Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.02.2012, Page 17

Víkurfréttir - 09.02.2012, Page 17
17VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUdagUrInn 9. FEBrúar 2012 Vilt þú spennandi og líflegt sumarstarf í ferðaþjónustu? ALP bílaleiga leitar að fólki með drifkraft og metnað til starfa á Keflavíkur- flugvelli. Leitað er eftir einstaklingum með ríka þjónustulund og áhuga á ferðaþjónustu. Umsóknir sendist á atvinna@alp.is. Umsóknarfrestur er til 26. febrúar 2012. Leitað er eftir bæði konum og körlum. Starfstími er áætlaður frá lok maí til loka ágúst. Reynsla og áhugi á ferðaþjónustu og bílum er kostur. Launakjör eru samkvæmt samningum Verslunarmannafélags Reykjavíkur og Eflingar-stéttarfélags. Alp er umboðsaðili AVIS og BUDGET á Íslandi. AVIS og BUDGET starfa á heimsvísu, með starfsstöðvar í yfir 160 löndum. AFGREIÐSLA Starfið felur í sér afgreiðslu á bílaleigubílum. Unnið er á dag-, kvöld- og næturvöktum. HELStu vERKEFnI: • Afhending og móttaka bílaleigubíla • Gerð leigusamninga • Samskipti við erlenda og innlenda viðskiptavini • Sala til erlendra og innlendra viðskiptavina ÞRIF Á BÍLuM Starfið felur í sér þrif á bílaleigubílum. Unnið er á dag-, kvöld- og næturvöktum. HELStu vERKEFnI: • Þrif á bílum – að innan og utan • Yfirferð yfir ástand bíls • Akstur ALMEnnAR HæFnISKRöFuR: • Bílpróf er skilyrði • Hreint sakavottorð • Lipurð í mannlegum samskiptum og þjónustulund • Jákvæðni, frumkvæði og dugnaður • Snyrtimennska • 20 ára lágmarksaldur ALMEnnAR HæFnISKRöFuR: • Bílpróf er skilyrði • Tungumálaþekking er skilyrði (helst 2 tungumál) • Hreint sakavottorð • Tölvuþekking • Lipurð í mannlegum samskiptum og þjónustulund • Jákvæðni, frumkvæði og dugnaður • Snyrtimennska • 20 ára lágmarksaldur EN N EM M / SI A / N M 41 36 1 Knarrarvogur 2 • 104 Reykjavík • Sími 591 4000 • avis.is Hið virta tímarit National Geographic telur Bláa lónið vera eitt af undrum veraldar. Umfjöllun blaðsins er skipt í þrjá hluta eftir því hvort staðirnir tengjast lofti, láði eða legi. National Geographic lýsir Bláa lóninu sem paradís jarðvarmans staðsett í um- hverfi sem minnir á tunglið. Magnea Guðmundsdóttir, kynn- ingarstjóri Bláa lónsins, segir til- nefninguna vera mjög þýðingar- mikla fyrir Bláa lónið. „Náttúruundrin sem eru á lista National Geographic eru einstök – hvert á sinn hátt. Margir af mark- verðustu stöðum og fyrirbærum heims eru á listanum t.d. Regn- skógarnir í Borneó, norðurljósin við Norðurheimsskautið, Sahara eyðimörkin og Kristalhellarnir í Mexíkó. Í umsögn National Geog- raphic kemur fram að öll eiga þessi undur veraldar það sameiginlegt að vera afsprengi náttúruafla og líf- fræðilegra aðstæðna. Í umsögn National Geographic kemur fram að Bláa lónið er „gjöf jarðvarmans til okkar“. Magnea segir umsögnina eiga vel við þar sem gestir Bláa lónsins njóti vellíðunar og lækningamáttar Bláa lónsins á degi hverjum. National Geographic velur Bláa lónið sem eitt af 25 undrum veraldar

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.