Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.02.2012, Qupperneq 19

Víkurfréttir - 09.02.2012, Qupperneq 19
19VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUdagUrInn 9. FEBrúar 2012 ÞEKKING ÁRANGUR REYNSLA METNAÐUR Keilir leiðandi aðili í notkun iPad í kennslu Flugakademía Keilis hefur nýtt rafrænar kennslu- bækur í iPad spjaldtölvum síðan haustið 2011. Nokkur umræða hefur verið undan- farið um skóla sem eru að taka spjaldtölvur í sína þjónustu og skipta þeim út fyrir hefðbundnar kennslubækur. Þannig hyggst Vogaskóli í Reykjavík hafa allar kennslubækur fyrir heilan árgang nemenda geymdar í Kindle. Kostir þess að nýta slíkan búnað fyrir rafrænar kennslubækur eru margvíslegir, til að mynda léttir þetta fyrirkomulag þungan burð skólabóka. Þá býður Kindle upp á að nemendur geta stækkað letur textans að þörfum, nokkuð sem ekki verður gert með hefð- bundnum kennslubókum. Fleiri aðilar hafa séð notkunarmögu- leika spjaldtölva, en Margrét Pála Ólafsdóttir hefur tilkynnt að iPad spjaldtölvur verði í fram- tíðinni nýttar í grunnskólum Hjallastefnunnar. Frá þessu er greint á vefsíðu Keilis, keilir.net. Síðastliðið haust tóku kenn- arar í Flugakademíu Keilis af skarið og afhentu nemendum í bóklegu námi til atvinnuflugs iPad á fyrsta skóladegi með kennslugögnum innanborðs. Verður þessi leið þróuð í vetur og býr Keilir sig undir að stíga alvöru skref inn á þessar brautir. „Við sjáum fyrir okkur að innan skamms verði allir nemendur Keilis með iPad eða sambærilegar spjaldtölvur. Við teljum að með því móti megi gera kennslu til muna skilvirkari og mæta þörfum hvers og eins mun betur en í hefð- bundnu formi. Spjaldtölvur opna möguleika fyrir markvissa notkun myndbanda, lifandi fyrirlestra, gagnvirks sambands nemanda og kennara, o.s.frv. Við teljum að skóli framtíðar hljóti að nýta sér þessa tækni til hagsbóta fyrir nemendur,“ segir á vef Keilis. Fróðlegt verður að fylgjast með nýtingu rafrænna kennslubóka í framtíðinni og vill Keilir vera leiðandi aðili í þeirri þróun. Rytmíska deild Tónlistarskóla Reykja-nesbæjar stendur fyrir tónleikum í Frumleikhúsinu við Vesturbraut á morgun, föstudaginn 10. febrúar kl. 20.00. Á tónleikunum koma fram tvær hljómsveitir innan rytmísku deildarinnar, sem leika rokk-, popp- og blústónlist og svo Léttsveit Tón- listarskólans. Stjórnendur á tónleikunum eru Eyþór Ingi Kolbeins og Karen Janine Sturlaugsson. Léttsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar hefur þegið boð um að halda þrenna tón- leika á næstu ISME ráðstefnu, sem haldin verður í borginni Þessaloniki á Grikklandi, dagana 15. – 20. júlí nk. ISME, eða Inter- national Society of Music Education, eru ein elstu og virtustu alþjóðasamtök um tón- listarmenntun og tónlistarkennslu í heimi. Samtökin, sem voru stofnuð árið 1953 af UNESCO, standa reglulega fyrir menntaráð- stefnum og eru þær ávallt fjölsóttar af tón- listarkennurum, skólastjórum og öðrum sem vinna að eða tengjast menntamálum í tónlist á einhvern hátt. Fáir íslenskir tónlistarskólar eða skólahópar hafa í gegnum tíðina fengið boð um tónleikahald á ISME ráðstefnu og þetta boð er því afar mikill heiður fyrir Tón- listarskólann og bæjarfélagið okkar. Efnisskrá tónleikanna í Frumleikhúsinu á morgun, verður afar fjölbreytt og spenn- andi. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. ›› vf.is ‹‹ Tónleikar á þorra ›› Tónlistarskóli Reykjanesbæjar: - í Frumleikhúsinu á morgun kl. 20:00

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.