Víkurfréttir - 06.09.2012, Qupperneq 18
FIMMTUDAGURINN 6. SEPTEMBER 2012 • VÍKURFRÉTTIR18
- Segðu okkur aðeins frá leiðinni
á Bifröst. Hvað réð því að þú fórst
þangað í nám og hvað hefur þú
verið að læra áður?
„Ég stóð á tímamótum haustið
2010, og hafði nýlokið námi úr
viðskiptafræði og langaði að bæta
við þekkingu mína og menntun.
Ákvað að skoða aðstæður á Bifröst
og þar mætti mér hlýlegt og hvetj-
andi andrúmsloft. Ég varð heilluð
af staðsetningunni og fannst þetta
litla samfélag sjarmerandi. Ég gat
líka fengið hluta náms míns metið
og það hjálpaði enn frekar við
ákvörðunartökuna. Ég hafði heyrt
margt jákvætt um skólann og ákvað
bara að slá til og sé ekki eftir því“.
- Hvar ertu stödd í náminu í dag.
Hvað áttu eftir?
„Ég er núna búin með tvær
grunngráður og stefni á masters-
próf í lögfræði. Það er nú svolítið
erfitt að svara spurningunni hvað
ég á eftir, það er nú ansi margt eftir
vonandi í lífinu, en mastersnámið
er næst á dagskrá og svo held ég að
ég reyni nú bara að leita leiða til að
koma mér út á atvinnumarkaðinn“.
- Hver er lykillinn að þeim árangri
að dúxa í lagadeildinni? Þarf ekki
mikinn aga og gott skipulag?
„Ja, þegar stórt er spurt…, ég verð
nú að viðurkenna að ég kann
kannski ekki besta svarið við þess-
ari spurningu, þó það virðist vera
Suðurnesjamenn
dúxa í laganámi
á Bifröst
Um 100 nemendur voru útskrifaðir frá Háskólanum
á Bifröst, úr diplómanámi í verslunarstjórnun, frum-
greinanámi, grunnnámi í viðskiptafræði, viðskipta-
lögfræði og HHS (heimspeki, hagfræði og stjórnmála-
fræði) ásamt meistaranemum úr öllum deildum
skólans sl. laugardag. Suðurnesjafólk kom, sá og
sigraði á Bifröst að þessu sinni. Snorri SnorraSon
frá Keflavík dúxaði í meistaranámi sínu við lagadeild
og Hanna Björg KonráðSdóttir úr Keflavík
dúxaði í laganámi sínu við lagadeildina. Þá hlaut
Suðurnesjakonan KriStín ÞórdíS ÞorgilSdóttir
verðlaun fyrir námsárangur á meðan á námi hennar
stóð. Hanna Björg hefur verið búsett á Bifröst með
fjölskyldu sína og stundað nám við lagadeildina.
Víkurfréttir heyrðu frá henni eftir útskriftina sl.
laugardag og tóku púlsinn á lífinu á Bifröst.
undarlegt, ég er haldin skelfilegum
prófkvíða og það er hvorki gott né
gaman að vera í kringum mig þegar
ég er í prófum, maðurinn minn á
mikið hrós skilið. Það eru samt þó
nokkrir þættir sem hjálpuðu til. Í
fyrsta lagi fannst mér námið of-
boðslega skemmtilegt, í náminu var
gífurlega mikið verkefnaálag og oft
á tíðum fannst mér ég lítið annað
gera en að sinna þeim, en verkefnin
voru ákaflega gagnleg og nytsamleg
og við úrlausnir á þeim las maður
mikið í kringum lesefnið og það
síaðist smám saman inn í kollinn.
Í öðru lagi gerði ég nánast ekkert
annað en að sinna fjölskyldu minni
og náminu mínu og átti lítinn tíma
afgangs. Í þriðja lagi fékk ég góða
aðstoð og stuðning frá fjölskyldu
og manninum mínum“.
