Víkurfréttir - 06.09.2012, Qupperneq 14
FIMMTUDAGURINN 6. SEPTEMBER 2012 • VÍKURFRÉTTIR14
›› Fisktækniskóli Íslands
Mennta- og menningarmála-ráðuneytið hefur veitt Fisk-
tækniskóla Íslands viðurkenningu
sem skóli á framhaldsskólastigi til
31. júlí 2013.
Bæjarráð Grindavíkur fagnar því
að skólinn hafi hlotið viðurkenn-
inguna og vonar að hún sé fyrsta
formlega skrefið á þeirri leið
að framhaldsnám verði í boði í
Grindavík, en lýsir jafnframt von-
brigðum með að viðurkenningin
sé bundin við eitt skólaár. Bæjar-
ráð tekur undir með stjórn Fisk-
tækniskólans að það sé afar brýnt
að koma skólanum á fastar fjárveit-
ingar byggðar á nemendaígildum
eins og á við um aðra framhalds-
skóla. Nauðsynlegt er að tryggja
rekstraröryggi skólans svo hann
geti séð lengra fram í tímann en eitt
ár í senn og geti markað sér fram-
tíðarstefnu og laðað að sér fleiri
nemendur. Sjávarútvegur er ein
meginstoð íslensks samfélags og
hlýtur að vera metnaðarmál fyrir
fiskveiðiþjóð að menntun í veiðum
og vinnslu sé í boði. Án menntunar
og framþróunar er hætt við að Ís-
lendingar missi samkeppnisforskot
sitt í sjávarútvegi.
Tekjur ríkisins af sjávarútvegi eru að
hækka talsvert með hækkun veiði-
gjalda. Sveitarfélög fá ekki hlut-
deild í þeim tekjum, nema að mjög
takmörkuðu leyti. Veiðigjaldið á
meðal annars að renna í menntun
og rannsóknir í sjávarútvegi og
styðja við greinina. Að mati bæjar-
ráðs Grindavíkur liggur beint við
að veita hluta þess fjármagns til að
byggja upp Fisktækniskóla Íslands
og efla þannig menntun í grunn-
greinum íslensks sjávarútvegs.
Viðurkenning aðeins til eins árs
Hársnyrtistofan ProModa opnaði í húsnæði Nesvalla í Reykja-nesbæ á dögunum en þá sameinuðust fjórar hárgreiðslukonur frá
þremur stofum á nýjum stað. „Þetta er búinn að vera frábær dagur og
allt gengið vel,“ sögðu þær þegar fréttamaður VF leit við á opnunar-
daginn.
Á ProModa starfa þær Jóhanna Óladóttir og Svala Úlfarsdóttir en þær
ráku áður Capello í Hólmgarði, Linda Hrönn Birgisdóttir sem áður rak
Nýja Klippótek á Hafnargötu og loks Marta Teitsdóttir sem rak Elegans á
Nesvöllum. Húsnæðið þar er nýlegt og staðsetningin er góð.
Þær stöllur brostu sína breiðasta og ánægðar að takast á við þessa breyt-
ingu. Tímapantanir eru í síma 421-4848 en þær sögðust einnig taka á móti
viðskiptavinum af götunni ef það væri laus tími hjá þeim.
Hárfaktorý opnar við Hafnargötu
Hárgreiðslukonurnar Lilja Guðmundsdóttir og Gauja Jóns opnuðu nýlega hárgreiðslustofu að Hafnar-götu 20 í Reykjanesbæ. Stofan heitir Hárfaktorý en áður var þar til húsa Nýja Klippótek. Þær stöllur
segja að viðtökurnar hafi verið ótrúlega góðar síðan þær opnuðu í síðustu viku. Þær tjáðu blaðamanni það að
þær hafi viljað sýna fólki að kreppan sé á undanhaldi og því ákveðið að opna bara sína eigin stofu.
ProModa hársnyrtistofa
opnar á Nesvöllum
Stjórn Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélag-
anna í Reykjanesbæ
lýsir yfir mik lum
v on br i g ð u m m e ð
þá ákvörðun Bjarna
Benediktssonar, for-
manns Sjálfstæðis-
flokksins að skipta
um þingflokksfor-
mann. Ragnheiður
Elín hefur verið einn
öflugasti liðsmaður þingflokks-
ins á þessu kjörtímabili og staðið
vaktina sem þingflokksformaður
þannig að eftir því er tekið. Er það
ekki síst því að þakka að Suður-
kjördæmið er eitt sterkasta vígi
Sjálfstæðisflokksins,
þar sem Ragnheiður
er oddviti.
Stjórn Fulltrúaráðsins
telur þessa ákvörðun
for manns ins vera
þess eðlis að veikja
þingflokk Sjálfstæðis-
f lokksins nú þegar
kosningar nálgast.
Stjórnin skorar á for-
ystu flokksins að sjá að
sér í þessu máli og vinna heldur að
því að sameina flokkinn en ekki
sundra.
