Víkurfréttir - 06.09.2012, Blaðsíða 4
FIMMTUDAGURINN 6. SEPTEMBER 2012 • VÍKURFRÉTTIR4
Leiðari Víkurfrétta
Hilmar Bragi Bárðarson, fréttastjóri
vf.is
Ekki er vika án Víkurfrétta - sem koma næst út fimmtudaginn 13. september 2012. Bókið auglýsingar í síma 421 0001 eða fusi@vf.is
Þrettánda Ljósanóttin í Reykjanesbæ
Fjölskylduhátíðin Ljósanótt
í Reykjanesbæ hefur heldur
betur fest sig í sessi sem
ein stærsta og glæsilegasta
bæjarhátíð landsins, hátíð þar sem
bæjarbúar taka höndum saman um að
skapa menningar- og mannlífsveislu
sem dregur að tugþúsundi gesta.
Í ár voru veðurguðirnir ekki alveg í
sínu besta skapi en það kom þó ekki í
veg fyrir að um 20.000 manns kæmu
saman á hápunkti Ljósanætur til að njóta stórtónleika
og glæsilegrar flugeldasýningar á laugardagskvöld. Há-
tíðin hófst sl. fimmtudag með setningarhátíð þar sem yfir
2000 blöðrum var sleppt til himins en öll leik- og grunn-
skólabörn bæjarins tóku þátt í þeirri athöfn. Í framhaldinu
opnuðu tugir sýninga á myndlist og handverki um allan
bæ. Þá tók við hver viðburðurinn á fætur öðrum og öll
sýningarrými voru notuð og út um allt var fullt af fólki að
njóta þeirra viðburða sem boðið var uppá.
Undirritaður fylgist vel með á samfélagsmiðlum og þar bar
Ljósanótt að sjálfsögðu á góma. Yfirgnæfandi meirihluti
talar vel um hátíðina.
Hins vegar mátti einnig sjá umræðu um verðlagningu á
vöru og þjónustu. Bent var á að veit-
ingastaður seldi „venjulegan“ kaffi-
bolla á 850 krónur. Annar benti á að
bjór sem kostaði 800 kr. á fimmtu-
dagskvöldi hafi verið kominn í 1000
kr. á laugardagskvöldi og glasið hafi
minnkað í ofanálag. Þá var einnig
bent á að kjötsúpuskál hafi verið seld
á 3200 krónur. Einn benti á að sumt
af því sem selt væri á hátíðarsvæðinu
væri bara til að skapa sóðaskap eins og
spraybrúsi sem marglitum þráðum var sprautað úr. Einn
pirraðist yfir lazer-geisla sem síðan var lýst í augu gesta og
tónlistarfólks á sviðinu. Þá lýsti fólk vanþóknun á peninga-
plokki almennt. Þá mátti sjá umræðu um það að bíla- og
mótorhjólalestin sem fer um Hafnargötuna og út í Gróf
væri í raun alltof löng. Þá passaði ekki að setja öll þessi öku-
tæki í halarófu inn á milli þúsunda gangandi vegfarenda.
Komið hefur fram ábending um að bíla- og hjólalestin fari
frekar um Ægisgötuna og framhjá hátíðarsviðinu þar á leið
sinni í Grófina. Það væri mun hættuminna og væri ekki að
trufla dagskrá á hátíðarsviðinu mikið. Heilt yfir þá tókst
Ljósanótt vel og ánægjan almenn. Það þarf hins vegar að
skoða allar athugasemdir sem koma fram.
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is.
Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem
er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram
á vef Víkurfrétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á
þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á
miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um
einn sólarhring.
Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is.
Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat
ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu
blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir,
hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Krossmóa 4, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000
Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is
Eyþór Sæmundsson, sími 421 0002, eythor@vf.is
Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is
Víkurfréttir ehf.
Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0006, thorgunnur@vf.is
Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006
Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is
og Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is
Landsprent
9000 eintök.
Íslandspóstur
www.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is
Útgefandi:
Afgreiðsla og ritstjórn:
Ritstjóri og ábm.:
Fréttastjóri:
Blaðamaður:
Auglýsingadeild:
Umbrot og hönnun:
Auglýsingagerð:
Afgreiðsla:
Prentvinnsla:
Upplag:
Dreifing:
Dagleg stafræn útgáfa:
Viltu hefja nám að nýju?
›› FRÉTTIR ‹‹
Af hverju vill fólk hefja skólagöngu að nýju eftir langt hlé? Margar ástæður geta
verið að baki því svo sem að vilja skipta um
starfsvettvang, vilja verða góð fyrirmynd fyrir
börnin sín, fá áhuga á sérstöku námi, vilja
bæta stöðu sína á vinnumarkaði og svo fram-
vegis.
Nú er tækifæri til að taka lítil eða stór skref í
átt að aukinni þekkingu. Boðið er upp á ýmsar
námsleiðir hjá Miðstöð símenntunar á Suður-
nesjum fyrir þá sem vilja hefja nám að nýju.
En það þarf oft mikið átak til að rífa sig upp úr
þægindahringnum sínum og fara í eitthvað nýtt.
Þá skiptir gríðarlega miklu máli sú hvatning sem
einstaklingurinn fær. Sá einstaklingur sem er
hvattur áfram er mun líklegri til að hefja og ljúka
námi. Því er mikilvægt að hvetja sína nánustu
áfram og jafnvel benda þeim á námsmöguleika
sem gætu hentað þeim.