- Þú ert ekki að fara auðveldustu
leiðina, þ.e. að stunda nám og ala
upp börn á sama tíma? Hvernig
gengur það upp að ala upp börn á
Bifröst og læra lögfræði?
„Já, veistu, þetta er bara búið að
vera ofsalega strembið, skal nú
alveg viðurkenna það. Bæði fyrir
mig og manninn minn sem hefur
verið að keyra á milli úr vinnunni
í Reykjavík alla leið upp á Bif-
röst. Hann er í erfiðri vaktavinnu
og hefur þurft að keyra í öllum
veðrum þannig að álagið hefur
verið mikið. Hvað börnin varðar,
held ég að það skipti nú ekki máli
hvar þú býrð á landinu, það er alltaf
heilmikið og vandasamt verkefni
að ala upp börn, en dásamleg og
gefandi vinna. Börn þurfa tíma og
mikla sinnu og mín börn eru þar
engin undantekning. Ég hef reynt
að sinna því starfi eins vel og ég
hef getað. Að samræma uppeldi
barna og nám er náttúrulega tals-
verð vinna, en það er það líka þegar
fólk kemur út á vinnumarkaðinn
og margir tala um að það sé enn
erfiðara. Á Bifröst ríkir mjög góður
andi og leikskólinn er alveg stór-
kostlegur, hins vegar er alveg hætta
í svona litlu samfélagi að fólk hætti
að fylgjast nægilega vel með börn-
unum, því svæðið er svo lítið og
það er auðvelt að detta í þá gryfju
að telja að ekkert geti komið fyrir.
Ég skal alveg viðurkenna að ég var
leiðinlega mamman á svæðinu og
fannst erfitt þegar eldri dóttirin var
ein úti að leika“.
- Segðu mér aðeins frá samfélaginu
sem er á Bifröst. Þarna eru fleiri
Suðurnesjamenn sem hafa verið
að gera góða hluti.
„Samfélagið iðar af krafti og það
er mikil aðsókn í nám á Bifröst
núna, sem er ánægjulegt. Við erum
nokkur af Suðurnesjum að læra á
Bifröst og fjölmargir Suðurnesja-
menn hafa gert góða hluti í nám-
inu hérna í gegnum tíðina. Snorri
Snorrason úr Reykjanesbæ var að
ljúka mastersprófi í lögfræði með
hæstu einkunn í mastersnáminu
og hefur staðið sig ótrúlega vel í
náminu. Hann er einstakur, ótrú-
lega duglegur og eljusamur og ég
held að það séu fáir sem ég þekki
sem koma að spjalli við mig um
lögfræðileg viðfangsefni af svo
mikilli ástríðu eins og Snorri. Hann
ljómar af áhuga og eldmóði þegar
rætt er um lögfræði. Síðan var ung
stúlka af Suðurnesjum, hún Kristín
Þórdís Þorgilsdóttir að fá verðlaun
fyrir námsárangur á meðan á námi
stendur, þannig að þetta er nú bara
ansi gleðilegt og ánægjulegt fyrir
okkur Suðurnesjafólkið“.
Texti: Hilmar Bragi Bárðarson • Ljósmynd: Oddgeir Karlsson
Matreiðslumaður óskast
Skólamatur óskar eftir að ráða matreiðslumann
til starfa í eldhús sitt í Reykjanesbæ.
Vinnutími er frá kl. 6 til 15 virka daga.
Umsóknir berist á skolamatur@skolamatur.is
fyrir 11. september. Vinsamlegt tilgreinið fyrri störf.
Sími 420 2500 I skolamatur@skolamatur.is I skolamatur.is
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
Atvinna!
Hollt, gott og heimilislegt
Skólamatur er reyklaus vinnustaður.
Hjónin Hanna Björg Konráðsdóttir og Jóhannes Þórhallsson
ásamt börnum sínum, þeim Elísabetu og Eydísi.