Stjórn Fulltrúaráðs sjálfstæðis-
félaganna í Reykjanesbæ
9,5% kvótans
í Grindavík
Fi s k i s t o f a hefur nú út-
h l u t a ð k v ó t a
fyrir næsta fisk-
veiðiár sem hófst
sl. föstudag. Út-
hlutað er 318.544
tonnum í þorskígildum sem er
19.000 þorskígildum meira en á
síðasta fiskveiðiári. Mest af kvót-
anum fer til Reykjavíkur en skip
sem hafa heimahöfn í höfuðborg-
inni fá úthlutað samtals 14,2%
af heildarkvóta. Þar á eftir koma
Vestamannaeyjar og því næst
Grindavík, með 10,6% og 9,5%,
af heildaraflamarki. Þessar þrjár
heimahafnir skera sig úr.
Úthlutað aflamark eftir heima-
höfnum á Suðurnesjum er eftir-
farandi:
Grindavík .................................. 9,5%
Garður ........................................ 2,8%
Sandgerði ................................... 0,4%
Keflavík ...................................... 1,0%
Njarðvík ........................................ 0%
Vogar .......................................... 0,8%
Samtals eru því 14,5% kvótans á
Suðurnesjum.
Jana og Dimma
aldursforsetar
í Grindavík
Bæjaryfirvöld í Grindavík hafa birt lista yfir alla hunda og
ketti sem eiga heimili í Grindavík
og hafa verið skráðir hjá Heil-
brigðiseftirliti Suðurnesja. Á
listunum má finna 110 hunda af
ýmsum tegundum og 56 ketti en
tegundir þeirra eru ekki tilteknar.
Það vekur athygli á listunum að
elsti köttur Grindavíkur er hin 19
ára gamla Jana sem býr við Iðavelli
í Grindavík. Dimma er hins vegar
elsti hundur/tík Grindavíkur. Hún
er fædd árið 1996 og því 16 ára
gömul.
Á vef bæjaryfirvalda segir að
birting upplýsinga um hunda og
ketti í bænum er jafnframt hugsuð
til hvatningar fyrir þá hunda- og
kattaeigendur sem eru með óskráð
dýr að ganga frá sínum málum í
samræmi við reglur, en á listunum á
vef Grindavíkurbæjar eru heimilis-
föng dýranna, nöfn þeirra, fæðing-
arár og hvenær þau voru fyrst skráð
hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja.
›› FRÉTTIR ‹‹
Lýsa yfir vonbrigðum með
ákvörðun formanns flokksins
Nýafstaðin Ljósanótt í Reykja-nesbæ fór vel fram og gekk
þáttur löggæslu í bænum vel. Há-
tíðin hófst á fimmtudagsmorgun
og náði hámarki á laugardags-
kvöld þegar um tuttugu þúsund
gestir voru saman komnir, meðal
annars til að fylgjast með voldugri
flugeldasýningu. Fólk skemmti
sér vel og ánægja skein úr hverju
andliti.
Busaball var á fimmtudagskvöldið
í Fjölbrautaskóla Suðurnesja og þar
voru ungmennin til fyrirmyndar.
Talsverðar annir voru hjá lögreglu á
Ljósanótt, enda í ýmsu að snúast við
stjórnun, auk þess sem gönguhópar
lögreglumanna voru á svæðinu
og fylgdust gjörla með því að fólk
færi að settum reglum. Hátíðin var
stórslysalaus og engin alvarleg mál
komu upp. Lögregla hafði afskipti
af nokkrum unglingum sem ýmist
voru einir á ferð og brutu þar með
útivistarreglur, eða ölvaðir og með
áfengi, sem tekið var af þeim og
hellt niður.
Sem fyrr naut lögregla aðstoðar
ýmissa aðila á Ljósanótt, svo sem
björgunarsveita, Landhelgisgæslu
og fleiri. Þeim, sem lögðu hönd á
plóg, eru færðar kærar þakkir fyrir
aðstoðina, segir á fésbókarsíðu lög-
reglunnar á Suðurnesjum.
Lögreglan
átti ánægju-
lega Ljósanótt
Laugardaginn 8. september verður sérhönnuð hvala-
rannsóknarskúta til sýnis al-
menningi í Reykjanesbæ, frá
kl. 14 til 16 við bryggjuna í
Keflavík. Hægt verður að hlusta
á hljóð ólíkra hvalategunda og
ræða við rannsóknarfólk um
borð í skútunni. Skúta þessi
nefnist Song of the whale og er
að koma úr leiðangri milli Ís-
lands og Grænlands. Búið er að
koma fyrir í skútunni sérstökum
búnaði til að nema hljóð steypi-
reyða auk annarra sjávardýra.
Þeir sem gera sér ferð um borð
fá að hlusta á þessi einstöku
hljóð og fræðast um rannsóknir
sem eru á heimsmælikvarða – og
eru framkvæmdar á Faxaflóa-
svæðinu.
Þetta rannsóknarverkefni er sam-
starf Háskóla Íslands og IFAW
samtakanna og verða vísinda-
menn frá Háskólanum og sam-
tökunum á svæðinu til að fræða
fólk um þessar rannsóknir.
Hvalarannsóknarskúta
heimsækir Reykjanesbæ