Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.09.2012, Side 14

Víkurfréttir - 06.09.2012, Side 14
FIMMTUDAGURINN 6. SEPTEMBER 2012 • VÍKURFRÉTTIR14 ›› Fisktækniskóli Íslands Mennta- og menningarmála-ráðuneytið hefur veitt Fisk- tækniskóla Íslands viðurkenningu sem skóli á framhaldsskólastigi til 31. júlí 2013. Bæjarráð Grindavíkur fagnar því að skólinn hafi hlotið viðurkenn- inguna og vonar að hún sé fyrsta formlega skrefið á þeirri leið að framhaldsnám verði í boði í Grindavík, en lýsir jafnframt von- brigðum með að viðurkenningin sé bundin við eitt skólaár. Bæjar- ráð tekur undir með stjórn Fisk- tækniskólans að það sé afar brýnt að koma skólanum á fastar fjárveit- ingar byggðar á nemendaígildum eins og á við um aðra framhalds- skóla. Nauðsynlegt er að tryggja rekstraröryggi skólans svo hann geti séð lengra fram í tímann en eitt ár í senn og geti markað sér fram- tíðarstefnu og laðað að sér fleiri nemendur. Sjávarútvegur er ein meginstoð íslensks samfélags og hlýtur að vera metnaðarmál fyrir fiskveiðiþjóð að menntun í veiðum og vinnslu sé í boði. Án menntunar og framþróunar er hætt við að Ís- lendingar missi samkeppnisforskot sitt í sjávarútvegi. Tekjur ríkisins af sjávarútvegi eru að hækka talsvert með hækkun veiði- gjalda. Sveitarfélög fá ekki hlut- deild í þeim tekjum, nema að mjög takmörkuðu leyti. Veiðigjaldið á meðal annars að renna í menntun og rannsóknir í sjávarútvegi og styðja við greinina. Að mati bæjar- ráðs Grindavíkur liggur beint við að veita hluta þess fjármagns til að byggja upp Fisktækniskóla Íslands og efla þannig menntun í grunn- greinum íslensks sjávarútvegs. Viðurkenning aðeins til eins árs Hársnyrtistofan ProModa opnaði í húsnæði Nesvalla í Reykja-nesbæ á dögunum en þá sameinuðust fjórar hárgreiðslukonur frá þremur stofum á nýjum stað. „Þetta er búinn að vera frábær dagur og allt gengið vel,“ sögðu þær þegar fréttamaður VF leit við á opnunar- daginn. Á ProModa starfa þær Jóhanna Óladóttir og Svala Úlfarsdóttir en þær ráku áður Capello í Hólmgarði, Linda Hrönn Birgisdóttir sem áður rak Nýja Klippótek á Hafnargötu og loks Marta Teitsdóttir sem rak Elegans á Nesvöllum. Húsnæðið þar er nýlegt og staðsetningin er góð. Þær stöllur brostu sína breiðasta og ánægðar að takast á við þessa breyt- ingu. Tímapantanir eru í síma 421-4848 en þær sögðust einnig taka á móti viðskiptavinum af götunni ef það væri laus tími hjá þeim. Hárfaktorý opnar við Hafnargötu Hárgreiðslukonurnar Lilja Guðmundsdóttir og Gauja Jóns opnuðu nýlega hárgreiðslustofu að Hafnar-götu 20 í Reykjanesbæ. Stofan heitir Hárfaktorý en áður var þar til húsa Nýja Klippótek. Þær stöllur segja að viðtökurnar hafi verið ótrúlega góðar síðan þær opnuðu í síðustu viku. Þær tjáðu blaðamanni það að þær hafi viljað sýna fólki að kreppan sé á undanhaldi og því ákveðið að opna bara sína eigin stofu. ProModa hársnyrtistofa opnar á Nesvöllum Stjórn Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélag- anna í Reykjanesbæ lýsir yfir mik lum v on br i g ð u m m e ð þá ákvörðun Bjarna Benediktssonar, for- manns Sjálfstæðis- flokksins að skipta um þingflokksfor- mann. Ragnheiður Elín hefur verið einn öflugasti liðsmaður þingflokks- ins á þessu kjörtímabili og staðið vaktina sem þingflokksformaður þannig að eftir því er tekið. Er það ekki síst því að þakka að Suður- kjördæmið er eitt sterkasta vígi Sjálfstæðisflokksins, þar sem Ragnheiður er oddviti. Stjórn Fulltrúaráðsins telur þessa ákvörðun for manns ins vera þess eðlis að veikja þingflokk Sjálfstæðis- f lokksins nú þegar kosningar nálgast. Stjórnin skorar á for- ystu flokksins að sjá að sér í þessu máli og vinna heldur að því að sameina flokkinn en ekki sundra. Stjórn Fulltrúaráðs sjálfstæðis- félaganna í Reykjanesbæ 9,5% kvótans í Grindavík Fi s k i s t o f a hefur nú út- h l u t a ð k v ó t a fyrir næsta fisk- veiðiár sem hófst sl. föstudag. Út- hlutað er 318.544 tonnum í þorskígildum sem er 19.000 þorskígildum meira en á síðasta fiskveiðiári. Mest af kvót- anum fer til Reykjavíkur en skip sem hafa heimahöfn í höfuðborg- inni fá úthlutað samtals 14,2% af heildarkvóta. Þar á eftir koma Vestamannaeyjar og því næst Grindavík, með 10,6% og 9,5%, af heildaraflamarki. Þessar þrjár heimahafnir skera sig úr. Úthlutað aflamark eftir heima- höfnum á Suðurnesjum er eftir- farandi: Grindavík .................................. 