um sumarið.
Þá verður bóklega náminu lokið og
aðeins meistaraverkefnið eftir sem
ég ætla að vinna í samvinnu við
fyrirtækið mitt.“
Stundar einnig hollt
líferni og hreyfingu
En að stunda nám og vinna fulla
vinnu er ekki nóg fyrir þennan
grindvíska dugnaðarfork en hún
stundar líkamsrækt allt að fimm
sinnum í viku. Í samfélaginu þar
sem Dína býr er mikil menning
fyrir því að stunda hollt líferni og
hreyfir fólk sig almennt mikið.
Dína hefur tekið þátt í þríþraut
og hefur hlaupið tvö hálfmaraþon
síðan hún flutti til lands skyndi-
bitastaðanna. „Auðvitað sér maður
mikið af skyndibitastöðum en
þetta er þó einn af þeim stöðum
þar sem hlutfall feitra er lægra en
vanalega gengur og gerist í Banda-
ríkjunum.“
Afslappað fólk, góður
matur og milt veður
Dína kann vel við fólkið á vestur-
ströndinni sem hún segir afslapp-
aðra en á austurströndinni sem
hún hefur heimsótt. Einnig hefur
hún ferðast um Suður-Kaliforníu
og heimsótt borgir eins og Arizona
og Seattle. Að auki líkar Dínu vel
Grindavíkurmærin Dína María gerir það gott í USA
Stundar mastersnám
samhliða fullri vinnu
Við þurfum að minna okkur á það að þeir sem eru með gott sjálfstraust
eru ekki góðir í öllu - heldur nýta þeir sér styrkleika sína, sætta sig við
það sem þeir geta ekki breytt en stefna ótrauðir að
því að bæta það sem þeir geta bætt. Sjálfstraust er
alltaf í nútíð og því getur verið kippt undan manni við
ólíklegustu aðstæður og því skiptir máli að æfa sig
aftur og aftur í því hvernig maður nær í öryggið sitt,
hvernig maður bregst við þegar aðstæður breytast
snögglega og maður upplifir sig berskjaldaðan gagn-
vart umhverfinu. Við könnumst líklega flest við það
að stundum viljum við bara falla inn í umhverfið og
ekki láta bera á okkur - láta eins og við séum ósýni-
leg. Þá grípa örlögin stundum í taumana - þröngva
manni í sviðsljósið óundirbúnum og þá reynir á, að bogna eða brosa!
Þetta gerðist fyrir u.þ.b. fimm árum en þá var yngri sonur minn 15 ára og
við fórum saman í verslun í Kringlunni til að finna handa honum buxur. Áður
en við förum þangað inn segir þessi elska ,,æ, mamma, ekki fara að spjalla
geðveikt við alla í búðinni, eins og þú gerir stundum“.......Það kom mér gjör-
samlega í opna skjöldu að sonur minn upplifði mig sem svona ,,svaka“ spjallara
og ég hugsaði með mér að það væri eins gott að hann fór ekki með ömmu
minni í búðir í gamla daga því hún spjallaði ekki bara heldur tók stjórnina. Ef
henni fannst að eitthvað mætti betur fara þá benti hún ákveðin á það og af-
greiðslufólkið fékk tiltal ,,heyrðu ungi maður.......unga kona........ég get nú bara
látið þig vita að svona framkoma er hvorki þér né versluninni til sóma“. Hún
stoppaði strætó á ferð, lét hleypa sér inn eða út eftir hentugleika og skammaði
bílstjórana ef þeir keyrðu óvarlega. amma mín var stórkostleg kona en þegar ég
var unglingur fannst mér hún hafa full miklar skoðanir á allt og öllu og þar sem
sonur minn var á viðkvæmum aldri ákvað ég að halda mig óvenju mikið til hlés
í þessari búðarferð. Þannig breytti ég mér umsvifalaust í innhverfu týpuna sem
læddist um búðina og lét soninn stjórna ferðinni. Síðan ákvað hann að fara að
máta og við höfðum þann háttinn á að hann fór inn í búningsklefann og ég fór
og náði í föt fyrir hann......sótti, skilaði, sótti, skilaði...allt í innhverfa gírnum.