Þekkir þú einhvern sem þarf á hvatningu að
halda?
Grunnmenntaskólinn
Námið hefst 10. september. Í skólanum er lögð
áhersla á að námsmenn læri að læra, efli sjálfs-
traust sitt og lífsleikni. Skólinn er 300 kennslu-
stunda nám fyrir þá sem hafa stutta skólagöngu
að baki eða vilja styrkja námshæfileika sína eftir
langt hlé.
Skrifstofuskólinn
Námið er ætlað einstaklingum sem vilja auka
færni sína til að takast á við almenn versl-
unar- og skrifstofustörf. Verslunarreikningur
og bókhald auk tölvu- og upplýsingatækni og
verslunarensku eru aðalfögin. Skrifstofuskólinn
er 240 kennslustundir og hefst um leið og næg
þátttaka fæst.
Aftur í nám – námskeið fyrir lesblinda
Er námskeið ætlað einstaklingum sem eru les-
blindir, tölublindir eða eiga við námsörðug-
leika að etja. Stuðst er við Ron Davis aðferðina
í lesblinduleiðréttingu. Aftur í nám er alls 95
kennslustundir og þar af eru 40 einkatímar. Ef
þú þekkir einhvern sem er les- eða tölublindur
segðu honum eða henni frá námskeiðinu. Mark-
miðin eru að námsmaður auki færni sína í lestri
og bæti sjálfstraust sitt til náms.
Svæðisbundið leiðsögunám
Aukning erlendra ferðamanna hefur verið
mjög sýnileg á Suðurnesjum í sumar og er spáð
aukningu í fjölda ferðamanna á næstu árum.
MSS hefur í ljósi þessa ákveðið að bjóða upp á
Svæðisbundið leiðsögunám. Svæðisbundið leið-
sögunám opnar fyrir spennandi atvinnumögu-
leika á Suðurnesjum. Námið er tveggja anna og
lýkur í maí 2013 og er námið byggt upp að hluta
til sem bóknám, að hluta til sem verklegt og að
hluta til sem fjarnám. Megináhersla er lögð á
náttúru, menningu og sögu Reykjanesskagans
og nágrennis, auk þess sem áhersla er lögð á
leiðsögutækni og hagnýta þjálfun fyrir starfið í
vettvangsferðum.
Félagsliðabrú
Félagsliðabrúin er fyrir einstaklinga sem starfa
við umönnum og stuðning með börnum,
unglingum, fötluðum og öldruðum og hafa að
minnsta kosti þriggja ára starfsreynslu. Námið
er stytting á félagsliðanámi þar sem metin eru
þau námskeið og reynsla sem viðkomandi nem-
andi hefur öðlast í gegnum tíðina. Nemendur
útskrifast sem félagsliðar.
Fagnámskeið fyrir starfsmenn leikskóla
Fagnámskeið fyrir starfsmenn leikskóla er 210
kennslustunda nám sem kennt er á tveimur
önnum. Þeir námsþættir sem eru kenndir eru
meðal annars uppeldi leikskólabarna, þroski og
þróun leikskólabarna, listastarf með börnum,
sjálfsefling og tölvuleikni. Námið er einskonar
fornám fyrir leikskólaliðabrú sem MSS hefur
boðið upp á.
Styrkir til
nýsköpunar-
verkefna
Ný s k ö p u n a r m i ð s t ö ð Ís -lands fyrir hönd hins nýja
ráðuneytis Atvinnuvega- og
nýsköpunar hefur auglýst eftir
umsóknum í styrktaráætlunina
Átak til atvinnusköpunar. Sjóður
þessi hefur til umráða 80 millj-
ónir króna á ári sem úthlutað er í
tvennu lagi, vor og haust.
Við síðustu úthlutun bárust 253
umsóknir svo ljóst þykir að áhug-
inn er mikill fyrir styrkjunum sem
nema á bilinu 250 þkr. til 2 mkr.
Styrkirnir eru veittir til frumkvöðla
og fyrirtækja til m.a. þróunar og
erlendrar markaðssetningar.
Suðurnesja-
menn þéttbýlir
Fæstir þéttbýlisstaðir eru á Suðurnesjum, 6 talsins, en þar
búa samt 99,4% íbúanna í þétt-
býli. Þetta kemur fram í skilgrein-
ingum Hagstofunnar og tölum
hennar fyrir 2012 en á Íslandi
búa 16.516 manns í strjálbýli eða
5,2% og 94,8% í 101 þéttbýlisstað
á landinu eða 303.059 manns.
Breyttur
útivistartími
tekur gildi
Þann 1. september sl. breytt-ist útivistatíminn en þá mega
börn 12 ára og yngri ekki vera á
almannafæri eftir kl 20.00 nema í
fylgd með fullorðnum.
Börn á aldrinum 13-16 ára skulu
ekki vera á almannafæri eftir
klukkan 22.00, enda séu þau ekki
á heimferð frá viðurkenndri skóla-,
íþrótta- eða æskulýðssamkomu.
Þátttakendur í Svæðisbundnu leiðsögunámi á árunum 2004 – 2005. Frá námskeiðinu Aftur í nám þar sem þátttakendur leira orð og myndir.