9,5% Garður ........................................ 2,8% Sandgerði ................................... 0,4% Keflavík ...................................... 1,0% Njarðvík ........................................ 0% Vogar .......................................... 0,8% Samtals eru því 14,5% kvótans á Suðurnesjum. Jana og Dimma aldursforsetar í Grindavík Bæjaryfirvöld í Grindavík hafa birt lista yfir alla hunda og ketti sem eiga heimili í Grindavík og hafa verið skráðir hjá Heil- brigðiseftirliti Suðurnesja. Á listunum má finna 110 hunda af ýmsum tegundum og 56 ketti en tegundir þeirra eru ekki tilteknar. Það vekur athygli á listunum að elsti köttur Grindavíkur er hin 19 ára gamla Jana sem býr við Iðavelli í Grindavík. Dimma er hins vegar elsti hundur/tík Grindavíkur. Hún er fædd árið 1996 og því 16 ára gömul. Á vef bæjaryfirvalda segir að birting upplýsinga um hunda og ketti í bænum er jafnframt hugsuð til hvatningar fyrir þá hunda- og kattaeigendur sem eru með óskráð dýr að ganga frá sínum málum í samræmi við reglur, en á listunum á vef Grindavíkurbæjar eru heimilis- föng dýranna, nöfn þeirra, fæðing- arár og hvenær þau voru fyrst skráð hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja. ›› FRÉTTIR ‹‹ Lýsa yfir vonbrigðum með ákvörðun formanns flokksins Nýafstaðin Ljósanótt í Reykja-nesbæ fór vel fram og gekk þáttur löggæslu í bænum vel. Há- tíðin hófst á fimmtudagsmorgun og náði hámarki á laugardags- kvöld þegar um tuttugu þúsund gestir voru saman komnir, meðal annars til að fylgjast með voldugri flugeldasýningu. Fólk skemmti sér vel og ánægja skein úr hverju andliti. Busaball var á fimmtudagskvöldið í Fjölbrautaskóla Suðurnesja og þar voru ungmennin til fyrirmyndar. Talsverðar annir voru hjá lögreglu á Ljósanótt, enda í ýmsu að snúast við stjórnun, auk þess sem gönguhópar lögreglumanna voru á svæðinu og fylgdust gjörla með því að fólk færi að settum reglum. Hátíðin var stórslysalaus og engin alvarleg mál komu upp. Lögregla hafði afskipti af nokkrum unglingum sem ýmist voru einir á ferð og brutu þar með útivistarreglur, eða ölvaðir og með áfengi, sem tekið var af þeim og hellt niður. Sem fyrr naut lögregla aðstoðar ýmissa aðila á Ljósanótt, svo sem björgunarsveita, Landhelgisgæslu og fleiri. Þeim, sem lögðu hönd á plóg, eru færðar kærar þakkir fyrir aðstoðina, segir á fésbókarsíðu lög- reglunnar á Suðurnesjum. Lögreglan átti ánægju- lega Ljósanótt Laugardaginn 8. september verður sérhönnuð hvala- rannsóknarskúta til sýnis al- menningi í Reykjanesbæ, frá kl. 14 til 16 við bryggjuna í Keflavík. Hægt verður að hlusta á hljóð ólíkra hvalategunda og ræða við rannsóknarfólk um borð í skútunni. Skúta þessi nefnist Song of the whale og er að koma úr leiðangri milli Ís- lands og Grænlands. Búið er að koma fyrir í skútunni sérstökum búnaði til að nema hljóð steypi- reyða auk annarra sjávardýra. Þeir sem gera sér ferð um borð fá að hlusta á þessi einstöku hljóð og fræðast um rannsóknir sem eru á heimsmælikvarða – og eru framkvæmdar á Faxaflóa- svæðinu. Þetta rannsóknarverkefni er sam- starf Háskóla Íslands og IFAW samtakanna og verða vísinda- menn frá Háskólanum og sam- tökunum á svæðinu til að fræða fólk um þessar rannsóknir. Hvalarannsóknarskúta heimsækir Reykjanesbæ

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.