En svo dró til tíðinda - sonur minn er inni í klefanum að máta buxur. Klefinn
lítill – sonur minn tæplega 190 cm og plássið til að athafna sig ekki mikið.
Ég ákvað því að vera tilbúin með buxurnar fyrir utan klefann því hitinn þar inni
var í stíl við stærðina og minn maður orðinn pirraður að finna ekki það sem
hann leitaði að. En þar sem ég stend og ætla að rykkja einum buxunum af
herðatrénu fæ ég þetta svakalega högg í gagnaugað, svo mikið að ég öskraði
hátt upp yfir mig svo fólki var brugðið og allir í búðinni frusu og horfðu á mig.
Buxnatréið var á gormi og hafði verið þröngvað inn í buxnastrenginn og skaust
svona út og í andlitið á mér þegar ég losaði það. afgreiðslufólkið kom hlaupandi
og ég stóð þarna með æðaslátt í eldrauðu gagnauganu sem bólgnaði eins og
í teiknimyndunum. Frá þessari stundu snerist allt í búðinni um mig, leitað var
að klökum til að kæla, eða átti kannski að setja kaldan hníf á kúluna til að hún
stækkaði ekki meira, þurfti ég að setjast, leggjast eða fara upp á slysó! Við
leystum þetta með kaldri áldollu af Sprite þar sem enginn var klakinn og slysó
var óþarfi. Skaðinn var minni en óttast var um í fyrstu – konan var í lagi!
Sonur minn hafði auðvitað áhyggjur af móður sinni en óþægindin og athyglin
sem þetta vakti, náði alveg nýjum hæðum og tók yfir allt annað. Hann flýtti sér
að velja einar buxur og sagði ,,mamma, við skulum bara drífa okkur heim“.
Þegar uppi var staðið var roði hans meiri en minn en þegar ég var búin að jafna
mig fékk ég nett hláturskast í framsætinu á bílnum - sonur minn starði fram
fyrir sig og hristi hausinn.
Sonur minn getur hlegið af þessu atviki með mér í dag enda hefur hann full-
orðnast mikið á þessum árum og ekki eins viðkvæmur fyrir því sem öðrum
finnst. Með aldrinum áttum við okkur flest á því að það borgar sig ekki að taka
lífið of alvarlega og mikilvægt að hafa húmor fyrir sjálfum sér og aðstæðum. Við
komum öll til með að gera okkur að fíflum eða opinbera ófullkomleika okkar á
einn eða annan hátt einhvern tímann á ævinni og í mínu tilviki þá gerist það
bara ansi oft. En það er bara allt í lagi því sá sem leitar eftir fullkomnun bíður
sífellt ósigur og þroskar síður með sér gott sjálfstraust og jákvæða sjálfsmynd.
Lífið er stutt - njótum þess alls, reynum að sjá spaugilegu hliðarnar á erfiðum
og neyðarlegum aðstæðum - en ég bið ykkur samt að fara varlega næst þegar
þið farið að versla buxur.
Lífið er ljúft, ég kann það að meta
því þrátt fyrir allt er svo gott að geta
notið þess alls er guð okkur gaf
jafnt sólskin í heiði sem ólgandi haf
lærum lífsins veginn að feta!
Þangað til næst - gangi þér vel
Anna Lóa
Barin af
buxnaherðatré!
vf.is
Auglýsingasíminn er 421 0001
Dína ásamt Suhani vinkonu sinni á góðri stundu.
Hið fræga fangelsi, Alcatraz, er í næsta nágrenni sem og Golden Gate-brúin sem er á myndinni að ofan.